Morgunblaðið - 18.04.2020, Síða 44
AF KVIKMYNDUM
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sælan er þess eðlis að henni fylgir oft
sektarkennd. Þetta þekkjum við öll.
Hálfur lítri af rjómaís eða hvað það
nú er, afgangurinn af jólasteikinni,
sörurnar í frystinum, súkkulaðisósan
sem tekur því ekki að geyma. Best að
klára hana bara strax!
Þegar kemur að kvikmyndum á
þetta hugtak, „sakbitin sæla“, við um
þær myndir sem maður nýtur þess að
horfa á en skammast sín líka pínulítið
fyrir það. Réttara væri kannski að
tala um sakbítandi sælu því það er
sælan sem bítur en er ekki bitin. Ekki
satt, Þuríður?
En höldum okkur við hugtakið þótt
mögulega sé það málfræðilega rangt.
Það hefur nefnilega birst og verið
nefnt manna á milli sem þýðing á því
sem enskumælandi kvikmyndaunn-
endur kalla „guilty pleasures“ og
birtast reglulega yfirlitsgreinar um
kvikmyndir og/eða sjónvarpsþætti
sem falla í þann flokk. Eiga þessar
myndir það sameiginlegt að hafa oft-
ar en ekki verið rakkaðar niður af
kvikmyndagagnrýnendum en notið
hylli almennings og jafnvel öðlast ein-
vers konar költstöðu.
Fortíðarþrá
Í nýjasta kvikmyndahlaðvarps-
þætti okkar Moggamanna, BÍÓ (sem
finna má í undirdálkinum „Fólk“ á
mbl.is og líka á Spotify), tökum við
slíka sælu fyrir og gesturinn að þessu
sinni doktor Arnar Eggert Thorodd-
sen, sá hinn sami og ritar vikulega
um tónlist í blaðið (sjá næstu síðu).
Kom í ljós, og ekki svo óvænt, að hin
sakbitna sæla tengist öðru fremur
fortíðarþrá, nostalgíu, alla vega hjá
okkur Arnari sem fæddir erum sama
ár, 1974. Hin kostulega unglinga-
mynd Weird Science er ofarlega á
blaði hjá okkur, gamanmynd um ung-
lingsdrengi sem þykja miklir lúðar og
tekst að búa til hina fullkomnu konu
og öðlast í framhaldi virðingu töffar-
anna í skólanum. Stórkostleg mynd
og um leið svo kolröng hvað innihald-
ið varðar. Viðurkenndi ég líka blæti
mitt fyrir Rocky IV – sem er ferlega
léleg kvikmynd og einmitt þess vegna
Ó, þú sakbitna sæla!
svo heillandi – og líka fyrir slags-
málamyndum þar sem slags-
málakóreógrafían (hönnun slags-
málaatriða?) ber handritið algjöru
ofurliði. Sjá til að mynda The Trans-
porter með hinum síráma og ævin-
lega órakaða Jason Statham.
Samstarfsmaður minn hér á
Morgunblaðinu sagðist í hlaðvarps-
þættinum hafa sérstakt dálæti á
kvikmyndum þar sem geimverur ráð-
ast á jörðina og hetjur bjarga
málunum með tilheyrandi ofbeldi,
væmni og þjóðrembingi. Sami hafði
líka dálæti á söngvamyndum á borð
við Pitch Perfect. Það hef ég líka og
eins og sjá má er mengið vítt þegar
kemur að hinni sakbitnu eða -bítandi
sælu.
Í djörfum dansi endalaust
Sæla eins er vansæla annars og hin
sakbitna sæla er auðvitað persónu-
bundin. Mig grunar líka að hún sé
hressilega kynjaskipt. Því til dæmis
þekki ég þrjár konur, reyndar allar
úr sömu fjölskyldu, sem fá aldrei nóg
af dansandi folum. Á ég þar við menn
á borð við Patrick Swayze og John
Travolta sem gerðu garðinn frægan í
Dirty Dancing og Grease. Að ekki sé
minnst á Point Break, reyndar eru
ekki dansandi folar þar á ferð heldur
hasarfolar, fyrrnefndur Swayze og
Keanu Reeves. En ólíkt kvikmyndum
sem áður voru nefndar eru þessar
alls ekki lélegar, Dirty Dancing
kemst nálægt því en alls ekki Grease
og hvað þá Point Break. Væri líklega
réttara að tala um hreina sælu því
fyrrnefndar konur skammast sín
ekkert fyrir þetta blæti sitt, þvert á
móti eru þær stoltar af því.
Nei, nær væri að skammast sín
fyrir að hafa gaman af myndum á
borð við Pretty Woman með Juliu
Roberts eða Conan the Barbarian
með Schwarzenegger. Eða hvað?
Hvernig væri kvikmyndasagan án
þeirra? Þurfum við ekki á svona kvik-
myndum að halda, þessum yfirdrifnu,
tilfinningaþrungnu, hallærislegu, kol-
röngu, ofbeldisfullu og kjánalegu
myndum? Stundum þarf maður bara
að komast á almennilegt nammifyll-
erí og gefa skít í hvað öðrum finnst.
Söngvasæla Pitch Perfect sló verðskuldað í gegn á sínum tíma. Barbari Conan bregður brandi.
Rembingur Will Smith og Jeff Gold-
blum með vindla við tökur á geim-
veruinnrásarheimsendaþjóðrembu-
myndinni Independence Day.
»Eiga þessar myndirþað sameiginlegt að
hafa oftar en ekki verið
rakkaðar niður af gagn-
rýnendum en notið hylli
almennings og jafnvel
öðlast einhvers konar
költstöðu.
Sæla Dirty Dancing veitir mörgum sælu en ekki endilega sektarkennd. Nostalgía Weird Science heillaði unga drengi um miðjan níunda áratuginn.
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
V E R S L U N S N O R R A B R A U T 5 6 · 1 0 5 R E Y K J A V Í K · F E L D U R . I S
VERSLUM Á VEFNUM
Á FELDUR.IS bjóðum við viðskiptavinum 15% afslátt af hlýjum
vörum fyrir útiveruna og sendum frítt innanlands.
AFSLÁTTARKÓÐI: FELDUR2020
Bandaríski djasssaxófónleikarinn
Lee Konitz, einn af höfuðpaurum
svala djassins svokallaða, er látinn,
92 ára að aldri. Hann lést af völdum
COVID-19.
Konitz átti langan og gjöfulan
tónlistarferil sem stóð í 75 ár, en
hann lék opinberlega fram yfir ní-
rætt. Konitz varð eins og margir
saxófónleikarar af hans kynslóð fyr-
ir áhrifum af tilfinningaríkum og
flæðandi leik Charlies Parker en
valdi að fara aðra leið í sinum
blæstri á alt-saxófóninn, hófstilltari,
víbratólausan og meira á háu nót-
unum. Sá stíll hafði einnig áhrif á
marga sem á eftir komu, eins og
Paul Desmond og Art Pepper.
Konitz var árum saman annar í
vinsældakosningum djassrita um
bestu saxófónleikara, á eftir Parker,
en hann þótti leika vel í ýmsum stíl-
um djassins; bíboppi, svala djass-
inum og þeim framsæknari. Er Ko-
nitz þó ekki síst minnst fyrir
merkilegt framlag sitt til þess svala
á fimmta og sjötta áratugnum, en
hann lék meðal annars við hlið Miles
Davis í hinum frægu Birth of the Co-
ol-upptökum.
Margir gagnrýnendur telja tím-
ann er Konitz lék í sveit píanistans
Lenny Trisanos sem einn hans gjöf-
ulasta. Á þeim tíma, 1951, léku Ko-
nitz og básúnu- og víbrafónleikarinn
Tyree Glenn, fyrstir bandarískra
djassstjarna sem hér spiluðu, með ís-
lenskum hljóðfæraleikurum á tvenn-
um tónleikum í Austurbæjarbíói.
Meðal djasshetja sem Konitz lék
og hljóðritaði með á sínum langa
ferli má nefna Gerry Mulligan, Dave
Brubeck, Ornette Coleman, Charles
Mingus, Charlie Haden, Brad Mehl-
dau og Elvin Jones. Hann dvaldi
löngum og starfaði í Evrópu, þar
sem hann naut meiri hylli djass-
geggjara en í heimalandinu.
Djassblásarinn
Lee Konitz allur
Einn helsti meistari saxófónsins
Wikipedia/Brian McMillen
Áhrifavaldur Lee Konitz blæs í
saxófóninn á ljósmynd frá 1985.