Morgunblaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Seljum og þjónustum frysti- og kælikerfi
Funahöfða 7 | 110 Reykjavík | Sími 577 6666
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerði
og flutning
Iðnaðar- einingar
mikð úrval
r sendi-
abíla
Kæli- &
frystiklefar
í öllum stærðum
Loftkælings-
& varmadælur
ÚR BÆJARLÍFINU
Reynir Sveinsson
Sandgerði
Kórónuveiran hefur komið víða
við hér í bæjarfélaginu, eins og
víða um heim, hér er bókasafnið
lokað og Íþróttahúsið. Allt starf
eldri borgara í Miðhúsum og heim-
sóknabann. Margir Sandgerðingar
starfa í flugstöðinni sem er einn
stærsti vinnustaður á landinu en
þar er ansi dauft yfir að líta nú um
þessar mundir. Þó að veiran sé
víða hefur mikið aukist að fólk fari
í gönguferðir um bæjarfélagið
enda eru víða malbikaðir göngu-
stígar. Vinna við glæsilegan göngu-
og hjólastíg milli Sandgerði og
Garðs gengur vel og er áætlað að í
maímánuði verði framkvæmdum
lokið.
Töluverð vinna hefur verið
hjá fyrirtækjum sem eru í fisk-
vinnslu, þar er gætt fyllsta öryggis
og starfsmönnum skipt í hópa,
sama á við á kaffistofum og í
matarhléi. Í Sandgerði eru 10 öflug
fiskvinnslufyrirtæki sem enn starfa
enda er gætt þess að smit komist
ekki þar inn. Það hafa verið góð
aflabrögð það sem af er árinu og
mikið borist í land af fiski sem að
sjálfsögðu þarf að vigta á Hafnar-
voginni, sem er orðin 24 ára gömul.
Vigtin er mikið stálvirki, 18 metra
löng og gerð fyrir að vigta 100
tonna farm, en nú hefur vigtin ver-
ið dæmd ónýt enda burðarvirki
hennar mikið ryðgað og tært. Búið
er að fjarlægja gömlu vigtina og á
næstu dögum verður sett ný og
fullkomnari vigt í stað þeirrar
gömlu. Nýja vigtin kostar um níu
milljónir króna, til að vigta afla
báta var fengin lítil pallavigt sem
var notuð víða um bryggjurnar.
Aflafrettir.is tóku saman hversu
mikið magn af fiski hefði verið
vigtað á vigtinni þessi 24 ár og er
það um 600 þúsund tonn.
Ólafur Þór Ólafsson, sem
hefur setið í bæjarstjórn í 18 ár,
hefur sagt sig úr bæjarstjórn þar
sem hann hefur verið ráðinn
sveitarstjóri á Tálknafirði, en Ólaf-
ur á ættir að rekja til Tálkna-
fjarðar. Ólafur er lærður stjórn-
sýslufræðingur, svo er hann mjög
fjölhæfur tónlistarmaður og á
örugglega eftir taka lagið á nýjum
stað. Ég óska Ólafi til hamingju
með nýja starfið og þakka fyrir
samstarfið frá því ég var í bæjar-
málunum með honum.
Á undanförnum árum hefur
verið góð aðsókn að tjaldsvæðinu.
Stór hluti gesta þar er útlendingar
sem oft eru að koma úr flugi eða
fara í flug. Að undanförnu hafa
staðið yfir framkvæmdir við þjón-
ustuhúsið, búið er að byggja stóran
sal þar sem tjaldgestir geta setið
inni og eldað eða grillað, þá er ver-
ið að breyta losunarstaðnum fyrir
húsbíla. Á svæðinu eru átta hús
sem hægt er að fá leigð, nú er bara
stóra spurningin: koma erlendir
ferðamenn ekki fyrr en í haust?
Það hefur oft í vetur verið
ófærð hér á skaganum og stórhríð
og vegir milli byggðarlaga lokaðir.
Vegna ófærðar hefur kostnaður
bæjarfélagsins aukist um 60 pró-
sent miðað við hvað fjárhagsáætlun
gerði ráð fyrir allt árið 2020. Tölu-
verðu af snjó var ekið á vörubílum
í sjóinn til að fá pláss á götunum.
Golfklúbbur Sandgerðis hef-
ur verið að láta byggja vandaða
240 fermetra tækjageymslu við
Kirkjubólsvöll með stuðningi Suð-
urnesjabæjar. Hið nýja hús leysir
af hólmi gamla hlöðu og fjós sem
eru frá fyrri hluta síðustu aldar.
Ekki hefur verið tekin ákvörðum
um hvað gert verður við gömlu
húsin. Menn eru þegar byrjaðir að
leika golf enda er völlurinn góður.
600 þúsund tonn hafa farið á vigtina
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Elsta húsið Efra Sandgerði, byggt 1883, er elsta húsið í bænum. Lionsklúbbur Sandgerðis hefur gert húsið upp.