Morgunblaðið - 18.04.2020, Qupperneq 4
4 KÓRÓNUVEIRUFARALDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Ragnhildur Þrastardóttir
Þór Steinarsson
Sigurður Bogi Sævarsson
Snorri Másson
Frá fimmtudegi til dagsins í gær,
föstudags, greindust alls 15 manns
á Íslandi með kórónuveiruna; að
meirihluta fólk sem hafði verið í
sóttkví. Níu eru látnir af völdum
sjúkdómsins, fjöldi staðfestra
smita er nú 1.765 og 522 eru í ein-
angrun. Alls 1.224 hafa náð bata
eða um 70% þeirra sem sýkst hafa.
„Faraldurinn er á niðurleið en
reynslan annars staðar frá sýnir
að það gerist ekki mjög hratt,“
sagði Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir á upplýsingafundi al-
mannavarna í gær. Hann hvatti
því fólk til að vera áfram á varð-
bergi og benti á að enn gætu kom-
ið upp hópsýkingar.
Ekki hægt að
útiloka hópsýkingar
Samstaðan er mikilvæg, sagði
Þórólfur, og sömuleiðis að fólk
færi eftir þeim fyrirmælum um
smitvarnir og fjarlægðartakmark-
anir sem hafa og verða gefin út.
Enn hefði 4. maí, dagurinn sem
létt verður á takmörkunum, ekki
litið dagsins ljós og allt væri
óbreytt þangað til.
Á upplýsingafundi gærdagsins
fór Alma Möller yfir stöðu heil-
brigðisþjónustu í landinu og sam-
ráð milli heilbrigðisumdæma og
góða samvinnu á fundum. Á covid-
deild Landspítalans sé fylgst með
stöðunni, heilsugæslan á hverjum
stað sjái um vitjanir og þeir sjúk-
lingar sem þurfi innlögn fari á
LSH eða sjúkrahúsið á Akureyri.
Þá hefur tekist að létta á því mikla
álagi sem var á Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða með atfylgi bakvarða-
sveitar, en allt að 60 manns hafa
undir merkjum þeirrar sveitar far-
ið vestur að undanförnu og rétt
hjálparhönd.
Á Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands sagði Alma að ástandið væri
viðráðanlegt og tekist hefði að
leysa úr málum á Norðurlandi, en
þar ber hátt að margir í Húna-
þingi vestra veiktust eða þurftu að
fara í sóttkví en eru nú lausir. Á
Austurlandi hefði sömuleiðis geng-
ið vel og færri smit greinst þar en
annars staðar. Á Suðurlandi hefði
spilast ágætlega úr hlutunum þótt
mikið álag hefði verið á sjúkrahús-
inu í Vestmannaeyjum á tímabili.
Róðurinn á hjúkrunarheimilum
hefði verið erfiður í byrjun en þar
hefðu bakvarðasveitir nýst vel.
Sterk keðja og góð samstaða
„Það sem hefur einkennt allt
þetta ferli hjá okkur er góð sam-
staða. Allar stéttirnar hafa komið
sterkt inn, sem sýnir hve sterk
keðjan er þegar allir hlekkirnir
koma saman,“ sagði Hildigunnur
Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar á Sjúkrahúsinu á Akur-
eyri, á upplýsingafundinum í gær.
Hún þakkaði heilbrigðisstarfsfólki
fyrir störf sín og sagði þrekvirki
hafa verið unnið. Á Akureyrarspít-
ala var legudeild, sem getur tekið
á móti allt að tíu smituðum sjúk-
lingum, sett á laggirnar á skömm-
um tíma. „Að opna nýja legudeild
á stuttum tíma er eiginlega þrek-
virki. Horfa þarf til margra þátta
eins og mannskapar, búnaðar,
smitvarna, tækni og svo framvegis
þannig að það var afskaplega vel
gert,“ sagði Hildigunnur. Þá sagði
hún að mikilvægi sjúkraflugsins
hefði komið vel í ljós að undan-
förnu. Flókið væri að flytja smitað
fólk á milli landshluta með flugi og
á sjúkrahús. Flutnings- og ein-
angrunarhjúpar hefðu dugað
ágætlega, að sögn Hildigunnar, en
tæknin væri hins vegar langt frá
því að vera fullkomin.
Á upplýsingafundinum í gær
gerði Hildigunnur mikilvægi smit-
varna að umtalsefni, en á Sjúkra-
húsinu á Akureyri hefði allt verið
gert til að tryggja öryggi starfs-
manna og sjúklinga. Í því efni
hefði fjarfundabúnaður reynst vel
og gagnast vel til að veita sjúk-
lingum góða þjónustu.
Þróa og bæta starfsemi
Hildigunnur sagði ánægjulegt
hve fá tilfelli hefðu komið upp á
Norðurlandi en sjúkrahúsið væri
meðvitað um að upp gætu komið
hópsýkingar sem kölluðu á aðgerð-
ir innanhúss og væri tilbúið í slíkt
verkefni, kæmi til þess. Allt hefði
þetta skapað þekkingu meðal
starfsmanna sjúkrahússins, sem
notuð yrði til að bæta og þróa
frekar þá starfsemi sem sjúkra-
húsið hefði með höndum.
Fjöldi eftir landshlutum
Óstaðsett 2 84
Útlönd 1 0
Austurland 8 25
Höfuðborgarsvæði 1.285 1.034
Suðurnes 77 59
Norðurland vestra 35 2
Norðurland eystra 46 54
Suðurland 176 144
Vestfirðir 83 99
Vesturland 41 42
Smit
Sóttkví
Uppruni smits
Innanlands
Óþekktur
Erlendis
39.536 sýni hafa verið tekin
1.224 einstaklingar hafa náð bata
9 einstaklingar eru látnir
32 eru á sjúkrahúsi 3 á gjör-gæslu
522 eru í einangrun
Fjöldi smita frá 28. febrúar til 16. apríl
Heimild: covid.is
1.754 smit voru staðfest
í gær kl. 13.00
1.754
522
feb.
1.650
1.375
1.100
825
550
275
þeirra sem
hafa greinst
voru í sóttkví
80%
54%
10,1% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,66% sýna tekin hjá ÍE
17.445 hafa lokið sóttkví1.543 manns eru í sóttkví
Staðfest smit
Virk smit
mars apríl
Um 70% smitaðra hafa náð bata
Alls 1.765 manns hafa smitast Enn er hætta á hópsýkingum Samstaða um smitvarnir er mikil-
væg Bakverðirnir hafa bjargað miklu Þrekvirki unnið Fá tilfelli hafa komið upp á Norðurlandi
Ljósmynd/Lögreglan
Upplýsingafundur Þríeykið á sínum púltum og Hildigunnur Svavarsdóttir í mynd að norðan með fjarfundabúnaði.
„Einmitt
núna erum
við í stríði,“
sagði Jón
Páll Hreins-
son, bæjar-
stjóri í Bol-
ungarvík, á
upplýsinga-
fundi vegna
kórónuveir-
unnar sem
haldinn var þar í bæ í gær og
sýndur á netinu. Þar kom fram
að hápunktur greindra smita
kæmi sennilega síðar fyrir vest-
an en á höfuðborgarsvæðinu.
Faraldurinn væri ekki á undan-
haldi og því væri ekki í boði að
brjóta reglur um sóttvarnir,
fjarlægð og fjöldatakmarkanir.
„Ekki er útlit fyrir annað en
að greindum smitum haldi
áfram að fjölga,“ sagði Gylfi
Ólafsson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðisstofnunar Vest-
fjarða. Skimað hefur verið fyrir
kórónuveirunni hjá 1.500
manns á Ísafirði og í Bolung-
arvík síðan á miðvikudag og
lauk því verkefni í gær. Búast
má við að greindum smitum
fjölgi þegar niðurstöður skim-
unar koma í ljós, á allra næstu
dögum.
Strangar takmarkanir um
daglegt líf fólks gilda á norð-
anverðum Vestfjörðum, en þar
mega aldrei fleiri en fimm
koma saman í einu. Bannið
gildir til 26. apríl og verður
mögulega framlengt. Nokkuð
hefur verið um brot á reglum
og hefur lögreglan áminnt við-
komandi.
Smitunum
mun fjölga
VIÐSJÁR Á VESTFJÖRÐUM
Gylfi
Ólafsson
Icelandair mun neyðast til þess að
fækka enn frekar í hópi starfs-
manna sinna á
komandi vikum
vegna þeirrar
stöðu sem ríkir í
flugheiminum.
Þetta sagði Bogi
Nils Bogason í
samtali við mbl.is
í gær. Hann seg-
ir þó að vonir
standi til að hægt
verði að ráða fólk
að nýju þegar að-
stæður snúist til hins betra. Hjá fé-
laginu störfuðu í fyrra að meðaltali
ríflega 4.700 manns. Í síðasta mán-
uði var 240 starfsmönnum sagt upp
störfum og stærstur hluti þeirra
sem eftir sátu var færður í hluta-
starfsúrræði Vinnumálastofnunar.
Í gærmorgun sendi Icelandair
Group frá sér tilkynningu til Kaup-
hallar Íslands þess efnis að það
hygði á hlutafjárútboð til að styrkja
lausa- og eiginfjárstöðu sína. Það
væri auk þess gert til þess að
styrkja samkeppnishæfni félagsins
til framtíðar. Í tilkynningunni sagði
að forsenda slíks útboðs væri að
viðræður við stéttarfélög skiluðu ár-
angri en einnig samtöl sem félagið á
nú við fjármögnunaraðila sína, flug-
vélaleigusala og aðra birgja.
Nýir samningar lykilatriði
Í fyrrnefndu samtali sagðist Bogi
Nils hafa trú á því að félagið gæti
orðið samkeppnishæft á alþjóða-
vettvangi og þar með vænlegur
fjárfestingarkostur.
Samningar við flugvirkja, flug-
menn og flugfreyjur eru nú ann-
aðhvort lausir eða losna á þessu ári.
Segir Bogi að það sé algjört lykil-
atriði að ganga frá langtímasamn-
ingum við þessa aðila.
„Við teljum þetta nauðsynlegt
svo að fjárfestar komi að félaginu.
Við höfum fengið skilaboð þar
um.“
Hlutabréfaverð Icelandair Gro-
up tók mikla dýfu við opnun mark-
aða í gærmorgun og nam lækkunin
á tímabili ríflega 10%. Félagið rétti
nokkuð úr kútnum þegar leið á
daginn. Hins vegar enduðu bréf fé-
lagsins á því að lækka um tæplega
6,2%. Er markaðsverð félagsins nú
17,4 milljarðar króna. Um mitt ár
2016 nam markaðsvirði félagsins
nærri 200 milljörðum króna.
Sviptingar hjá Icelandair
Frekari uppsagnir í kortunum Leita að nýju fjármagni
Bogi Nils
Bogason