Morgunblaðið - 18.04.2020, Side 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00
Mikið úrval af
KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM
fyrir allar gerðir bíla
Bandaríkjunum, þau áttu og ráku
lengst af veitingastað á Hilton
Head.
Dætur Friðjóns og Liz eru Karit-
as Telma Zhen Friðjónsdóttir, f.
3.9. 2003, menntaskólanemi, og Hel-
ena Marín Ying Friðjónsdóttir, f.
25.1. 2006, grunnskólanemi.
Systkini Friðjóns eru Lára
Gunnvör, f. 23.7. 1960, hjúkrunar-
fræðingur í Malmö í Svíþjóð, einnig
búsett í Riyadh í Sádi-Arabíu, og
Birgir Örn, f. 19.2. 1964, fram-
kvæmdastjóri, búsettur í Reykja-
vík.
Foreldrar Friðjóns: Hjónin Frið-
jón B. Friðjónsson, f. 4.9. 1936, d.
10.7. 2019, fjármálastjóri Vélsmiðj-
unnar Héðins, og Guðbjörg Svana
Runólfsdóttir, f. 6.3. 1940, fv. skrif-
stofumaður í Fósturskólanum og
KHÍ. Hún er búsett í Garðabæ.
Friðjón R.
Friðjónsson
Valgerður Jóhannesdóttir
húsfreyja á Lómatjörn
Guðmundur Sæmundsson
bóndi á Lómatjörn í
Höfðahverfi
Lára Guðmundsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Runólfur Kjartansson
kaupmaður í Rvík
Svana Runólfsdóttir
fv. skrifstofumaður,
bús. í Garðabæ
Oddný Runólfsdóttir
húsfreyja í Skál
Kjartan Ólafsson
bóndi í Skál á Síðu
Valgerður Sverrisdóttir
fv. alþm og ráðherra
Jón Kjartansson, fv. ritstjóri
Morgunblaðsins, alþm. og sýslumaður
Valgarð Runólfsson
skólastjóri í Hveragerði
Bjarni Guðbjörnsson
alþm. og bankastjóri
Gunnar Þór Bjarnason
sagnfræðingur
Sverrir Guðmundsson
bóndi á Lómatjörn
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja í Hléskógum í Höfðahverfi
Valgarður Egilsson
yfirlæknir og rithöfundur
Kristjana María Ágústa
Guðmundsdóttir
vinnukona í Reykjavík
Halldór Jónsson
bóndi í Þorlákshöfn,
Helli og Árbæ í Rvík
Gunnvör Gísladóttir
húsfr. og starfsm. Sundhallarinnar
Friðjón Guðbjörnsson
vélstjóri og Sundhallarvörður í Rvík
Jensína Jensdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðbjörn Guðbrandsson
bókbindari í Reykjavík
Úr frændgarði Friðjóns R. Friðjónssonar
Friðjón B. Friðjónsson
fjármálastjóri
Vélsmiðjunnar Héðins, bjó
í Rvík og síðar Garðabæ
„MIKIÐ ER NÚ GOTT AÐ GETA LOKSINS
RÆTT MÁLIN ÁN ÞESS AÐ GRIPIÐ SÉ
STÖÐUGT FRAM Í FYRIR MANNI.”
„ÞETTA ER HEIMABAKAÐ BRAUÐ! VILTU
TVÆR SNEIÐAR?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar forlögin grípa í
taumana.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SJÁÐU ÞETTA
FALLEGA
SÓLARLAG!
ÓKEI
ÞAÐ ER
ÞARNA
SEGÐU ÞVÍ AÐ
FÆRA SIG
TAKTU ÞENNAN POKA OG
HIRTU UPP EFTIR SNATA!
HVERS VEGNA Á ÉG AÐ
GERA ÞAÐ?
ÞAÐ AÐ SKILJA EFTIR HUNDASKÍT Á
GÖTUNUM ER SÓÐASKAPUR!
LÁTTU MIG ÞÁ
FÁ EINN POKA Í
VIÐBÓT …
ÉG GÆTI
ÆLT!
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Höfðinginn í hópnum er.
Hann er smiður valinn.
Margur hallt það maður ber.
Mesta skáld er talinn.
Eysteinn Pétursson á þessa
lausn:
Höfuðpaurnum hlýða ber.
höfuð naglans á skal slá.
Höfði á kodda höllum vér.
Höfuðskáldin lesa á.
Baldur Hafstað svarar:
Ættarhöfuð hér ég sá,
og höfuðsmiðinn fróða,
höfuðið reyndar hallt bar þá
höfuðskáldið góða.
Eysteinn Pétursson svarar:
Höfuðpaurnum hlýða ber.
höfuð naglans á skal slá.
Höfði á kodda höllum vér.
Höfuðskáldin lesa á.
Þessi er lausn Helga R. Ein-
arssonar:
Höfuð ættar hérna fer,
höfuðsmiðurinn af ber,
á mörgum hallt víst höfuðið er,
höfuðskáldin líkar mér.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Hann mun vera höfuðpaur.
Höfuðsmiður valinn.
Margur hallt ber höfuð gaur.
Höfuðskáld er talinn.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Höfuð yfir hópnum er.
Höfuðsmiður valinn.
Höfuð maður hallt sá ber.
Höfuðskáld er talinn.
Þá er limra:
Hvern dag yfir ljóðagerð lá’ann
og lýðhylli mikla sér ávann,
en samt ekki par
neitt vit í þeim var,
enda vantaði höfuðið á’ann.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Nú vitjar oss vorið að nýju
með vinda úr suðrinu hlýju
og sólskin og söngfugla káta,
og svo er hér dálítil gáta:
Á flóttanum herði ég hana.
Í hægð svona dóla af vana.
Í sjónum ég sá hana flana.
Þar seggir á fannbreiðu spana.
Gömul vísa í lokin:
Viltu í nefið, vinur, fá,
veit ég kvefið minnkar þá.
Mærðarstefið mitt skal tjá:
Mér var gefið baukinn á.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stór höfuð eru
oft stórhuga