Morgunblaðið - 18.04.2020, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 18.04.2020, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020 33 Staða skólastjóra Djúpavogsskóla er laus til umsóknar. Djúpavogshreppur auglýsir starf skólastjóra Djúpavogsskóla. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leiða skólann inn í framtíðina samkvæmt gildandi skólastefnu sveitarfélagsins. Djúpavogsskóli er heildstæður sameinaður grunn- og tónskóli með ríflega 80 nemendur frá Djúpavogi og aðliggjandi dreifbýli.  Í Djúpavogshreppi eru u.þ.b. 500 íbúar. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið er að finna á heimasíðunni sveitarfélagsins: djupivogur.is Nýr skólastjóri þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. ágúst nk. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og Skólastjórafélags Íslands (SÍ). Næsti yfirmaður er sveitarstjóri. Umsóknarfrestur er nú framlengdur til 10. maí nk. Umsóknum skal skila á netfangið sveitarstjori@djupivogur.is. Með umsókn skal skila starfsferilskrá, nöfnum 2 umsagnaraðila, stuttri kynningu á umsækjanda og greinargerð þar sem umsækjandi gerir grein fyrir sýn sinni á skólamál og faglegri reynslu og getu sem nýtist í starfi. Frekari upplýsingar má finna á: djupivogur.is, undir liðnum „Þjónusta.“ Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Sveitarstjóri gefur fúslega frekari upplýsingar í síma 470-8700 og 843-9889 Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Réttur áskilinn til að hætta við ráðningu og/ eða auglýsa stöðuna að nýju. Helstu verkefni og ábyrgð: • Veita faglega forystu og leiða þróun skólastarfs í grunn- og tónskóla til framtíðar í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla, aðalnámskrá tónlistarskóla og lög og reglugerðir um grunn- og tónlistarskóla. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun. • Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins. • Hafa umsjón með daglegu starfi í lengdri viðveru sem er í boði fyrir 1.-3. bekk frá 13:10 – 16:00. Menntunar- og hæfnikröfur: • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara. Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða farsæl stjórnunarreynsla. • Færni og reynsla í starfsmannastjórnun, stefnumótun og áætlanagerð. • Hæfni og reynsla í að leiða þróun skólastarfs. • Framúrskarandi hæfni í samskiptum, jákvæðni og metnaður. • Reynsla í fjármálastjórnun kostur. Sérfræðingur á sviði líftækni eða lífverkfræði BioPol ehf., Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd óskar eftir að ráða sérfræðing á sviði líftækni, lífverkfræði eða einstakling með sambærilega menntun. Umsækjanda er ætlað að stunda rannsóknir á einfrumungum með hagnýtingu í huga. Einnig er viðkomandi ætlað að móta og byggja upp frekari rannsóknir á þessu sviði. Starfsstöð umsækjanda verður á Skagaströnd. Hæfniskröfur: • Meistara eða doktorspróf í fyrrgreindum fræðigreinum. • Reynsla af rekstri og uppsetningu rannsóknaverkefna. • Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl nk. Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um menntun, starfsreynslu og meðmælendur berist í pósti til BioPol ehf., Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd eða á netfangið halldor@biopol.is Nánari upplýsingar Halldór G. Ólafsson halldor@biopol.is framkvæmdastjóri í síma 452-2977 eða 896-7977 Faxaflóahafnir sf. auglýsa laust til umsóknar starf hafnarstjóra. Hafnarstjóri er framkvæmdastjóri Faxaflóahafna, ber ábyrgð á daglegum rekstri og leiðir starfsemi Faxaflóahafna í samráði við stjórn. Hlutverk hans er að stuðla að stöðugum umbótum í takt við framsækna og nútímalega hafnarþjónustu. Leitað er að leiðtoga með gott orðspor, getu til að takast á við margvíslegar aðstæður og brennandi áhuga á verkefnum Faxaflóahafna. HAFNARSTJÓRI Ábyrgðarsvið hafnarstjóra • Daglegur rekstur félagsins í umboði hafnarstjórnar • Yfirmaður allra starfsmanna Faxaflóahafna • Ábyrgð á að fjárhags- og fjárfestingaáætlun sé fylgt og ábyrgð á fjárreiðum félagsins • Samskipti og upplýsingagjöf til hafnarstjórnar • Samskipti við eigendur, sveitarstjórnir, ríkisvaldið og atvinnulífið • Vinnur störf sín að öðru leyti í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerða og samþykktir hafnarstjórnar Menntunar- og hæfnikröfur • Víðtæk reynsla af stjórnun og rekstri, þar með talið breytingastjórnun • Reynsla af stjórnun viðamikilla verkefna og áætlana • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi • Þekking á opinberri stjórnsýslu, hafnamálum, skipulags- og umhverfismálum æskileg • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri • Leiðtogahæfni og færni til að hvetja aðra til samstarfs og samvinnu • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum • Hæfni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti á íslensku og ensku. Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur Faxaflóahafnir sf. eru sameignarfélag í eigu fimm sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar sem er stærsti eigandinn, Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar, Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Faxaflóahafnir sf. eiga og reka fjórar hafnir, Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn, Akraneshöfn og Borgarneshöfn. Hjá fyrirtækinu vinna um 70 manns en Faxaflóahafnir sf. annast almenna hafnarþjónustu við skip og eiga m.a. fjóra dráttarbáta. Allar nánari upplýsingar má finna á www.faxafloahafnir.is Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl nk. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is.       

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.