Morgunblaðið - 18.04.2020, Qupperneq 45
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Músíktilraunir vorið 2019 og það er
stemning í loftinu. Á svið stígur hin
undarlega nefnda gugusar, „tvær
fimmtán ára stelpur sem spila mel-
ódíska raftónlist“ eins og þær lýstu
sér sjálfar. Þá var um dúett að
ræða, og hann skipuðu Guðlaug
Sóley Höskuldsdóttir og Aníta Núr
Magnúsdóttir, báðar 15 ára. „Ekk-
ert náði að undirbúa viðstadda fyr-
ir hinar einbeittu
og ofursvölu stöll-
ur sem voru mætt-
ar á sviðið,“ sagði
Ragnheiður
Eiríksdóttir um
frammistöðu sveit-
arinnar í Morgunblaðinu og ratað-
ist henni sönn orð á munn. Stúlk-
urnar voru öruggar, skemmtilegar
og tóku m.a. nettan vélmennadans í
anda Kraftwerk. Tónlistin sem slík
vakti þó mesta athygli; falleg og
nostursamleg og greinileg vinna í
hana lögð. Fór svo að gugusar, eða
Guðlaug sem skráð var fyrir tón-
listinni, var valin rafheili Tilraun-
anna.
Um haustið var gugusar svo
valin á langlista Kraumsverðlaun-
anna vegna sjötommu sem hafði
komið út á vegum Móatúnsmerk-
isins, útgáfu sem Árni Grétar, einn
af eigendum Möller Records og oft
„Hvað er að gerast?“
Efnileg Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir er ekki nema sextán ára en hefur þegar gefið út burðuga breiðskífu.
kenndur við Futuregrapher, stend-
ur að.
„Við í Möller gefum venjulega
mix og masteringu (hljóðblöndun
og hljómjöfnun) til rafheilans og ég
tók þann snúning á þrjú lög henn-
ar,“ tjáði Árni þessum blaðamanni.
„Ég innti hana eftir því hvort hún
væri til í að gefa þetta út hjá mér
líka og hún sló til. Ég bauð henni
þetta einfaldlega af því að þetta
var svo gott stöff! Alveg ótrúlega
frambærilegt efni hjá svona ungri
manneskju.“ Árni segir að sam-
starfið hafi gengið það vel að hún
hafi beðið hann um að fullbúa
breiðskífuna sína með sama hætti.
„Hún er að taka áhættu og gera
hluti sem eldri tónlistarmenn
myndu hreinlega ekki leggja í. Fer
alveg út að brúninni en allt gengur
þetta upp hjá henni einhvern
veginn.“
Guðlaug byrjaði að semja tón-
list fyrir tveimur árum. Hún lýsir
þeirri þörf fallega á Karolinafund-
-síðu sinni vegna plötunnar:
„… þegar ég sem tónlist er ég al-
veg í mínum eigin heimi og gleymi
öllu óþarfa stressi. Lögin verða yf-
irleitt fyrst til á eitthvað ákveðið
hljóðfæri og færast svo yfir í tölvu
og þróast þar.“
Í viðtali við Kristján Guðjóns-
son hjá Ríkisútvarpinu viðurkenndi
Guðlaug að Músíktilraunir hefðu
verið fyrstu tónleikar hennar. Hún
hefði ekki þorað að vera ein á svið-
inu og því fengið vinkonu sína með
sér. Síðan þá hefur mikið vatn
runnið til sjávar og gugusar hefur
m.a. komið fram ásamt Hatara,
Omotrack, Andy Svarthol, Frid,
ClubDub, Hermigervli og FM Bel-
fast.
Platan stóra kom svo út í end-
aðan febrúar, innheldur sextán lög,
og má nálgast á Spotify. Að sönnu
tilkomumikill frumburður. Þetta er
raftónlist með ýmsum hætti, á
stundum lungamjúk og svefn-
herbergisleg og gamlar Warp-
kempur eins og Boards of Canada
koma í hugann. Einnig melódísk,
lágstemmd og móðins tónlist að
hætti Clairo eða Billie Eilish. Lögin
eru vel samin og úthugsuð og búa
yfir tilfinninganánd sem maður
heyrir ekki á hverjum degi frá
raftónlistarfólki sem er að stíga
fyrstu skref sín.
Hlutirnir hafa gerst hratt hjá
gugusar en ég vona að Guðlaug
beri gæfu til að rækta garðinn af
þolinmæði jafnt sem elju. Hún er
með hæfileika, það er klárt. Og
auðvitað er skemmtilegt að heyra
af því hvernig þetta allt saman er
að hitta hana, eins og þetta svar
hennar í viðtali við áðurnefndan
Kristján ber með sér: „Ég fór út í
búð um daginn. Þegar ég kom úr
búðinni og settist upp í bíl var lagið
mitt í útvarpinu. Sem var bara
svona „kreisí móment“. Ég bara
panikkaði og skildi ekki hvað var
að gerast.“
» Lögin eru vel sam-in og úthugsuð og
búa yfir tilfinninganánd
sem maður heyrir ekki á
hverjum degi frá raf-
tónlistarfólki sem er að
stíga fyrstu skref sín.
Þannig spyr gugusar,
Guðlaug Sóley Hösk-
uldsdóttir, í upphafslagi
fyrstu plötu sinnar, List-
en to this twice. Þessi
sextán ára stúlka vakti
mikla athygli á Músíktil-
raunum í fyrra og hefur
heldur en ekki hnykkt á
árangrinum þar.
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Heilsaðu upp á Maríu á blarapril.is
Hún er einhverf og hefur frá ýmsu að segja
Það er bara best að kynnast
mér til að skilja mig betur
Hinn fjölhæfi og margverðlaunaði
bandaríski leikari Brian Dennehy er
látinn, 81 árs að aldri. Hann hóf leik-
ferilinn frekar seint en sló fyrst í
gegn sem sviðsleikari í New York og
átti eftir að hreppa tvenn Tony-
verðlaun, sem leikari ársins, fyrir
frammistöðu sína í Sölumaður deyr
(1999) og Dagleiðin langa inn í nótt
(2003). Dennehy naut allan sinn feril
mikillar hylli í heimalandinu sem
sviðsleikari en út um heimsbygðina
er hann einkum þekktur fyrir eftir-
minnileg hlutverk í sjónvarpsþáttum
og kvikmyndum.
Dennehy vakti fyrst athygli sem
öflugur leikmaður í amerískum fót-
bolta og þegar hann tók að leika var
honum iðulega skipað í hlutverk
sterklegra og valdsmannslegra
karla sem voru viðkvæmir undir
niðri, til að mynda lögregluforingja,
barþjóna, sölumanna eða fyrrver-
andi íþróttamanna. Margir muna
eftir Denehy sem lögregluforingj-
anum sem reitti Rambo til reiði í
First Blood (1982). Og meðal ann-
arra kvikmynda sem hann lék í má
nefna Gorky Park (1983), F/X
(1986), Presumed Innocent (1990) og
Romeo + Juliet (1996). Í sjónvarpi
lék hann til að mynda í þáttaröð-
unum Dallas og Dynasty.
Þrátt fyrir að njóta mikillar vel-
gengni sem aukaleikari í kvikmynd-
um þá segir í umfjöllun um Dennehy
í The New York Times að hann hafi
alltaf tekið sviðsleik fram yfir hvíta
tjaldið. „Hann var gríðaröflugur og
óttalaus leikari sem hikaði ekki við
að takast á við mörg dramatískustu
karlhlutverk tuttugustu aldar,“ er
haft eftir stjórnanda Goodman-
leikhússins í Chicago þar sem Den-
nehy van suma sinna stærstu leik-
sigra. Þar lék hann meðal annars
Willy Loman í Sölumaður deyr og
var frammistaða hans dásömuð af
þeim sem sáu.
Hinn hæfileikaríki
Brian Dennehy látinn
AFP
Virtur Leikarinn Brian Dennehy.