Morgunblaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020
50 ára Þórunn ólst
upp í Mosfellsbæ og
býr þar. Hún er leik-
skólakennari að mennt
með framhaldsnám í
stjórnun menntastofn-
ana frá Háskólanum á
Akureyri. Þórunn er
leikskólastjóri í Reykjakoti í Mosfellsbæ.
Synir: Arnar Freyr Reynisson, f. 1990, og
Eiður Örn Reynisson, f. 2005.
Foreldrar: Þórarinn Vagn Þórarinsson, f.
1949, d. 1969, sjómaður, og Guðrún
Gunnarsdóttir, f. 1950, fv. starfsmaður á
Hleini á Reykjalundi, búsett í Mosfellsbæ.
Stjúpfaðir er Ásgeir Sigurðsson, f. 1941,
fv. verktaki, búsettur í Mosfellsbæ.
Þórunn Ósk
Þórarinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Taktu umhverfi þitt til gagngerrar
endurskoðunar og drífðu svo í þeim breyt-
ingum sem þér finnst nauðsynlegar. Allir í
kringum þig sjá hvað þú blómstrar svona
ástfangin/n.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú getur ekki breytt heiminum en ætt-
ir að líta þér nær og koma jafnvægi á eigið
líf. Heilsan ætti að vera í fyrsta sæti hjá þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú lendir í erfiðum deilum við
vinnufélaga og átt erfitt með þig í návist
hans. Það gengur þó fljótt yfir. Leggðu þitt af
mörkum til að hjálpa þeim sem standa höll-
um fæti í lífinu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sýndu sveigjanleika og vertu opin/n
fyrir hugmyndum annarra. Lífið er lang-
hlaup, reyndu að sjá hið jákvæða í litlu hlut-
unum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér hættir til að slá vandanum á frest
en þegar til lengri tíma er litið borgar sig að
leysa málin strax. Þér verður treyst fyrir
leyndarmáli.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Dagurinn í dag hentar til trúnaðar-
samtala. Hafðu alla samninga á hreinu. Það
margborgar sig að hafa skipulag á fata-
skápnum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hættir aldrei að læra og umbætur
eru hollar og óhjákvæmilegar. Einhver þér
náinn dustar rykið af námsbókunum, þú
ákveður að gera það sama.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er óþarfi að byrgja allt inni
þegar þú átt aðgang að góðum sálufélaga.
Samband byggt á sandi fjarar út.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú færð tækifæri til þess að
hitta einhvern einstaklega heillandi í kvöld.
Vertu óhrædd/ur við að fylgja hjartanu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu ekki móðgaður/móðguð yf-
ir tilboði sem þér var gert í fullri einlægni.
Tilfinningar sem hafa verið að safnast upp
geta auðveldlega komið upp á yfirborðið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Frumleiki þinn færir þér gæfu.
Einhver sér ekki sólina fyrir þér en er eins
farið með þig? Ljúktu þeim verkefnum sem
þú byrjaðir á í gær.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Komdu til dyranna eins og þú ert
klædd/ur, fólk kann að meta það. Þú ert
svartsýn/n í dag en það breytist fljótt.
stæð áhrif á hana og urðu hvati til
virkari samfélagsþátttöku.
Ragnheiður er stofnfélagi í Göng-
um saman, syngur í kór hjá Margréti
Pálmadóttur, er í 40 ára gömlum
kvennabókmenntaleshring og bæna-
hring Lífssýnar. Æskuklíkan hittist
enn og fjölskyldan er náin og sam-
heldin. Ragnheiður hefur lært að
meta hundalíf á síðustu árum og telur
stjórnarsetu í ýmsum félögum, auk
þess að sinna kennslu í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og víðar.
Sem formaður Samtaka tungumála-
kennara tók hún þátt í starfi Evrópu-
samtaka tungumálakennara og stóð
að fjölþjóðlegri námsstefnu í Reykja-
vík árið 2010. Við það tækifæri kynnt-
ist Ragnheiður Vigdísi Finnboga-
dóttur og hafa þau kynni haft djúp-
R
agnheiður Jóna Jóns-
dóttir er fædd 19. mars
1960 í Reykjavík. Hún
ólst upp í Hlíðunum í
fjölskylduhúsi þriggja
kynslóða með foreldrum, systkinum
og móðurforeldrum, ásamt móður-
bróður, Guðmundi Haraldssyni.
Eftir grunnskólanám lá leiðin í
landspróf í Héraðsskólann í Reyk-
holti í Borgarfirði. Hún tók þátt í
skátastarfi, fjölbreyttu íþróttastarfi
og dansi og stundaði fjölbreytt störf á
sumrin og með skóla, meðal annars
við fiskvinnslu, leiðsögn ferðamanna,
þjónustustörf á hóteli, sjúkrahúsi og
barnageðdeild, í kvikmyndahúsi og
við danskennslu.
Menntaskólaárunum var varið í
Hamrahlíð, með árshléi þegar hún fór
sem skiptinemi til Bandaríkjanna. Í
Hamrahlíðinni kynntist Ragnheiður
Arnóri eiginmanni sínum og hefur
samleið þeirra nú spannað 42 gæfurík
ár.
Bókmenntafræði og enska í Há-
skóla Íslands freistaði og lauk Ragn-
heiður BA-prófi í þeim greinum
ásamt kennsluréttindum. Mennta-
skólinn við Hamrahlíð varð vinnu-
staður Ragnheiðar að námi loknu, þar
til fjölskyldan flutti til Madison, í Wis-
consin-ríki Bandaríkjanna, þar sem
þau bjuggu 1988-1995. Í Madison
lauk Ragnheiður meistaragráðu í
enskum bókmenntum og bóklega
hluta doktorsnáms í mennt-
unarfræðum, en Arnór lauk sérfræði-
prófi í lyflækningum og gigtar-
lækningum.
Borgarholtsskóli tók til starfa ári
eftir heimkomuna og var Ragnheiður
svo lánsöm að taka þátt í mótunar-
starfi á fyrstu þremur árum skólans.
Doktorsnámið bankaði upp á og
Kennaraháskóli Íslands var næsti
vinnustaður, enda vann Ragnheiður
rannsókn vegna doktorsritgerðar
þar. Vorið 2003 lauk hún doktorsprófi
frá University of Wisconsin. Doktors-
ritgerðin fjallar um hvernig nýta má
bókmenntir til að uppræta fordóma
gegn minnihlutahópum og hannaði
Ragnheiður kennslumódel sem nýst
getur í margvíslegum aðstæðum þar
sem forréttindablinda ræður för.
Næstu árin sinnti Ragnheiður
nokkra nú til fjölskyldumeðlima.
Hannesarholt hefur átt hug Ragn-
heiðar og tíma síðasta áratuginn eða
svo, en þau hjón og börn þeirra
keyptu árið 2007 húsið að Grundar-
stíg 10, sem nú hýsir Hannesarholt.
Eftir gagngerar endurbætur og
viðbyggingu var loks Hannesarholt
opnað í febrúar 2013. Sjálfseignar-
stofnunin er rekin af þeirri bjargföstu
trú að til að þjóð farnist vel þurfi hún
að vera tengd við rætur sínar.
„Húsið er nánast fullkomið
kennslutæki, í anda einstaklingsmið-
aðrar kennslu. Þegar fólk stígur hér
inn og finnur sig umlukið sögu fer það
ósjálfrátt að minnast eigin æsku og
persónulegrar sögu. Hannesarholt
var heimili í nær hundrað ár og það
geymir anda liðins tíma. Það merki-
legasta finnst mér hvernig sagan kall-
ast á við daginn í dag og heimsmark-
miðin sem eiga hug okkar allan nú
voru líka hluti af baráttu framsýns
fólks í sögunni okkar, þótt það væri
ekki búið að gefa þeim það nafn þá.
Við getum speglað okkur í fortíðinni
og fundið leiðsögn til nútíðar og fram-
tíðar.“
Afmælisbarnið á þá ósk heitasta að
Hollvinum Hannesarholts fjölgi og
stuðningur í verki við sjálfseignar-
stofnunina vaxi þannig að hún eigi sér
framtíðarvon. Eins og aðrar sjálfs-
eignarstofnanir er hún ekki rekin í
hagnaðarskyni. Á heimasíðu Hann-
esarholts má lesa nánar um félag
Hollvina og ganga í félagið.
Ragnheiður mun verja deginum
með fjölskyldu sinni í Hannesarholti,
enda er hún ekki sú eina sem fagnar
afmæli þennan dag. Eldri sonurinn,
Víkingur Heiðar, fæddist á 25 ára af-
mælisdaginn hennar og því fagna þau
samtals 95 ára afmæli í dag. „Ég
hafði boðið fólki að líta við í Hann-
esarholti í dag, en það verður væntan-
lega lítið um innlit í þessu árferði nú.
Ætli við höldum ekki betur upp á
þetta síðar. En fólk er alltaf velkomið
í Hannesarholt, líka í dag.“
Fjölskylda
Eiginmaður Ragnheiðar er Arnór
Víkingsson, f. 6.11. 1959, læknir. For-
eldrar hans voru hjónin Víkingur
Heiðar Arnórsson, f. 7.5. 1925, d. 27.2.
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir, menntunarfræðingur og stofnandi Hannesarholts – 60 ára
Doktorsútskrift Hrafnhildur, Víkingur, Marinella, dr. Jack Kean, formað-
ur doktorsnefndar Ragnheiðar, Ragnheiður, Jón Ágúst, Marinella móðir
Ragnheiðar og Arnór í Madison í Wisconsin 16. maí 2003.
Samtals 95 ára í dag
Secret Solstice 2019 Marinella, Arnór, Júníana Hrafnsdóttir, Ragnheiður,
Víkingur Heiðar, Guðrún Líf Björndsóttir, Kevin Clark og Hrafnhildur.
40 ára Guðni ólst upp
í Þorlákshöfn og
Hveragerði en býr í
Reykjavík. Hann er
framkvæmdastjóri
Vatnsvirkjans ehf.
Maki: Ellen Ýr Aðal-
steinsdóttir, f. 1977,
mannauðsráðgjafi hjá Orkuveitu Reykja-
víkur.
Börn: Kolfinna Ríkey Guðnadóttir, f.
2010, og Orri Vilberg Guðnason, f. 2013.
Foreldrar: Vigdís Heiða Guðnadóttir, f.
1958, vinnur á bæjarskrifstofunni í
Hveragerði, og Baldur Sigurðsson, f.
1959, verktaki. Þau eru búsett í Hvera-
gerði.
Guðni Vilberg
Baldursson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is