Morgunblaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Söngvaskáldið Svavar Knútur var
beðinn um að mæla með listaverkum
sem hægt er að njóta innan veggja
heimilisins í samkomubanninu.
„Þvert á það sem margir kunna að
halda eru tónlistarmenn mjög gjarn-
an innhverfar manngerðir. Þess
vegna hefur samkomubannið ótta-
lega lítil áhrif á líðan mína önnur en
fjárhagsleg. En vissulega leiðir mað-
ur hugann að alls
konar ólíkum við-
fangsefnum þeg-
ar stemningin í
samfélaginu tek-
ur svona borg-
arstjórabeygju.
Ég hugsa mikið
um hvað þessi
tími, ólíkt hrun-
árunum, gefur
okkur tækifæri til
að horfa inn á við, hugsa í lausnum
og sýna skapandi viðhorf, laus við
reiði eða skömm. Við erum öll saman
í þessu ástandi og þetta er engum að
kenna. Það er góður upphafs-
punktur í hugsun og vangaveltum.
Það er bara verst að við getum ekki
hist til að vinna með það, ólíkt hrun-
tímanum.
En jú, svona ástand dregur vissu-
lega ólíkar bækur út úr bókaskápn-
um og opnar mig fyrir nýrri tónlist
og ýmiss konar list og fræðiritum.
Ég er t.d. búinn að sökkva mér ofan í
Byggðasögu Skagafjarðar, bindin
tvö sem fjalla um Fljótin og Sléttu-
hlíðina. Alveg makalaust efni. Þá var
ég að uppgötva tvær magnaðar
söngkonur og lagasmiði, þær Ástu
og K.óla. Þrátt fyrir gjörólíkan stíl,
þá sýna þessar tvær listakonur alveg
ótrúlegt næmi og dýpt. Lagasmíð-
arnar eru flóknar og frum-
legar, en aðgengileg-
ar, algerlega lausar
við tilgerð eða til-
raunir til skrums,
baðaðar í ein-
lægni og sköp-
un.
Svo er ég
að skoða
svolítið
minn eigin
geira frá ólík-
um sjónar-
hornum. Annars
vegar út frá hinum
prýðilega rit-
höfundi og
fyrrverandi
tónlistarblaða-
manni, John
Niven, sem
Kristinn Her-
mannsson vin-
ur minn kynnti
mig fyrir. Bók
hans, Kill your
friends, er ein-
stök, svört,
ógeðsleg og hörð sýn á tónlistar-
heiminn. En frá hinu sjónarhorninu
er ég að lesa bókina Band:Smart eft-
ir pönkarann Martin Atkins, sem er
löðrandi í hvatningu, innsýn og góð-
um ráðum til upprennandi tónlist-
arfólks. Eitthvað sem ég get síðan
miðlað til fólks sem leitar til mín.
Maður er líka alltaf að læra.
Svo er ég nú alveg sekur um að
hanga dálítið í tölvunni, annars veg-
ar dúllandi mér í rökþrautum á
Brainzilla eða spilandi herkænsku-
leiki eða hermileiki, annaðhvort
sögulega eða vísindaskáldsögulega.
Það er eitthvað við það að fikta við
mannkynssöguna frá 1440-1830 sem
kennir manni alls konar. Leikirnir
heita Europa Universalis IV
og Stellaris. Og við
verðum bara að við-
urkenna að tölvuleikir
eru orðnir hluti af
menningu og eru oft
alveg ótrúlega góð-
ir í að segja eða
skapa sögu.
Svo sit ég nú
bara oft úti á svöl-
um með kaffibolla og
nýt þess að horfa út í
kyrrðina í Hlíðunum. Það
er afskaplega notalegt.“
Mælt með í samkomubanni
Morgunblaðið/Eggert
K.óla Tónlistarkonan Katrín Ólafsdóttir heillar Svavar Knút.
„Hugsa í lausnum“
Svavar Knútur
Leikur Kynningarmynd fyrir leik-
inn Europa Uinversalis IV.
Notalegt Svavar Knútur
situr úti á svölum með
kaffibolla.
Bandaríska streymisveitan Netflix
er nú orðin meira virði en risafyrir-
tækið Disney, ef litið er til hluta-
bréfamarkaðar. Um miðja viku, 15.
apríl, náði verð hlutabréfa nýjum
hæðum hjá veitunni og er það eng-
in furða þegar litið er til ástands
heimsins, langvarandi samkomu-
banna um víða veröld og lokaðra
bíóhúsa.
Tímaritið Variety, sem helgar sig
öðru fremur umfjöllun um kvik-
myndir, greinir frá því að markaðs-
verð Netflix hafi eftir lokun mark-
aða á miðvikudag verið hærra en
markaðsverð Disney, 187,3 millj-
arðar bandaríkjadala á móti 186,6
milljörðum hjá Disney. Verð á
hlutabréfum Netflix hafði þá hækk-
að um 3,2% en verð á hlutabréfum
Disney lækkað um 2,5%. Verð á
hlut í Netflix endaði í 426,75 doll-
urum en fyrra met fyrirtækisins
var 418,97 dollarar, sett fyrir tæp-
um tveimur árum.
Þykir þetta sýna trú fjárfesta á
að Netflix muni græða verulega á
Covid-19-faraldrinum enda sitja nú
tugmilljónir manna heima hjá sér
og horfa á sjónvarpið og líklegt
þykir að fleiri milljónir áskrifta að
veitunni hafi selst á síðustu vikum,
til viðbótar þeim sem fyrir voru, en
Netflix mun birta þær tölur í
næstu viku, ef marka má frétt Var-
iety. Segir í henni að áhorf á net-
veitur hafi aukist um 109% í
Bandaríkjunum í samkomubanninu
miðað við sama tíma árs í fyrra.
Það er hressilegur vöxtur, svo ekki
sé meira sagt.
Disney Plus á siglingu
Fleiri veitur en Netflix hafa not-
ið góðs af ástandinu, þeirra á meðal
Disney Plus sem yfir 50 milljónir
eru áskrifendur að en að öðru leyti
hefur Disney tapað háum fjár-
hæðum og þá sérstaklega vegna
lokana kvikmyndahúsa með tilheyr-
andi frestunum á frumsýningum
kvikmynda sem kostaði fyrirtækið
tugmilljónir bandaríkjadala að
framleiða.
Vega þar einna þyngst myndir á
borð við Mulan og Black Widow en
framleiðslukostnaður þeirrar síð-
arnefndu er talinn allt að 200 millj-
ónir dollara og kostnaður við Mul-
an er líklega svipaður. Slík
fjárfesting mun varla skila sér
nema fólk flykkist í bíó og þó svo
kvikmyndahús verði opnuð á ný,
mögulega snemma sumars, er erfitt
að spá fyrir um hversu vel eða illa
þau verða sótt og líklega verða
fjöldatakmarkanir í sölum fyrst um
sinn.
Horfur eru því ekki mjög góðar
þegar kemur að „big budget“ kvik-
myndum svokölluðum, þeim allra
dýrustu í framleiðslu sem ætlað er
að skili hagnaði. Disney framleiðir
bæði Marvel- og Stjörnustríðs-
myndirnar og hafa sumir gengið
svo langt að spá því að tími þeirra
sé nú liðinn. Líklega er það þó allt-
of djúpt í árinni tekið.
helgisnaer@mbl.is
AFP
Furða Heimildarþættirnir um tígrisdýrakónginn furðulega, Joe Exotic,
hafa notið mikilla vinsælda á Netflix enda lyginni líkastir.
Netflix skákar Disney
Frestað Scarlett Johansson á vegg-
spjaldi fyrir Black Widow, ofur-
hetjumynd Marvel-fyrirtækisins sem
er hluti af Disney-samsteypunni.
Markaðsverð streymisveitunnar nær nýjum hæðum og er
nú orðið hærra en markaðsverð Disney Áhorf tvöfaldast
Nýtt leikár Þjóð-
leikhússins hefst
29. ágúst með
frumsýningu á
Kardemommu-
bænum eftir
Thorbjørn Egner
í leikstjórn
Ágústu Skúla-
dóttur, en sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá
leikhúsinu hefur
verið ákveðið að engar fleiri sýn-
ingar verði það sem eftir lifir þessa
leikárs vegna samkomubanns. Til
stóð að frumsýna Kardemommu-
bæinn nú í vikunni í tengslum við 70
ára afmæli Þjóðleikhússins, en af
því verður ekki. Samkvæmt upplýs-
ingum frá leikhúsinu var þegar
uppselt á hátt í 50 sýningar og fá
leikhúsgestir upplýsingar um nýja
sýningardaga strax í næstu viku.
Önnur sýning yfirstandandi leik-
árs sem frestast til þess næsta er
Kópavogskrónika eftir Kamillu
Einarsdóttur í leikstjórn Silju
Hauksdóttur sem gerði leikgerðina
ásamt Ilmi Stefánsdóttur. Fresta
varð frumsýningunni í seinasta
mánuði þegar samkomubannið var
sett á, en ný frumsýningardagsetn-
ing er í september. Loks má nefna
að sýningar á Þínu eigin leikriti II –
Tímaferðalag eftir Ævar Þór Bene-
diktsson í leikstjórn Stefáns Halls
Stefánssonar halda áfram í haust.
Engar fleiri leiksýningar í vor
Bók Kardemommu-
bærinn var nýlega
endurútgefinn.
UMHVERFISVÆNI
RUSLAPOKINN
Umhverfisvæna ruslapokann má
nálgast í öllum helstu verslunum
Hugsum áður en við hendum!
Umhverfisvæni ruslapokinn er úr maíssterkju
sem brotnar niður á nokkrum vikum án þess
að valda skaða í náttúrunni.
Umhverfisvæni ruslapokinn er með handföngum
og passar vel í ruslatunnur á heimilum eða
sem burðarpoki í verslunum.