Morgunblaðið - 18.04.2020, Síða 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
70 ára Ingibjörg ólst
upp í Kristnesi í Eyja-
firði en býr nú í Kópa-
vogi. Hún er sérhæfður
sjúkraliði og starfar á
hjúkrunarheimilinu
Seljahlíð.
Maki: Helgi Bjarnason,
f. 1953, blaðamaður við Morgunblaðið.
Börn: Fanney, f. 1970, Hafdís, f. 1976,
Bjarni, f. 1977, og Friðrik, f. 1982. Barna-
börnin eru níu.
Foreldrar: Kolfinna Gerður Pálsdóttir, f.
1924, húsmæðrakennari og Friðrik Krist-
jánsson, f. 1926, d. 2016, hús-
gagnasmíðameistari. Þau voru búsett í
Eyjafirði en Kolfinna dvelur núna á Hjúkr-
unar- og dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri.
Ingibjörg Friðriksdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er aðdáunarvert að fara vel með
fé en að halda of fast í eitthvað, sama hvað
það er, hefur þveröfug áhrif. Vertu óhrædd/
ur við að segja fólki að þér þyki vænt um
það.
20. apríl - 20. maí
Naut Þetta er fullkominn dagur til að breyta
mataræði þínu og venjum í hreyfingu. Hikaðu
ekki við að þiggja það sem að þér er rétt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þér finnist margt á móti þér
skaltu varast að bregðast of harkalega við.
Fjarvera þín eða annríki eykur áhuga ein-
hvers á þér til muna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Yfirstandandi ágreiningur gæti kom-
ið róti á heimilislífið. Hertu upp hugann því
breytingarnar munu að öllum líkindum verða
til bóta.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hugsanlegt er að þú sjáir nýjar leiðir til
þess að fá leyfi, aðstöðu, stuðning, fé eða
tæki til þess að sinna vinnunni þinni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Búðu þig undir að gamall vinur valdi
þér vonbrigðum. Þú ættir að reyna að hvíla
þig eitthvað í dag, því þú hefur satt að segja
gengið ansi nærri þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Fátt er skemmtilegra en góðar stundir í
faðmi fjölskyldunnar. Undirbúðu þig því
vandlega áður en þú segir hug þinn varðandi
viðkvæmt fjölskyldumál.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að gefa þér tíma til
þess að gaumgæfa fjármálin, þó ekki væri
nema til þess að tryggja að engar misfellur
séu fyrir hendi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú átt ekki í vandræðum með að
koma fyrir þig orði og nýtir vel þau tækifæri
sem bjóðast. Fólk er móttækilegt fyrir við-
ræðum um langtímalausnir á vandamálum
augnabliksins.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þörfin fyrir að gera sér glaðan
dag er allsráðandi. Gefðu þér tíma til að hafa
samband við vini og ættingja.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Samningaviðræður sem tengjast
fjármálum munu sennilega snúist þér í hag.
Ekki láta deigan síga.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Beittu verksviti þínu því þú hefur nóg
til þess að leysa þau verkefni sem þér hafa
verið falin. Viðbrögð og athugasemdir koma
til hjálpar þegar verið er að taka ákvarðanir.
„Eftirminnilegastar eru forseta-
kosningarnar 2016. Þá gerðist allt
svo hratt, frá því að vera hugmynd
sem var ólíkleg í það að Guðni og
Eliza, vinir okkar hjóna, eru nú bú-
in að sitja á Bessastöðum í tæp
fjögur ár og munu vonandi sitja í
a.m.k. fjögur enn.“
hef alltaf notið þess að vera í kring-
um fólk, starfa með ólíkum aðilum
og koma að fjölbreyttri miðlun upp-
lýsinga,“ segir Friðjón.
Friðjón hefur komið að hátt í
fimmtíu kosningabaráttum í gegn-
um tíðina með einum eða öðrum
hætti.
F
riðjón Reynir Friðjóns-
son er fæddur 18. apríl
í Reykjavík og ólst upp
í Fossvogi. Hann gekk
í Fossvogsskóla og
Réttarholtsskóla og lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum við Sund
árið 1991. Hann var skiptinemi í
Sycamore High School í Sycamore í
Illinois-ríki í Bandaríkjunum 1987
til 1988. Friðjón stundaði nám í
stjórnmálafræði og heimspeki við
Háskóla Íslands og skiptinám við
Háskólann í Baskalöndum.
Árið 1999 hóf hann störf sem vef-
forritari og starfaði í tækni-
geiranum til 2002, þegar hann hóf
störf sem vefstjóri hjá dómsmála-
ráðuneytinu. Eftir fimm ár í ráðu-
neytinu söðlaði Friðjón um og flutti
búferlum til Bandaríkjanna, þar
sem hann starfaði sem ráðgjafi í
upplýsingatækni og upplýsinga-
miðlun um þriggja ára skeið. Þegar
heim var komið starfaði Friðjón við
almannatengsl og varð síðar
aðstoðarmaður Bjarna Benedikts-
sonar um skeið. Hann er í dag
framkvæmdastjóri almannatengsla-
fyrirtækisins KOM, sem hann
keypti í ársbyrjun 2014 ásamt
meðeigendum sínum.
Friðjón hefur alla tíð verið virkur
í hvers kyns félagsstarfi. Hann var
í stjórn og var varaformaður Vöku,
félags lýðræðissinnaðra stúdenta,
og hefur verið virkur í starfi
Sjálfstæðisflokksins um langt skeið.
Hann hefur setið í miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins frá 2012, sat í
stjórn Heimdallar og stjórn SUS og
var varaformaður Sambandsins í
tvö ár. Hann hefur verið í stjórnum
hverfafélaga Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík og stjórnum málefna-
nefnda. Friðjón sat einnig í stjórn
Heimssýnar á árunum 2004 til
2007. Þá hefur hann um árabil
verið álitsgjafi fjölmiðla um banda-
rísk stjórnmál.
„Það lá beint við að ég færi í al-
mannatengslin, enda hef ég starfað
við þau með einum eða öðrum hætti
nær alla tíð. Í félagsstörfum var ég
alltaf í útgáfu og viðburðaverk-
efnum, í ráðuneytinu var skipulag
viðburða í mínum verkahring og ég
Friðjón hefur setið í stjórn Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands frá árinu
2015 og í stjórn Íslandsstofu frá
2019. Hann er formaður skóla-
nefndar Menntaskólans við Sund,
sat áður í skólanefnd Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti og var vara-
maður í stjórn ÍTR.
Áhugamál Friðjóns eru stjórn-
mál, ferðalög og knattspyrna. Hann
er ákafur stuðningsmaður knatt-
spyrnufélagsins Vals, eins og allir í
föðurfjölskyldu hans, og var for-
maður knattspyrnudeildar félagsins
frá 2010 til 2012.
„Ég fór mikið á völlinn með
pabba, við misstum varla af heima-
leik Vals og aldrei af landsleik. Í
því liggja dýrmætar minningar,“
segir Friðjón.
Hann kynntist eiginkonu sinni,
Elizabeth B. Lay, þegar þau voru
bæði skiptinemar í San Sebastian á
Spáni árið 1997. Þau fögnuðu 18
ára brúðkaupsafmæli á páskadag.
Fjölskylda
Eiginkona Friðjóns er Elizabeth
B. Lay, f. 23.7. 1976, arkitekt og
doktorsnemi í uppeldisfræðum við
HÍ. Þau eru búsett í Reykjavík.
Foreldrar Elizabeth eru hjónin Joe,
f. 7.1. 1936, og Kathy Lay, f. 14.8.
1948, búsett í Wichita í Kansas í
Friðjón R. Friðjónsson framkvæmdastjóri – 50 ára
Fjölskylda Friðjóns Foreldrar, systkinin, makar og börn þeirra. Myndin er
tekin árið 2013 þegar Atli mágur Friðjóns varð sextugur.
Almannatengslin lágu beint við
Feðgarnir Síðasta myndin af þeim feðgum saman, Friðjóni R. og Friðjóni B.,
tekin á landsleik Íslands og Albaníu 8. júní 2019.
Hjónin Elizabeth og Friðjón í San
Sebastian þar sem þau kynntust.
30 ára Sigríður ólst
upp í Dæli í
Fnjóskadal en býr í
Lundi í Fnjóskadal.
Hún er grunnskóla-
kennari að mennt
og kennir við Stóru-
tjarnaskóla.
Maki: Sindri Geir Óskarsson, f. 1991,
sóknarprestur í Glerárkirkju á Akur-
eyri.
Börn: Aðalgeir Hannes, f. 2013, Mar-
grét Lilja, f. 2015, og Egill, f. 2019.
Foreldrar: Geir Árdal, f. 1957, bóndi
í Dæli, og Margrét Bjarnadóttir, f.
1959, hjúkrunarfræðingur á Hjúkr-
unar- og dvalarheimilinu Hlíð á Akur-
eyri.
Sigríður Árdal
Til hamingju með daginn
Lundur, Þingeyjarsveit Egill Árdal
fæddist 11. apríl 2019 á sjúkrahúsinu á
Akureyri. Hann vó 4.772 g og var 54,5
cm langur. Foreldrar hans eru Sigríður
Árdal og Sindri Geir Óskarsson.
Nýr borgari