Morgunblaðið - 18.04.2020, Side 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Markmiðið með diskinum var að
taka saman þverskurð af samstarfi
mínu við búlgarska harmóníkusnill-
inginn Borislav Zgurovski,“ segir
Haukur Gröndal, klarínettu- og
saxófónleikari, um geisladiskinn
Narodna Muzika – Balkan Impress-
ions sem hann hefur sent frá sér og
tileinkaður er Zgurovski sem fagn-
aði 50 ára afmæli sínu í mars 2019.
„Foreldrar Borislav gáfu honum
harmóníku þegar hann var sex ára.
Eftir mánuð var hann farinn að spila
Vínarvalsa á hljóðfærið sem hann
lærði að spila eftir eyranu og þá
ákváðu foreldrar hans að setja hann í
tónlistarskóla með það að markmiði
að gera hann að músíkant. Hann er
mjög vel að sér í ýmsum þjóðlagastíl-
um frá Balkansvæðinu og hann kann
utanbókar ógrynni af lögum. Við
þetta bætist að hann er mjög slyng-
ur útsetjari og vinnur í dag sem út-
setjari, upptökumaður, hljómsveit-
arstjóri og listrænn stjórnandi
þjóðarhljómsveitarinnar í Plovdiv
þar sem hann býr,“ segir Haukur og
bendir á að Plovdiv sé næststærsta
borg Búlgaríu. „Þarna fer sannur
virtúós,“ bætir Haukur við.
Tók mér opnum örmum
„Narodna Muzika þýðir einfald-
lega þjóðleg tónlist á búlgörsku,“
segir Haukur og rifjar upp að hann
hafi spilað undir merkjum Narodna
Muzika síðan 2006. „Markmið mitt
er og hefur frá upphafi verið að
freista þess að kynna suðaustur-
evrópska tónlistarstíla fyrir íslensk-
um tónlistarunnendum. Ég hef í
gegnum tíðina reynt að láta ekki
segja mér að einu menningar-
straumarnir af viti fyrir mig sem
Íslending séu af vestrænum toga.
Það getur verið vandasamt að halda
sig við efnið þar sem víða í kringum
okkur er því sem er utan hins vest-
ræna meginstraums ýtt til hliðar
sem óþarfa fyrir furðufugla, grúsk-
ara og bókabéusa,“ segir Haukur og
rifjar upp að tilurð Narodna Muzika
megi rekja til þess að hann kynntist
og hóf að starfa með Zgurovski.
„Árið 2006 dvaldi ég hjá Borislav
og nam hjá honum búlgarska þjóð-
lagatónlist. Hann tók mér opnum
örmum og það fór það vel á með okk-
ur að ég mátti til með að bjóða hon-
um hingað til Íslands í staðinn,“ rifj-
ar Haukur upp og bendir á að saman
hafi þeir farið í tónleikahringferð um
Ísland árið 2007. „Síðan hefur verið
mikið samstarf milli okkar og hann
hefur flækst inn í verkefni annarra
Íslendinga líka. Þetta hefur verið
kollektív Íslendinga, sem hafa haft
áhuga á að stúdera Balkanmúsíkina,
og Búlgara, sem hafa komið að þessu
verkefni í gegnum Borislav,“ segir
Haukur sem með hópi Íslendinga
hefur í gegnum árin spilað Balkan-
tónlist undir merkjum hljómsveit-
arinnar Skuggamyndir frá Býsans.
Vantaði betri jarðtengingu
Spurður hvað það sé við Balkan-
tónlistina sem heilli rifjar Haukur
upp að hann hafi kynnst tónlistinni
fyrir tæpum 20 árum. „Frá því ég
var unglingur stúderaði ég djass-
músík á saxófón og klarínett. Ég var
hins vegar alltaf að leita að einhverju
sem myndi jarðtengja mig á ein-
hvern hátt,“ segir Haukur og tekur
fram að hann hafi fundið sterka
tengingu við alþýðutónlist. „Mér
fannst margt í nútímalegum djass-
formum snúast of mikið um einstak-
lingana og færni þeirra í stað þess að
snúast um að miðla sameiginlegum
tónlistararfi sem enginn einn getur
átt. Mér fannst ég geta hvílt egóið í
þjóðlagatónlistinni,“ segir Haukur
kíminn og bætir við: „Þetta orðalag
hljómar kannski furðulega í ljósi
þess hversu aggressív Balkan-
músíkin er, full af nótum og tækni-
lega flókin að spila. Út frá tónlistinni
mætti halda að maður væri á ein-
hverju egótrippi, en það er í rauninni
langt því frá. Í mínum huga verður
maður nokkurs konar verkfæri eða
farvegur til að miðla alþýðumenn-
ingu þar sem þjóðlagatónlistin hrein-
lega streymir í gegnum mann. Mér
fannst eins og búlgarskir tónlistar-
menn hvíldu mun betur í list sinni en
margir þeirra sem ég hef unnið með í
djassgeiranum og það heillaði mig. Í
þessari músík tengjumst við sem
tónlistarmenn líka samfélaginu með
öðrum hætti,“ segir Haukur og
bendir á að þjóðlagatónlistin veiti
áheyrendum iðulega innblástur til að
dansa. „Tónlist og dansmennt eru
nátengd í búlgarski menningu sem
skapar aðra orku.“
Fjölþjóðlegt band
Haukur dregur ekki dul á að búlg-
örsk þjóðlagatónlist sé krefjandi í
flutningi. „Ég hef varið mjög miklum
tíma í að tileinka mér ákveðin tónlit
til að nálgast stílinn betur. Það hefur
tekið mig fjölda ára að ná tökum á
þessu og ég er hvergi nærri hættur.
Stór hluti af ferlinu hefur falist í því
að skerpa skynjun mína á tónlist til
að fanga sem flest af blæbrigðunum.
Með þeim Hauki og Zgurovski
leika á diskinum þeir Ásgeir
Ásgeirsson á meðal annars tambúru,
búsúkí, oud og sítar, Þorgrímur
Jónsson á bassa, Erik Qvick á slag-
verk, Ivan Todorov á básúnu og horn
og Nimrod Ron á túbu. Diskurinn er
tekinn upp bæði hérlendis og í Búlg-
aríu. „Það æxlaðist þannig að við
gátum boðið Borislav til Íslands
haustið 2018 og þá tókum við upp
stóran hluta af plötunni,“ segir
Haukur og tekur fram að þeir hafi í
hvoru lagi síðan tekið upp efni sem
blandað hafi verið saman við. „Þetta
er því stúdíóplata, enda hefði ekki
verið hægt að gera þetta öðruvísi
kostnaðarlega séð í ljósi þess hversu
margir hljóðfæraleikarar koma að
flutningnum. Ég blanda hefðbundnu
sampili með bassa og slagverki sam-
an við brassið þar sem mikið fer fyrir
túbunni sem Ísraelinn Nimrod Ron
leikur á, en hann býr og starfar hér-
lendis með Sinfóníuhljómsveitinni,“
segir Haukur og tekur fram að sér
hafi þótt vænt um að hafa bandið
fjölþjóðlegt.
Heppinn að sleppa heill
Haukur útsetti öll lögin á disk-
inum og því liggur beint við að
spyrja hvernig hann nálgaðist það
verkefni. „Mig langaði til að taka
sum af þessum þjóðlögum og láta
þau hljóma öðruvísi en þau oftast
gera. Ég nálgaðist lögin sem laglínur
sem hægt væri að gera hvað sem er
við,“ segir Haukur og tekur fram að
hann fari mislangt í þeirri nálgun
sinni eftir því sem lögin gefa tilefni
til. „Lögin valdi ég úr efnisskrá okk-
ar Borislav sem nær yfir rúman ára-
tug. Í raun má segja að stiklað sé á
stóru. Þarna eru líka lög sem ég
lærði hjá búlgörskum músíköntum
sem hafa fylgt mér í töluverðan tíma.
Ég er í raun að heiðra þá með því að
spila lögin þeirra,“ segir Haukur
sem lét tvö frumsamin lög einnig
fljóta með.
„Lagið „Tuk Tuk Kyuchek“ samdi
ég meðan ég dvaldi á Indlandi 2018,“
segir Haukur og bendir á að tuk tuk
séu litlir þriggja hjóla leigubílar sem
flestir nota á ferðalögum sínum í
Asíu. „Þeir keyrðu svo brjálæðislega
að mér fannst ég verða að fanga
þyngdarleysið sem aksturinn fram-
kallaði. Það var í raun ótrúlegt að
maður skyldi komast heill út úr sum-
um af þessum bíltúrum,“ segir
Haukur og rifjar upp að bílstjórarnir
fari mjög frjálslega með umferðar-
reglurnar.
Aðspurður segir Haukur að þeir
Zgurovski hafi í gegnum tíðina náð
að hittast um það bil einu sinni á ári
til að spila saman. „Ég var að vona
að hægt væri að blása til útgáfu-
tónleika á plötunni á árinu 2020 með
stórri hljómsveit. Það er smá haus-
verkur að koma slíkum mannskap
saman, en ég vona að ég nái því
annaðhvort í haust eða næsta vetur,“
segir Haukur að lokum.
Ljósmynd/Guðmundur Albertsson
Mátar Haukur Gröndal og Borislav Zgurovski hafa starfað saman síðan 2006. Þeir spiluðu meðal annars saman á Reykjavik Jazz Festival 2009.
„Þarna fer sannur virtúós“
Haukur Gröndal gefur út geisladiskinn Narodna Muzika – Balkan Impressions til heiðurs Borislav
Zgurovski Kenndi sér að spila á harmóníku sex ára gamall Átt gjöfult samstarf gegnum tíðina