Morgunblaðið - 18.04.2020, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Tilraunir með veirulyf vekja vonir
Íbúar í New York beri andlitsgrímu í fjölmenni Dauðsföll í Wuhan 50% fleiri en áður var kunnugt
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Hlutabréf í bandaríska lyfjafyrir-
tækinu Gilead Sciences ruku upp í
gær þegar fréttir bárust af því að til-
raunir á vegum þess með lyf við Co-
vid-19 hefðu borið góðan árangur.
Hafði 125 sjúklingum með sjúkdóm-
inn í Chicago verið gefið lyfið Rende-
sivir og virtust þeir allir hafa náð
heilsu á ný innan viku. Sérfræðingar
vara þó við ótímabærri bjartsýni.
Áfram þurfi að fylgjast með sjúkling-
unum og ekki hafi verið notast við
samanburðarhóp í tilrauninni, þannig
að alvarlegar skekkjur gætu verið í
henni.
fjárveitingar til Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, WHO, sætir enn
harðri gagnrýni. Þingmenn úr röðum
repúblikana hafa reifað þá hugmynd
að framkvæmdastjóri WHO verði lát-
inn víkja og þá sé hægt að opna fyrir
fjárveitingar að nýju.
Í Bandaríkjunum hafa kenningar
um að nýja kórónuveiran hafi upp-
haflega verið búin til á veirurann-
sóknarstofu í Wuhan og sloppið það-
an fyrir mistök fengið byr undir
vængi með atfylgi hægrisinnaðra
fréttamiðla. Vísindamenn og sér-
fræðingar í veiruöryggi segja aftur á
móti að ekkert hafi komið fram við
rannsóknir á veirunni sem bendi til
þess að þetta eigi við rök að styðjast.
veiran tekið jafnstóran toll og þar.
Hafa samkomubann og aðrar tak-
markanir í borginni verið framlengd-
ar til 15. maí. Trump forseti féll á
fimmtudaginn frá fyrirætlunum um
að gefa bindandi fyrirmæli alríkis-
stjórnarinnar til sambandsríkjanna
um hvenær takmörkunum skyldi af-
létt. Gaf stjórn hans aðeins út leið-
beiningar um hvernig staðið skyldi að
verki en fól ríkisstjórunum að ákveða
tímasetningar. Leiðbeiningarnar
hafa fengið misjafnar undirtektir. Er
m.a. bent á að þær taki ekki nægilega
mið af því hve skimunum sé enn áfátt
og að mikill skortur sé á hlífðarbún-
aði fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Ákvörðun Trumps um að frysta
Fréttir gærdagsins um að 50%
fleiri hefðu látist af völdum veirunnar
í Wuhan í Kína en áður hafði verið
gefið upp urðu til þess að auka enn
vantraust á vinnubrögð kínverskra
stjórnvalda. Meðal þeirra sem sögðu
að Kínverjar hefðu ekki verið nægi-
lega hreinskilnir frá upphafi var
Macron Frakklandsforseti. Kína-
stjórn vísar öllu slíku á bug og segir
eðlilegar skýringar á því að dauðsföll
í borginni voru vantalin.
Gefin hafa verið út fyrirmæli um að
allir íbúar New York beri andlits-
grímu í fjölmenni þar sem ekki er
hægt að koma við tveggja metra regl-
unni, svo sem í neðanjarðarlestum.
Hvergi vestanhafs hefur kórónu-
AFP
New York Íbúi á Long Island sótt-
hreinsar heimsend matvæli .
Emmanuel Macron, forseti Frakk-
lands, segir að kórónuveirufaraldur-
inn sé ógn við tilveru mannkyns og
heimurinn verði ekki samur aftur þótt
takist að hemja veiruna. Þetta kemur
fram í viðtali við hann sem Financial
Times birti í gær.
Flestir aðrir þjóðarleiðtogar hafa
lagt áherslu á að veröldin verði á ný
eins og hún var að faraldrinum lokn-
um. Macron segir aftur á móti að
hugsa þurfi hlutina upp á nýtt.
Forseti Frakklands kveðst vonast
til þess að hinar efnaðri þjóðir dragi
þann lærdóm af atburðunum að þær
þurfi sameiginlega að styðja hinar
veikari svo þær geti reist sig við. Hann
vonast til þess að hremmingarnar,
sem fengið hafa stjórnvöld um heim
allan til að setja mannslíf ofar hag-
vexti, marki upphaf að því að tekið
verði fyrir alvöru á þeirri umhverfis-
ógn og því félagslega misrétti sem áð-
ur hafi verið farið að stefna jafnvægi í
samskiptum ríkja heims í tvísýnu.
Macron dregur hins vegar ekki dul á
að hann hefur áhyggjur af því af þetta
verði ekki raunin, heldur muni lokun
landamæra, truflanir á efnahagslegri
starfsemi og minna traust á lýðræði
verða vatn á myllu valdsækinna afla
og lýðskrumsflokka sem reynt hafa
að notfæra sér ástandið eins og dæmi
frá Ungverjalandi til Brasilíu sýna.
Í viðtalinu kynnir Macron hug-
myndir um að hinar efnaðri þjóðir
Evrópusambandsins stofni neyðar-
sjóð og leggi í hann hundruð milljarða
evra til að styðja endurreisn atvinnu-
lífs og þjóðlífs á Ítalíu og Spáni. Fram
að þessu hafa hinar ríku þjóðir Norð-
ur-Evrópu verið mjög tregar til að
rétta þjóðunum í suðurhluta álfunnar
rausnarlega hjálparhönd. Macron vill
líka að ríkari þjóðir heims fallist á að
frysta skuldir Afríkuþjóða.
Macron segir að heimurinn
verði aldrei samur aftur
Taka þarf á umhverfisógn og misrétti eftir faraldurinn
AFP
Kórónuveiran Hugsa þarf hlutina
upp á nýtt segir Macron forseti.
Stjórnvöld í
Danmörku
hyggjast slaka
enn frekar á
bönnum og tak-
mörkunum sem í
gildi hafa verið
vegna kór-
ónuveirufarald-
ursins. Margir
skólar á öllum
stigum hafa þeg-
ar hafið starfsemi á nýjan leik og eft-
ir helgi verður heimilt að hafa rak-
ara- og hárgreiðslustofur opnar og
einnig húðflúrsstofur. Þá verður
ökukennsla hafin á ný.
„Enginn vill búa við lokanir degi
lengur en nauðsyn krefur,“ segir
Mette Frederiksen, forsætisráð-
herra Danmekur, en bætir við að
ekki megi slaka of hratt á svo stjórn-
völd missi ekki tökin á útbreiðslu
faraldursins.
Dómstólar munu næstu daga taka
fyrir fleiri mál en undanfarnar vikur
þegar aðeins mjög alvarleg mál hafa
komið til kasta þeirra.
Gagnrýnt hefur verið að ekki hafi
fylgt nægilegar leiðbeiningar frá
stjórnvöldum þegar heimilað var að
opna skólana að nýju. Hafa nokkur
sveitarfélög því tekið sér lengri tíma
til undirbúnings áður en opnað verð-
ur.
Tilslakanir vegna kórónuveir-
unnar hafa verið kynntar í fleiri
Evrópulöndum, m.a. í Finnlandi,
Austurríki, Ítalíu, Þýskalandi og á
Spáni.
Frekari til-
slakanir í
Danmörku
Mette
Frederiksen
Börn í biðröð í fátækrahverfi borgarinnar Sec-
underabad á Indlandi rétta út hönd til að tryggja
tveggja metra bilið sem áskilið er í baráttunni
við kórónuveiruna. Þarna biðu þau þolinmóð í
gær eftir að fá daglegan matarskammt frá æsku-
lýðssamtökunum Bolo Shankar. Nær 14 þúsund
tilfelli kórónuveirusmits hafa verið staðfest í
landinu og um 500 dauðsföll. Ekki er víst að það
séu áreiðanlegar tölur.
Tveggja metra bil í biðröð eftir mat
AFP
Kórónuveirufaraldurinn á Indlandi
Halla
Lögg. fast.
659 4044
Ólafur
Sölu- og
markaðsstjóri
690 0811
Ellert
Sölustjóri
661 1121
Sigþór
Lögg. fast.
899 9787
Hafrún
Lögg. fast.
848 1489
Bárður
Sölustjóri
896 5221
Elín Urður
Lögg. fast.
690 2602
Elín Rósa
Lögg. fast.
773 7126
Lilja
Sölufulltrúi
820 6511
Kristján
Sölufulltrúi
691 4252
Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is