Morgunblaðið - 19.03.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020
Náttfata-
dagar
20-50%
afsláttur
af öllum
náttfatasettum
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
FISLÉTTIR DÚN
OG VATTJAKKAR
MARGIR LITIR
FRÁ KR.
19.900
Persónuleg Símaþjónusta
FRÍ HEIMSENDING
hjá Laxdal /gætum við
fyllsta öryggis
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Nýjar vörur streyma inn
Hópur íslenskra hesta var nú á
mánudag fluttur til Sviss og Suður-
Þýskalands þar sem þeir munu
dvelja á svoköll-
uðu „flugusvæði“.
Er þetta loka-
hnykkur 20 ára
rannsóknarvinnu
Tilraunastöðvar
Háskóla Íslands í
meinafræði að
Keldum og sam-
starfsaðila á sum-
arexemi í íslensk-
um hestum. Að
sögn Sveins
Steinarssonar, formanns Félags ís-
lenskra hrossabænda, er sum-
arexem hesta afar algengt hér á
landi.
„Sumarexem í hrossum fluttum
frá Íslandi er og hefur verið mikið
velferðarmál þó að það hafi verið
mismikið eftir svæðum og að-
stæðum. En þegar verst lætur
þarfnast hrossin mikillar umönn-
unar og líður hreint ekki vel,“ segir
Sveinn, en bætir þó við að þekking
sé sífellt að aukast. „Auðvitað þekkir
fólk erlendis sífellt betur hvernig er
best að meðhöndla exemið og haga
hrossahaldinu, en því fylgir oft mikil
aukavinna og kostnaður. Því er mik-
ilvægt að lausn sé framundan. Allir
sem hafa komið að þeirri vinnu að
hægt verði að bólusetja hrossin gegn
exemi binda miklar vonir við bólu-
efnið og að hægt verði að forverja
hrossin sem flutt eru úr landi þannig
að þau verði að minnsta kosti jafn-
sett þeim íslensku hrossum sem
fæðast erlendis hvað sumarexemið
varðar.“ aronthordur@mbl.is
Bólusetja
íslenska
hesta
Lokahnykkur 20
ára rannsóknar
Sveinn
Steinarsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Umhverfisstofnun hefur hafnað
beiðni franska ævintýramannsins
Antoine Mesnage um að fá að
ganga á línu við Svörtuloft á Snæ-
fellsnesi í sumar og nota dróna til
að taka athæfið upp á myndband.
Stofnunin hefur hins vegar fallist á
ósk ævintýramannsins um að gera
slíkt við sama við Háafoss og
Skógafoss.
Ævintýramaðurinn Mesnage
hyggst koma hingað til lands við
fimmta mann í júní. Hyggst hann
eyða þremur vikum í að strengja
línur yfir gljúfur og ganga yfir.
Drónum verður flogið alveg upp við
línuna til að festa á filmu þegar
gengið er yfir.
Í úrskurði Umhverfisstofnunar
segir að minniháttar röskun verði
af þessum áformum við Háafoss.
Við Skógafoss er talið að drónaflug
geti haft áhrif á dýralíf, til að
mynda á fýla. Eins muni athæfið
trufla upplifun ferðamanna við
fossinn. Veitir stofnunin þó leyfi
verði ákveðnum skilyrðum fylgt.
Skal hópurinn taka tillit til annarra
gesta og klæðast áberandi fatnaði,
gjarnan merktum, svo aðrir gestir
fylgi þeim ekki út fyrir merktar
gönguleiðir.
Við Svörtuloft er talið að athæfi
Antoine Mesnage trufli varptíma
fugla í júní og því fær hann ekki
leyfi þar.
Fær ekki að ganga á línu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Svörtuloft Viðkvæmt fuglalíf hentar ekki fyrir drónaflug og línugöngu.
Franskur ævintýramaður sækir Ísland heim í sumar