Morgunblaðið - 18.04.2020, Qupperneq 20
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Nýr formaður Samtaka iðnaðarins
verður kynntur í lok mánaðarins en
tvö eru í framboði, Árni Sigurjóns-
son, yfirlögfræðingur Marels, og
Guðlaug K. Kristinsdóttir, stjórnar-
formaður Límtrés-Vírnets og Secur-
itas.
Löng hefð er fyrir því að SI til-
nefni formann samtakanna til stjórn-
arsetu í Lífeyrissjóði verslunar-
manna (LV), öðrum stærsta
lífeyrissjóði landsins. Guðrún Haf-
steinsdóttir, fráfarandi formaður, sit-
ur í stjórninni sem varaformaður og
gegndi áður stjórnarformennsku í
sjóðnum. Hið sama má segja um
fyrrverandi formenn samtakanna,
Svönu Helen Björnsdóttur, Helga
Magnússon og Vilmund Jósefsson.
Morgunblaðið spurði Árna og
Guðlaugu hvort þau hygðust taka
sæti í stjórn sjóðsins. Hvorugt
þeirra gefur afdráttarlaust svar þar
um.
„Ég sit í stjórn Júpíters [sjóða-
stýringarfélags í eigu Kviku banka]
og reglum samkvæmt má maður
bara sitja í stjórn eins fjármálafyr-
irtækis. Því kæmi stjórnarseta á
þessum tímapunkti ekki til greina.
Auk þess held ég að Guðrún [Haf-
steinsdóttir] hafi staðið sig vel og ég
veit ekki til þess að það séu nein
áform uppi um að hún hætti í stjórn-
inni,“ segir Guðlaug. Hún ítrekar
mikilvægi þess að ákvarðanir á vett-
vangi stjórna lífeyrissjóðanna séu
faglegar og að fólk með þekkingu á
starfsemi þeirra sé tilnefnt í stjórnir
þeirra.
Árni tekur í svipaðan streng og
segir stjórn Lífeyrissjóðs verslunar-
manna vel skipaða af hálfu atvinnu-
rekenda. „Ég hef ekki leitt hugann
að mögulegri stjórnarsetu af minni
hálfu. Ég hef einbeitt mér að þessu
formannskjöri en framkvæmdastjórn
Samtaka atvinnulífsins metur á
hverjum tímapunkti sem það á við
hverjir skipi stjórnarsæti fyrir
þeirra hönd í lífeyrissjóðum. Þar
hafa auk þess verið settar reglur af
stjórn SA sem innihalda viðmið, um
þekkingu, reynslu, kynjahlutfall,
lengd stjórnarsetu og hvernig aug-
lýst er eftir fólki sem reiðubúið er að
gegna trúnaðarstörfum fyrir sam-
tökin. Ég tel afar mikilvægt að
fylgja þeim viðmiðum.“
Líkt og áður greindi frá er Árni
yfirlögfræðingur Marel en ein
stærsta einstaka eign LV er hlutur í
Marel og um nýliðin áramót stóð
hann undir 4% af heildareignasafni
sjóðsins. Spurður út í mögulega
hagsmunaárekstra ef hann tæki sæti
í stjórn LV segir Árni að hann sé vel
meðvitaður um þá árekstra sem upp
gætu komið vegna þeirra starfa sem
hann gegnir.
„Ég tel í raun óþarft að velta
vöngum yfir þessu. Ég er hins vegar
meðvitaður um þessi tengsl og þau
eru uppi á borðum þannig að ég tel
litlar líkur á að það geti komið til
árekstra hvað þetta varðar,“ segir
Árni. Samtök iðnaðarins eiga fjár-
festingarsjóðinn Akk SI sem mikil
leynd hvílir yfir. Félagsmenn SI eru
t.d. ekki upplýstir um í hvaða fyr-
irtækjum sjóðurinn fjárfestir hér á
landi en gögn sem Morgunblaðið
hefur séð á síðustu árum sýna að
sjóðurinn hefur tekið stöður í stórum
iðnfyrirtækjum. Einu upplýsingarn-
ar sem liggja opinberlega fyrir um
sjóðinn koma fram í ársreikningum
SI þar sem afkoma sjóðsins er birt.
Samtökin neituðu að afhenda Morg-
unblaðinu ársreikninga fyrri ára með
þeim orðum að þeim væri aðeins
dreift á aðalfundum.
Spurð út í hvort þau muni auka
gagnsæi varðandi rekstur og fjár-
festingar Akks SI segja Guðlaug og
Árni að þau séu bæði fylgjandi
auknu gagnsæi þar sem koma megi
því við. Benti Guðlaug á að hún vissi
jafn lítið um sjóðinn og almenningur
þar sem hún sæti ekki í stjórn sam-
takanna. Hvorugt þeirra gaf þó af-
dráttarlaust svar um það með hvaða
hætti þau myndu auka gagnsæi
varðandi sjóðinn sem talinn er varð-
veita eignir upp á u.þ.b. fimm millj-
arða króna.
Vilja auka gagnsæi varð-
andi rekstur sjóðsins Akks
Fjölmennt Um 1.400 fyrirtæki eiga aðild að Samtökum iðnaðarins.
Ekki ljóst hvort nýr formaður SI tekur sæti í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna
Guðlaug Kristbjörg
Kristinsdóttir
Árni
Sigurjónsson
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
18. apríl 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 143.68
Sterlingspund 179.35
Kanadadalur 101.95
Dönsk króna 20.946
Norsk króna 13.65
Sænsk króna 14.249
Svissn. franki 148.62
Japanskt jen 1.3346
SDR 196.1
Evra 156.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.2325
Hrávöruverð
Gull 1717.85 ($/únsa)
Ál 1469.5 ($/tonn) LME
Hráolía 28.05 ($/fatið) Brent
● Meira en fimm
prósent íslenskra
heimila hafa nú
þegar gerst áskrif-
endur að norrænu
streymisþjónust-
unni Viaplay, sem
hóf starfsemi hér á
landi 1. apríl sl.
Í skriflegu svari
frá Viaplay við fyr-
irspurn Morgun-
blaðsins segir að vinsælasta efnið á
streymisveitunni hér á landi séu þátta-
raðirnar Love Me og Those who kill, en
þær eru báðar framleiddar af Viaplay.
Að meðtalinni norsku glæpa-
dramaþáttaröðinni Wisting séu þrjár
norrænar seríur nú á topp 10 á Íslandi.
Í svari Viaplay segir að þar á bæ séu
menn afar spenntir yfir þessum nýju
landvinningum streymisveitunnar, sem
nú nær til allra Norðurlandanna.
Eins og fram kom í samtali Viðskipta-
Moggans við Anders Jensen, forstjóra
NENT Group, móðurfélags Viaplay, mun
Viaplay innan tíðar einnig bjóða upp á
beinar útsendingar frá íþróttakapp-
leikjum, eða um leið og keppni hefst að
nýju vegna kórónuveirufaraldursins. Í
dag býður Viaplay upp á sjónvarpsþætti
og kvikmyndir frá Hollywood og gott úr-
val af norrænu efni. tobj@mbl.is
Fimm prósent þjóð-
arinnar með Viaplay
Streymi Úr þátt-
unum Love Me.
STUTT
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Öll stóru bílaumboðin íslensku nema
eitt hafa hækkað verð á nýjum bílum
í þessum mánuði vegna gengislækk-
unar íslensku krónunnar á árinu. Í
gær var sagt frá því í Morgunblaðinu
að nýir Toyota- og Lexusbílar hefðu
hækkað í verði um 5% hinn 1. apríl og
Brimborg hefði hækkað verð nýrra
bíla um 4-5% í byrjun mánaðarins.
Eina umboðið sem ekki ætlar að
hækka verð er Bílabúð Benna.
Benedikt Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna,
segir í samtali við Morgublaðið að sér
þyki það galin hugmynd að hækka
verð á bílum á lager, sem eru nú þeg-
ar á landinu, í miðjum heimsfaraldri.
Nú verði allir að leggjast á eitt.
„Við höfum í samvinnu við okkar
birgja náð að halda verði á nýjum bíl-
um óbreyttu. Við höfum alltaf lagt
metnað okkar í að standa verðlags-
vaktina. Þrátt fyrir óhagstæða geng-
isþróun undanfarið höfum við ekki
hækkað verð á nýjum bílum,“ segir
Benedikt. „Þetta er okkar framlag til
verðstöðugleika og þannig léttum við
undir með því fólki sem er í bíla-
hugleiðingum.“
Hjá útibúi Tesla á Íslandi fengust
þær upplýsingar að verð hefði hækk-
að um 5%.
Úlfar Hinriksson, framkvæmda-
stjóri Suzuki-umboðsins, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að verð á nýj-
um Suzuki-bílum hafi hækkað um 5%
í byrjun apríl, en segir, rétt eins og
Egill Jóhannsson, forstjóri Brim-
borgar, sagði í Morgunblaðinu í gær,
að hækkunin hefði þurft að vera hátt
í 10-12% vegna óhagstæðrar geng-
isþróunar. „Ég hef trú á að almenn-
ingur fari að kaupa bíla bráðum til að
ferðast á innanlands í sumar, hvort
sem er notaða eða nýja.“
Notaðir bílar hækka ekki
Jón Trausti Ólafsson, forstjóri
Öskju, segir í skriflegu svari til
Morgunblaðsins að Askja hafi hækk-
að verðlista bíla um 3-6% að jafnaði,
en það sé töluvert undir þeirri veik-
ingu sem átt hafi sér stað á gengi
krónunnar. Hann segir að verðhækk-
unin hafi verið óhjákvæmileg í ljósi
veikingar krónu. „Á sama tíma hafa
notaðir bílar ekki hækkað í verði enn
sem komið er og því eru góð kaup í
þeim þessa dagana. Sala hefur enda
verið góð í notuðum bílum bæði í
mars og apríl,“ segir Jón Trausti.
Erna Gísladóttir, forstjóri BL, seg-
ir að verðhækkun umboðsins, sem
átti sér stað um síðustu mánaðamót,
hafi verið 4-6%, mismunandi eftir
merkjum. Eins og aðrir segir hún að
hækkunin hefði þurft að vera meiri
vegna gengislækkunarinnar. Um söl-
una almennt segir hún að þó að sala
hafi almennt dregist saman vegna
ástandsins hafi sala rafbíla minnkað
minnst.
Friðbert Friðbertsson, forstjóri
Heklu, segir að Hekla hafi hækkað
verð um 4-6%, mismunandi eftir teg-
undum. Hann telur að fólk sýni verð-
hækkununum skilning. „Bílarnir eru
keyptir í erlendri mynt og krónan
hefur veikst töluvert.“
Rétt eins og í BL hefur sókn í raf-
bíla aukist á árinu hjá Heklu. Þá seg-
ir Friðbert að mikil umferð sé um
heimasíðu fyrirtækisins og margar
fyrirspurnir berist.
Morgunblaðið/Golli
Bílar Verð á notuðum bílum stendur
í stað en nýir bílar verða dýrari.
Benni hækkar ekki verðið
Öll bílaumboðin nema eitt hafa hækkað verð nýrra bíla Mestur áhugi á rafbílum
Telja að almenningur muni kaupa notaða bíla eða nýja til að ferðast á innanlands
Fyrirkomulag formanns- og
stjórnarkosninga í Samtökum iðn-
aðarins er með því móti að þær
fara fram rafrænt dagana 14.-29.
apríl. Niðurstöður þeirra verða
kynntar á rafrænum aðalfundi 30.
apríl. Framboðsfrestur rann út 16.
mars. Í ár er kosið um formann og
fimm sæti í aðalstjórn. Hver fé-
lagsaðili hefur atkvæði í hlutfalli
við greidd félagsgjöld síðasta árs
og er eitt atkvæði af hverjum
1.000 krónum sem greiddar hafa
verið. Félagsgjald í Samtökum iðn-
aðarins er reiknað út frá veltu
þeirra fyrirtækja sem aðild eiga.
Félagsgjald getur þó aldrei num-
ið meira en 0,15% af veltu liðins
árs. Samkvæmt upplýsingum frá
SI fer ekkert fyrirtæki með meira
en 3% atkvæðamagns í kosning-
unum sem nú standa yfir. Í ein-
hverjum tilvikum fara þau meist-
arafélög sem aðild eiga að
samtökunum með atkvæðisrétt
fyrir þau fyrirtæki sem aðild eiga í
gegnum þau. Fyrirtækin geta þó,
óski þau þess, ráðstafað eigin at-
kvæðum án atbeina viðkomandi
meistarafélags.
Ekkert fyrirtæki yfir 3%
MEISTARAFÉLÖG FARA MEÐ ATKVÆÐI FYRIRTÆKJA