Morgunblaðið - 18.04.2020, Síða 14
Vélsmiðjan VHE
ehf. hefur fengið
heimild Héraðs-
dóms Reykja-
ness til greiðslu-
stöðvunar. Þung
áföll í bygging-
ardeild félagsins
á síðustu miss-
erum, vegna
viðskiptavina
sem lent hafa í greiðsluvanda, er
sögð helsta ástæða þessa í tilkynn-
ingu.
Starfsmenn VHE hafi undan-
farið leitað leiða til að draga úr
tjóni, en vegna hægari umsvifa í
hagkerfinu af völdum kórónuveir-
unnar hafi ekki verið hægt annað
en að fá tímabundið greiðsluskjól
frá lánardrottnum, ekki síst til að
tryggja jafnræði þeirra.
Tekið er fram að VHE sé stærsta
vélsmiðja landsins og að grunn-
rekstur félagsins og eiginfjárstaða
þess sé traust. Byggingardeild fé-
lagsins sé innan við 20% af heildar-
umsvifum þess.
„Við þurfum að komast í gegnum
þennan skafl sem þessar fordæma-
lausu aðstæður hafa átt þátt í að
skapa,“ er haft eftir Unnari Hjalta-
syni aðaleiganda VHE.
„Við þurfum að vernda störf okk-
ar starfsmanna og viðurværi fjöl-
skyldna þeirra […] Við þurfum að
tryggja með sem bestum hætti að
birgjar og aðrir lánardrottnar fái
allir sitt.“
VHE fær
greiðslu-
stöðvun
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
veruleika en töluverð alvara sé í þess-
um áformum því menn séu búnir að
leggja töluvert undir við gerð tillagn-
anna. Þá segir Guðni að tillögur séu
gjarnan unnar í samráði við viðkom-
andi sveitarfélög og því kunni að verða
auðveldara að koma þeim í fram-
kvæmd en annars hefði orðið. Allt eigi
þetta þó eftir að fara í gegnum
rammaáætlun.
„Þetta þarf að borga sig og við þurf-
um að sjá hver þróunin verður í raf-
orkusölu á Íslandi næstu árin. Þar eru
viðsjár. Allt byggist þetta á að eftir-
spurn sé eftir raforkunni. Þó búið sé að
byggja vindorkuver og það sé talið
arðbært þarf að finna því stað í raf-
orkukerfinu og fá afl á móti þegar
vindurinn blæs ekki,“ segir Guðni en
tekur fram að það geti verið kostur að
hafa vindorkuverin dreifð um landið
því það geti gert heildarafköstin jafn-
ari.
Allt að 250 MW vindorkuver
Zephyr Iceland er stórtækast í
vindorkunni, gerir tillögur að 10
virkjunum samtals með yfir 1100
MW afl. Inni í því eru þrjú orkuver
sem hvert fyrir sig er með 200-250
MW afl.
Quadran Iceland Developement
teflir fram níu vindorkuverum og
Langanesbyggð sex. Guðni orku-
málastjóri segir spurður um þetta að
skortur sé á rafmagni á Norðaust-
urlandi og það hamli uppbyggingu at-
vinnulífs, meðal annars á Þórshöfn,
og áhugi sveitarfélagsins á virkjunum
kunni að helgast af því.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Orkustofnun hefur nú afhent verkefn-
isstjórn fjórða áfanga rammaáætlunar
gögn um 43 nýja orkukosti til mats.
Þar eru áberandi vindorkuver um allt
land, alls 34 kostir með samtals 3.200
megavatta afli. Sjö
nýir kostir eru til-
kynntir í vatnsafli
og tveir í jarðhita.
Virkjanakost-
irnir sem afhentir
voru verkefnis-
stjórninni nú í
mars og apríl
koma til viðbótar
þeim kostum sem
voru í biðflokki við
afgreiðslu verk-
efnisstjórnar þriðja áfanga ramma-
áætlunar. Tekur Orkustofnun fram að
vegna þess að Alþingi muni ekki af-
greiða þriðja áfanga á yfirstandandi
þingi hafi frestur til skila á virkj-
anahugmyndum verið framlengdur
um óákveðinn tíma.
Þarf að vera eftirspurn
Guðni A. Jóhannesson orku-
málastjóri segir að margir kostir í
vatnsafli og jarðvarma séu í biðflokki í
3. áfanga rammaáætlunar og því komi
ekki á óvart að fáir nýir bætist við á
meðan 3. áfanginn er óafgreiddur.
Hins vegar komi þessi mikli áhugi á
vindorkunni um allt land svolítið á
óvart. Aðspurður segir hann ekki
raunhæft að öll vindorkuverin verði að
34 vindorkukostir kynntir
Fjöldi vindorkuvera til rammaáætlunar
Heimild: Orkustofnun
MW Fyrirtæki
Vindorka
Vindorkugarður
Garpsdal 88 EM Orka
Vindheimavirkjun 40 Fallorka
Hrútmúlavirkjun 85 Gunnbjörn
Reyðarárgarður 50
HS Orka Reykjanesgarður 100
Haukadalsgarður 100
Alviðra 30 Hafþórsstaðir
Búrfellslundur 120 Landsvirkjun
Viðvíkurheiði 50
Langanes-
byggð
Sauðanesháls 100
Brekknaheiði 110
Bakkaheiði 110
Sandvíkurheiðar-
garður 110
Langanesströnd 160
Butra 18
Quadran
Iceland
Devel.
Norðanvindur 34
Þorvaldsstaðir 45
Tjörn á Vatnsnesi 56
Foss í Hrunamannahr. 56
Múli í Borgarbyggð 73
Grímsstaðir 134
Sólheimar 151
Hnotasteinn 190
Nónborgir 100 VesturVerk
MW Fyrirtæki
Mýravirkjun 10
Zephyr
Iceland
Keldnavirkjun 30
Slýjavirkjun 75
Hrútavirkjun 75
Hálsvirkjun 75
Mosfellsheiðarvirkjun 2 75
Mosfellsheiðarvirkjun 1 75
Austurvirkjun 200
Klausturselsvirkjun 250
Lambavirkjun 250
Vindorka, samtals 3.225
Vatnsafl
Hamarsvirkjun 60 Hamarsvirkjun
Vatnsfellsstöð,
stækkun 55
LandsvirkjunSigöldustöð, stækkun 65
Hrauneyjafoss, stækkun 90
Tröllárvirkjun 14 Orkubú Vestfj.
Hvanneyrardals-
virkjun 13 VesturVerk
Skúfnavatnavirkjun 16
Vatnsafl, samtals 313
Jarðhiti
Ölfusdalur 50 OR
Bolaalda 100 Reykjavík Geothermal
Jarðhiti, samtals 150
Afl alls: 3.688 MW
Orkustofnun sendir 43 virkjanakosti til verkefnisstjórnar rammaáætlunar
Guðni A.
Jóhannesson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Unnið er að mati á því hvar best sé að
Fjarðarheiðargöng komi út á Fljóts-
dalshéraði og um leið mati á því hvort
hægt sé að beina hluta af þeirri miklu
umferð sem nú er um Egilsstaði
framhjá byggðinni. Þá stendur til að
skipa starfshóp á Seyðisfirði til að
undirbúa skipulag vegna tengingar
ganganna þeim megin heiðar.
Í upphafi vinnu við undirbúning
Fjarðarheiðarganga sem liggja munu
á milli Héraðs og Seyðisfjarðar voru
skilgreindir tveir munnar, annar við
Dalhús í Eyvindardal og hinn við
Miðhúsaá sem er við núverandi veg
niður af Fjarðarheiði. Göngin eru
svipuð að lengd, hvor kosturinn sem
valinn er, aðeins munar um 300 metr-
um.
Vegagerðin hallast að Dalhúsum í
sínum áætlunum en málið er þó enn í
samráðsferli með sveitarfélaginu.
Gísli Eiríksson, forstöðumaður jarð-
gangadeildar Vegagerðarinnar, segir
að þeim megin sé landið opnara og
auðveldara að leggja veg. Meira sé af
byggingum og skógi Miðhúsamegin
og því meira návígi.
Vilja létta á umferð
Starfshópur með fulltrúum allra
flokka sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs er að fara yfir val-
kosti tenginga við Egilsstaði til undir-
búnings breytinga á skipulagi. Björn
Ingimarsson bæjarstjóri segir stefnt
að því að hópurinn skili niðurstöðu til
bæjarstjórnar í lok mánaðarins.
Björn segir að mikil jákvæðni sé í
garð Fjarðarheiðarganga. Menn hafi
þó haft mismunandi sýn á veg- og
lagnatengingar. Þá hafi lengi verið
uppi umræða um að létta umferð á
Fagradalsbraut sem er hluti af hring-
veginum neðan af fjörðum og vegur-
inn frá Seyðisfirði tengist við og ligg-
ur þvert í gegnum Egilsstaði. Segir
Björn að ýmsum valkostum hafi verið
velt upp fyrr á árum og sé verið að
fara yfir þá í þessari vinnu.
Aðeins einn staður hefur verið í
umræðunni um gangamunna Seyðis-
fjarðarmegin, það er við Gufufoss.
Eigi að síður stendur til að bæjar-
stjórn skipi starfshóp með fulltrúum
allra flokka til að fara yfir legu gang-
anna og vegtengingu. Þar kemur
væntanlega til álita tenging við Seyð-
isfjarðargöng til Mjóafjarðar og það-
an áfram til Norðfjarðar sem er í
framtíðaráætlunum um jarðganga-
framkvæmdir.
Umhverfismat vega í sumar
Jarðfræðirannsóknum vegna
Fjarðarheiðarganga er lokið og skil-
greining ganga og hönnun er langt
komin. Gísli Eiríksson segir að stefnt
sé að því að forhönnun ljúki í vor
þannig að hægt verði að vinna að um-
hverfismati á vegtengingum og
skipulagi í sumar.
Fjárveitingar til framkvæmda eru
ekki klárar. Göngin eru á 2. og 3.
tímabili samgönguáætlunar en þó er
gert ráð fyrir byrjunarframlagi á
árinu 2024. Rætt hefur verið um að
flýta framkvæmdinni en ekkert ligg-
ur enn fyrir um það. Gísli segir að
miðað við gang undirbúnings ætti að
vera hægt að bjóða verkið út á árinu
2022 og hefja framkvæmdir á árinu
2023.
Fjarðarheiðargöng verða lengstu
veggöng landsins, 13,3 km að lengd,
rúmlega 2 km lengri en göngin tvenn
sem mynda Héðinsfjarðargöng.
Göngin munu leysa af hólmi fjölfar-
inn fjallveg sem er í um 620 metra
hæð á 10 km kafla. Auk umferðar
íbúa og almennra gesta er gífurleg
umferð á sumrin vegna farþegaferj-
unnar Norrænu sem siglir frá Dan-
mörku og Færeyjum til Seyðisfjarð-
ar. Þá eru þungaflutningar allt árið
vegna ferjunnar.
Skoða tengingu við Egilsstaði
Undirbúningi fyrir framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng miðar vel Sveitar-
félögin vinna að skipulagsmálum vegna vegtenginga Hægt væri að byrja 2023
Eskifjörður
Seyðisfjörður
Egilsstaðir
Reyðarfjörður
Neskaupstaður
Fyrirhuguð Fjarðarheiðargöng
Lengd, metrar Verklok
1 Fjarðarheiðargöng* 13.300
2 Héðinsfjarðargöng** 11.000 2010
3 Vestfjarðagöng*** 9.120 1996
4 Norðfjarðargöng 7.900 2017
5 Vaðlaheiðargöng 7.500 2018
Lengd, metrar Verklok
6 Fáskrúðsfjarðargöng 5.900 2005
7 Hvalfjarðargöng 5.770 1998
8 Dýrafjarðargöng**** 5.600 2020
9 Bolungarvíkurgöng 5.400 2010
Lengstu jarðgöng á Íslandi – núverandi og væntanleg
*Verk ekki hafi ð. **Samtals báðir leggir.
***Samtals þrír leggir. ****Áætluð verklok 2020.
2
4
5
6
7
8
9
1
3
Fjarðarheiðargöng
Með gangamunna
við Dalhús á Héraði
Miðhúsaá
Gísli Eiríksson Björn Ingimarsson
Sjálfsbjörg, landssamtök hreyfi-
hamlaðra, styðja þá hugmynd sem
Bílgreinasambandið hefur lagt fram
um að tollafgreiðslugengi verði fryst
til að liðka fyrir bílaviðskiptum í því
erfiða árferði sem nú er. Morgun-
blaðið greindi frá þessum hug-
myndum í gær, en lækkun krón-
unnar hefur kallað á hækkanir hjá
bílaumboðum um 4-5%.
Í bréfi formanns Sjálfsbjargar,
Bergs Þorra Benjamínssonar, til
velferðarnefndar Alþingis kemur
fram að efnahagsleg áhrif kór-
ónuveirufaraldursins komi illa niður
á fötluðu fólki sem þurfi að kaupa
sérútbúnar bifreiðar til að komast
ferða sinna. „Brýnt er að stjórnvöld
grípi til sértækra aðgerða til að-
stoðar þeim einstaklingum sem í
þessu lenda,“ segir í bréfinu og jafn-
framt að nýlegar verðbreytingar
geti þýtt hækkun upp á 1,3 milljónir
króna á hvern sérútbúinn bíl.
„Önnur leið sem er fær, er að
hækka umræddan styrk til bifreiða-
kaupa tímabundið um 600.000 kr. til
að koma til móts við þá sem standa í
bílakaupum á þessum fordæmalausu
tímum,“ segir enn fremur í bréfi
Bergs Þorra. hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýir bílar Dýrir fyrir fatlaða.
Hækka um
allt að 1,3
milljónir
Sérútbúnir bílar
fyrir fatlaða dýrir
Unnar Hjaltason