Morgunblaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020
veita náttúrulega vörn
gegn bakteríum í munninum
Tvíþætt sink
og arginín
Dregur úr
tannskán
Styrkir
glerunginn
Dregur úr
tannskemmdum
Frískari
andardráttur
Dregur úr
blettamyndun
Dregur úr
viðkvæmni
Dregur úr
tannsteini
Fyrirbyggir
tannholdsbólgu
NÝTT
Veruleg fækkun baktería á
tönnum, tungu, kinnum og
gómi eftir samfellda notkun
í fjórar vikur.
BYLTING FYRIR
ALLANMUNNINN
Heildarvörn fyrir tennur, tungu, kinnar og tannhold
Frábær
vörn í
12
tíma
Það þekkja flestir rjómaostinn í bláu dósunum en hann
er nú kominn í nýjar umbúðir og það sem betra er nú
hefur osturinn verið endurbættur til muna svo hann er
enn mýkri og bragðbetri en áður. Rjómaosturinn frá
Gott í matinn bráðnar sérlega vel og hentar í margs
konar rétti á borð við lasagna, pastarétti og pítsur. Oft
þarf ekki nema lítinn bita af rjómaosti til að gera sós-
una eða súpuna einstaklega bragðgóða og svo er hann
auðvitað frábær í ostakökur, kökukrem og ýmsa eft-
irrétti.
Hér er einföld uppskrift að sykurlausri gulrótarköku
með dúnmjúku rjómaostakremi en það er tilvalið að
nota næstu daga og misseri til að prófa sig áfram með
alls kyns heimabakstur.
Gulrótarkaka með rjómaostakremi
Botn:
250 g saxaðar döðlur
300 ml vatn
3 stk. egg
6 stk. meðalstórar gulrætur, rifnar
1 dl spelt
1 tsk. kanill
1 ½ tsk. lyftiduft
½ msk. vanilludropar
1 dl kókos
2 dl möndlur/kashjúhnetur/pekan hnetur
1 dl kókosolía
Krem:
400 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
2 dl flórsykur
1 tsk. vanilludropar
1 msk. hunang
1. Hitið ofn í 170 gráður.
2. Sjóðið vatn og döðlur saman og hrærið í með gaffli
þar til það þykknar og blandast saman.
3. Þeytið egg vel og blandið öllum hráefnum saman.
4. Setjið í form með bökunarpappír í botni – venjulegt
hringlaga smelluform passar vel.
5. Bakið í 50 mínútur við 170°C.
6. Kælið kökuna og búið til kremið.
7. Hrærið saman flórsykri, vanilludropum, rjómaosti og
hunangi og smyrjið yfir kökuna þegar hún er orðin
köld.
8. Berið fram með glasi af ískaldri mjólk.
Gómsæt gulrótarkaka
og glænýr rjómaostur
Bætir, hressir og kætir. Rjómaostur
hefur þann frábæra eiginleika að gera
allan mat betri og er leynihráefni í ansi
mörgum heimsfrægum uppskriftum.
Góð steypujárnspanna er gulli
betri því þær eru ekki bara heppi-
legar til að steikja í heldur duga
þær einnig sem fyrirtaks pítsu-
bökunargræja og bökunarform.
Þeir sem trúa því ekki þurfa ekki
annað en að dást að myndunum
sem fylgja þessari uppskrift en
það er okkar eina sanna Linda
Ben sem á heiðurinn að þessari
dásemdaruppskrift. Ef þið farið á
samnefnt Instagram hjá Lindu þá
er hægt að sjá aðferðina enn ítar-
legar.
Stór súkkulabitakaka með
mjúkri karamellumiðju
220 g mjúkt smjör
2 dl sykur
1 dl púðursykur
2 egg
1 tsk. vanilludropar
1½ tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
6 dl hveiti
250 g súkkulaði
100 g rjómakaramellur
½ dl rjómi
1. Kveikið á ofninum og stillið á
175°C og undir+yfir hita.
2. Hrærið smjörið, sykurinn og
púðursykurinn vel saman.
3. Bætið eggjunum út í, einu í
einu og hrærið vel.
4. Bætið vanilludropunum saman
við og hrærið vel.
5. Bætið því næst lyftidufti, salti
og hveitinu út í og blandið var-
lega saman.
6. Skerið súkkulaðið niður ef þið
notið súkkulaðiplötur og bætið
því út í og hrærið þar til allt
hefur blandast saman.
7. Smyrjið 20 cm formið vel með
smjöri, setjið helminginn af
deiginu í formið.
8. Setjið karamellurnar og
rjómann í pott og bræðið sam-
an. Hellið yfir deigið í forminu
og setjið restina af deiginu yfir.
Bakið inni í ofni þar til kakan
verður gullinbrún eða í u.þ.b.
20-25 mín.
Dásemdar súkku-
laðibitakaka bökuð
í steypujárnspönnu
Sveitó og sjarmerandi Það er eitthvað svo óskaplega
sjarmerandi við það að baka í steypujárnspönnu.
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is