Morgunblaðið - 18.04.2020, Síða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
NÝVEFVERSLUN
www.hjahrafnhildi.is
20%afsláttur
af öllum skóm
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
GLÆSILEGUR
VORFATNAÐUR
FRÍ HEIMSENDING
hjá Laxdal gætum við
fyllsta öryggis v/ covid
OPNUM NETVERSLUN
FLJÓTLEGA
Ekkert landmót hestamanna verður
í ár. Landsmótinu sem vera átti á
Rangárbökkum við Hellu í byrjun
júlí hefur verið frestað um tvö ár.
Jafnframt var landsmótinu sem
halda átti hjá hestamannafélaginu
Spretti í Kópavogi eftir tvö ár frest-
að til ársins 2024.
Ástæðan fyrir frestun landsmóts-
ins er áform um að takmarka fjölda-
samkomur í sumar við 2.000 manns.
Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, fram-
kvæmdastjóri landsmótsins á Hellu,
segir að mótið gangi ekki upp miðað
við þann fjölda. Fram hefur komið
áður að til þess að landsmót standi
undir kostnaði þurfi 6-7 þúsund
gesti. Mótshaldarar á Hellu stefndu
að 8 til 10 þúsund manns.
Mikið lagt í undirbúning
„Þetta er gífurlegt áfall. Við erum
búin að leggja mikla fjármuni í
verkefnið, sem hefur þróast vel, og
útlit var fyrir öflugt mót,“ segir Ei-
ríkur.
Landsmót hestamanna eru haldin
annað hvert ár, á móti Heimsleikum
íslenska hestsins. Þegar pest herj-
aði á hestastofninn á árinu 2010 var
mótinu á Vindheimamelum frestað
um ár. Eiríkur segir að það hafi
ekki komið til álita nú vegna áhrifa
á heimsleikana. Næstu heimsleikar
verði haldnir í Herning í Danmörku
1. til 8. ágúst á næsta ári.
Þeim félögum sem sóttu um að
halda landsmót 2024 hefur verið
boðið að færa umsóknirnar yfir á
landsmót 2026.
Þeir sem keypt hafa miða á við-
burðinn geta valið um að fá endur-
greitt eða láta miðann gilda fyrir
mótið 2022. Þriðji valmöguleikinn er
að styrkja viðburðinn. helgi@mbl.is
Landsmót hesta-
manna fellt niður
Morgunblaðið/Ómar
Rangárbakkar Landsmót á Hellu
hafa yfirleitt verið fjölsótt.
Haldið á Rangárbökkum eftir tvö ár
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Skólar eru nú margir farnir að huga
að útskrift nemenda og verða at-
hafnirnar ólíkar því sem við eigum
að venjast sökum útbreiðslu kórónu-
veiru og þeirra umfangsmiklu sótt-
varnaaðgerða sem gripið hefur verið
til í skólum og samfélaginu öllu.
Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
Fjölbrautaskólans í Garðabæ og for-
maður Skólameistarafélags Íslands,
segir enga eina leið farna við út-
skriftir, skólastjórnendur séu að
kanna alla möguleika í stöðunni.
„Útskriftir verða með mjög fjöl-
breyttum hætti, að ég tel. Menn hafa
eitthvað rætt um hvort skólar ættu
að taka sig saman en því hefur verið
hafnað. Sumir munu reyna að fá
nemendur til sín í einhverjum hollum
á meðan aðrir ætla að vera með þetta
alfarið á netinu. Við munum að öllum
líkindum vera með útskriftina í
beinni á Facebook og svo munu nem-
endur annaðhvort ná í prófskírteini
sín eða fá þau send,“ segir Kristinn
og bætir við að honum finnist afar
ólíklegt að skólum verði gefin und-
anþága frá sóttvarnaaðgerðum til að
útskrifa nemendur í stórum hópum.
Ástandið nýtist í nýjungar
Vilji skólar fá nemendur til sín í
útskriftarathöfn segir Kristinn ljóst
að fylgja verði öllum tilmælum um
sóttvarnir, þ.e. að ekki séu fleiri en
50 einstaklingar í sama rými og að
minnst tveir metrar séu á milli
manna. „Þetta er kannski ekkert
mjög flókið þannig séð, en þá þarf
væntanlega að taka hópinn mjög ró-
lega inn. Persónulega finnst mér ein-
faldara að hafa athöfnina rafræna.
Við verðum þá með okkar ræðu, til-
kynnum um dúx og verðum vonandi
einnig með tónlistaratriði og allt
saman í beinni á Facebook,“ segir
Kristinn og bendir á að hann telji af-
ar mikilvægt að nýta sér ástandið til
þess að læra eitthvað nýtt. „Við höf-
um að vísu síðustu ár sent út okkar
útskrift á Facebook. En ég reikna nú
með því að við reynum að gera þetta
aðeins flottara nú en áður.“
Magnús Ingvason, skólameistari
Fjölbrautaskólans við Ármúla, seg-
ist vera að skoða þann möguleika að
halda útskriftarathöfn í skólanum.
„Við ætlum að halda okkar út-
skrift á réttum tíma, 26. maí. En með
nákvæmlega hvaða sniði, það á eftir
að koma í ljós. Við eigum eftir að
ákveða hvort hún verði í hollum,
nokkurs konar raðútskrift með mis-
munandi hópum á ólíkum tímum.
Okkur líst betur á það en rafútskrift
enda erum við með bæði stóran sal
og mjög stóra lóð sem hægt væri að
nýta.“ Nánar má lesa um þetta mál á
mbl.is í vefútgáfu Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/Eggert
Bannað Skólum verður gert að virða tveggja metra regluna og fjöldatakmarkanir við útskriftir á þessari önn.
Veiran mun setja svip
sinn á útskriftir skóla
Sumir skólar sýna á netinu en aðrir reyna að halda athöfn
Skannaðu kóðann
til að lesa meira
um þetta á mbl.is
Starfi Háskóla unga fólksins og ferðum Háskólalestarinnar sem fram
áttu að fara á næstunni hefur verið frestað, að minnsta kosti fram á
haust. Er þetta vegna takmarkana um samskipti næstu vikur og mán-
uði vegna faraldurs kórónuveirunnar, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Háskóla Íslands. Þar er harmað að grípa þurfi til þessara ráð-
stafana sem séu þó óhjákvæmilegar.
Hjá Háskóla Íslands hafi verið gripið til mjög fjölþættra aðgerða
undanfarnar vikur vegna faraldursins. Meðal annars hafi allar bygg-
ingar verið lokaðar nemendum frá 16. mars og tekin upp rafræn
kennsla og prófahald á öllum fræðasviðum.
Háskóli unga fólksins hefur verið starfræktur frá árinu 2004 og
verður að óbreyttu haldinn að nýju í júní 2021. Í starfi hans hefur m.a.
verið vakin athygli á mikilvægi nýsköpunar og rannsókna fyrir um-
hverfi og samfélag. Ferðalag Háskólalestarinnar hófst 2011, á ald-
arafmæli HÍ, og hefur lífleg vísindaskemmtun fyrir alla aldurshópa þar
verið leiðarstefið.
Háskólastarfi unga fólksins frestað