Morgunblaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Í byrjun mars sá ég knatt-
spyrnuleik á Möltu. Ég fór nú
bara á leikinn mér til ánægju og
var ekki sendur af Mogganum til
að fjalla um hann. Um var að
ræða leik í 8-liða úrslitum í bik-
arkeppninni og var leikið á hlut-
lausum velli, þjóðarleikvang-
inum. Framlengja þurfti til að
knýja fram úrslit.
Í tapliðinu var markvörður sem
vakti fljótt athygli mína. Var með
ýmsa takta sem mér fannst ekki
traustvekjandi. Rauk út í fyrir-
gjafir og tímastillti úthlaupin illa.
Ef hann greip boltann lagðist
hann ávallt niður á eftir. And-
stæðingarnir skoruðu í fram-
lengingunni og komust áfram.
Markvörðurinn hafði virkað illa á
mig en ég hefði þó ekki getað
spáð því sem gerðist eftir að
flautað var til leiksloka.
Áhorfendafjöldinn á leikn-
um var ekki endilega há tala en
hörðustu stuðningsmennirnir
voru mjög háværir og fjörugir.
Eitthvað var markvörðurinn
ósáttur við sína stuðningsmenn
og gekk rakleiðis að girðingu
sem skildi að völlinn og áhorf-
endastúkuna þótt samherjarnir
reyndu að stöðva hann.
Þar lenti hann í heiftarlegu rifr-
ildi við heitustu stuðningsmenn
liðsins sem hann spilar fyrir. Ekki
mátti á milli sjá hvort þeir voru
æstari en leikmaðurinn en til að
gefa vísbendingu þá voru stuðn-
ingsmennirnir eins og trylltir ap-
ar í búri þegar markvörðurinn
var kominn í kallfæri við þá.
Samskipti sem þessi hef ég
bara ekki séð fyrr hjá leikmanni
og stuðningsmönnum sem ættu
að vera á sömu línu. Mér skilst
að markvörðurinn hafi fengið
eins leiks bann fyrir uppá-
komuna. En hann mátti teljast
heppinn að girðingin var á milli
þegar hann jós úr skálum reiði
sinnar yfir eigin stuðningsmenn.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
ÞÝSKALAND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Ég kom aftur út fyrir 4-5 dögum
eftir að hafa verið heima. Ég ætlaði
bara að vera í 3-4 daga heima eftir
landsliðsferðina á Spáni en ég end-
aði á að vera heima í um fjórar vik-
ur þar sem flugið mitt frestaðist
nokkuð oft,“ sagði Sara Björk Gunn-
arsdóttir, landsliðsfyrirliði í knatt-
spyrnu, í samtali við Morgunblaðið.
Sara leikur sitt fjórða tímabil með
Þýskalandsmeisturum Wolfsburg en
búið er að fresta öllum leikjum þar í
landi ótímabundið. Vonir standa til
að hægt verði að halda áfram með
tímabilið í maí og þá án áhorfenda.
Í sóttkví í Þýskalandi
„Liðið er ekki að æfa saman,
heldur í litlum hópum. Ég þarf hins
vegar að vera í sóttkví í tvær vikur
hérna úti og flestar þær sem komu
erlendis frá eru enn í sóttkví. Þetta
er svipað hjá mér eins og flestum,“
sagði Sara, sem fékk óvenjulangan
tíma heima með fjölskyldunni. Hef-
ur hún leikið sem atvinnumaður frá
2011, fyrst með Rosengård í Svíþjóð
og síðan Wolfsburg frá 2016.
„Ég var akkúrat að hugsa það um
daginn að þetta væri orðinn svolítið
langur tími. Það er ekki oft sem
maður fær svona mikinn tíma og
sérstaklega með fjölskyldu. Ég var
heppin að fá að hitta hana, því það
eru ekki allir sem geta það. Þetta
voru góðir tímar en ótrúlega skrítn-
ir tímar líka,“ sagði Sara.
Dugleg að æfa
Hún reynir að láta sér ekki leið-
ast í sóttkví og æfir heima um þess-
ar mundir. „Maður dundar sér og
svo er ég að æfa á hverjum degi. Ég
vakna í rólegheitunum og á mína
morgunstund, svo fer ég eftir pró-
grammi og er dugleg að æfa.“
Wolfsburg var með átta stiga for-
skot á Bayern München á toppi
þýsku deildarinnar þegar nánast öll-
um fótbolta í Evrópu var frestað og
þá var liðið komið í átta liða úrslit
bæði í Meistaradeild Evrópu og í
þýska bikarnum. Wolfsburg á að
mæta Glasgow City í átta liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar og B-
deildarliðinu Gütersloh í átta liða
úrslitum þýska bikarsins.
Hef saknað fótboltans
Sara og stöllur eru taplausar á
leiktíðinni og búnar að vinna 15 af
16 deildarleikjum en sex umferðum
er ólokið. Hún viðurkennir að það sé
svekkjandi að tímabilið hafi verið
stöðvað þegar liðið var á mikilli sigl-
ingu og spennandi leikir heima í
Þýskalandi og í Evrópu fram undan.
„Maður var orðinn spenntur fyrir
þessum fasa sem var að koma. Það
var mikið af leikjum fram undan í
bikar, deild og í Meistaradeildinni
sem var ótrúlega spennandi. Maður
áttar sig hins vegar betur á því á
þessum tímum að heilsan kemur
fyrst og fótboltinn fer aðeins til
hliðar. Á sama tíma hef ég saknað
fótboltans. Ég fór nokkrum sinnum
út á sparkvöll og fann að ég var al-
veg til í að fara að æfa og spila og
fara aftur í mína rútínu. Heilsan
kemur hins vegar fyrst og vonandi
batnar þetta núna og við getum
byrjað að æfa og spila sem fyrst,“
sagði landsliðsfyrirliðinn.
Framhaldið rosalega óljóst
Sara gaf það út í byrjun árs að
hún ætlaði að yfirgefa Wolfsburg í
sumar, þegar samningur hennar við
félagið rennur út. Hefur hún verið
orðuð við stórlið á borð við Barce-
lona, en vegna ástandsins í heim-
inum um þessar mundir, er fram-
haldið óljóst.
„Framhaldið er rosalega óljóst og
ég get ekki sagt neitt um það
núna. Það eina sem ég bíð eftir er
að fá að vita hvenær við getum
byrjað að æfa aftur svo verður
maður bara að taka stöðuna eftir
það. Það er ótrúlega skrítin tilfinn-
ing að vita ekki neitt og maður get-
ur ekki planað neitt. Maður veit
engar dagsetningar. Auðvitað er
það skrítin staða hjá mér að vera
samningslaus í sumar, en ég vona
að við getum byrjað að spila í byrj-
un maí, þá verður deildin fram-
lengd og þetta tekur aðeins lengri
tíma. Maður verður bara að sjá
hvernig þetta er sett upp og svo
tekur maður stöðuna út frá því,“
sagði Sara.
Vil klára og vinna titlana
Ekki er víst að hægt verði að
klára tímabilið áður en samning-
urinn hennar við þýska félagið
rennur út 30. júní, en hún einbeitir
sér að því að klára tímabilið með
Wolfsburg. Gæti samningurinn
verið framlengdur út tímabilið, ná-
ist ekki að klára það í tæka tíð.
„Ég vil klára mitt með Wolfsburg
þar sem við erum í bullandi séns að
taka þá titla sem eru í boði. Svo
verðum við að sjá til hvort samn-
ingurinn minn verður framlengdur
og hvort ég nái að klára það. Þetta
er óljóst, en ég hugsa að það verði
þannig.“
Spennandi landsliðstímar
Ef ekki væri fyrir heimsfaraldur
hefði Sara væntanlega verið ný-
komin heim til Þýskalands eftir tvo
landsleiki við Ungverjaland og Sló-
vakíu ytra í undankeppni EM 2021.
Ísland hefur unnið þrjá fyrstu leiki
sína í undankeppninni og er í bar-
áttu við Svíþjóð um efsta sæti
F-riðils.
„Það eru spennandi tímar með
landsliðinu og við ætluðum að klára
þessa undankeppni með tveimur úr-
slitaleikjum við Svíþjóð. Við eigum
að klára hina leikina. Vonandi get-
um við spilað þessa leiki og komið
okkur á EM,“ sagði Sara Björk.
Skrýtið að vita ekki neitt
og geta ekkert planað
Sara Björk vonast til að geta lokið tímabilinu þar sem Wolfsburg stendur vel
Ljósmynd/@vfl.wolfsburg.frauen
Sigursæl Sara Björk Gunnarsdóttir hefur orðið tvöfaldur meistari í Þýskalandi, unnið deildina og bikarinn, öll þrjú
árin hjá Wolfsburg og vonast eftir því að geta bætt við fjórðu tvennunni áður en hún fer frá félaginu.
Íris Björk Símonardóttir, landsliðs-
markvörður í handknattleik og
leikmaður Vals, hefur lagt skóna á
hilluna. Hún greindi frá í viðtali við
Stöð 2. Íris hefur verið einn besti
markvörður landsins um árabil og
var í vetur með um 44% mark-
vörslu. Á síðasta tímabili, 2018-19,
var hún kjörin besti leikmaður
deildarinnar en þá vann Valur alla
þrjá titlana sem í boði voru. Saga
Sif Gísladóttir er komin til Vals í
staðinn frá Haukum og á að leysa
Írisi af hólmi. Saga var með tæp-
lega 34 prósent markvörslu í vetur.
Íris Björk leggur
skóna á hilluna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðið Landsliðskonan Íris
Björk hefur lagt skóna á hilluna.
Ítalski knattspyrnumarkvörðurinn
Gianluigi Buffon ætlar að halda
áfram minnsta kosti eitt tímabil enn
þótt hann sé orðinn 42 ára. Buffon
kom aftur til Juventus síðasta sum-
ar eftir eitt ár með París SG, en
fram að því hafði hann varið mark
liðsins í átján ár og unnið með því
níu meistaratitla. Hann á að baki
656 leiki með félaginu og samtals
912 leiki á ferlinum en Buffon varði
fyrst mark Parma árið 1995, þá 17
ára gamall. Hann hefur ekki verið
aðalmarkvörður Juventus í vetur
en þó spilað ellefu leiki.
Gerir nýjan
samning 42 ára
AFP
Fyrirmynd Gianluigi Buffon er afar
vinsæll hjá stuðningsmönnum.
Ensku úrvalsdeildarfélögin í fót-
bolta eru áfram staðráðin í því að
ljúka yfirstandandi keppnistímabili
innan vallar og ræddu ekki þær
hugmyndir að því yrði að vera lokið
fyrir 1. júlí á fundi sínum í gær.
Fréttir hafa verið í gangi um að
mörg félaganna vildu nú að tíma-
bilinu yrði lokið fyrir þann tíma þar
sem þá renna út samningar fjöl-
margra leikmanna. Samkvæmt Sky
Sports var þetta hins vegar ekki
nefnt á fundinum sem haldinn var
með fjarfundabúnaði.
Talsmaður deildarinnar sagði við
Sky Sports að í umræðunni væru
margar og flóknar lausnir á vanda-
málinu sem hefði skapast vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar sem hef-
ur leikið Bretlandseyjar grátt
síðustu vikur. Ekkert yrði gert án
fulls samráðs við yfirvöld sem
myndu segja til um hvenær óhætt
væri að byrja að spila.
„Það er áfram okkar markmkið
að ljúka tímabilinu 2019-20 en sem
stendur er erfitt að ræða dagsetn-
ingar á meðan kórónuveiran er enn
þá í fullum gangi. Vegna faraldurs-
ins hefur úrvalsdeildin, félögin og
leikmennirnir, veitt samfélaginu og
heilbrigðisþjónustunni mikinn
stuðning og munu halda því áfram
eftir að keppnin fer í gang á ný,“
sagði talsmaðurinn sem var ónafn-
greindur.
Staðráðnir
í að ljúka
tímabilinu