Fréttablaðið - 05.09.2020, Side 22

Fréttablaðið - 05.09.2020, Side 22
Lukas Bury, Ragga Lára og Gudri Lapė eru þrjú þeirra sem eiga verk á sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI L i st a- og f r æ ða fól k , heimamenn og innf lytj-endur, eiga stefnumót þar sem kafað er í hug-myndina um sameigin-lega jörð og spurning- una Hvar er heima?“ útskýrir Margrét Weisshappel, kynningar- stjóri sýningarinnar, en sýningin er hluti af dagskrá Listahátíðar og stendur til 26. september. Þátttakendur, sem eru fimmtán talsins, eru bæði Íslendingar sem hér fæddust og ólust upp og nýir Íslendingar frá Litháen og Póllandi. Saman vinna þau þvert á landa- mæri og menningarheima og nýta upplifun og þekkingu hvers og eins til að skapa fjölbreytt verk og inn- setningar á sýningu þar sem brugð- ið er upp ólíkum snertif lötum og viðhorfum. Þegar stjórnendur Akademíu skynjunarinnar, sem standa að sýningunni, byrjuðu að þróa hug- myndina að henni sáu þeir eðlilega ekki fyrir að allt menningarstarf færi á hliðina næstu mánuði vegna heimsfaraldurs. „En með heimsfaraldrinum og til- heyrandi lokunum og ferðabönnum kom upp ný hugmyndafræði, því þrátt fyrir fjarlægðarreglur hefur kórónavírusinn fært okkur nær hvert öðru í leit að lausnum. Þörfin fyrir traust, samskipti og virðingu hvert fyrir öðru er svo mikilvæg, líf okkar bókstaflega veltur á því,“ segir Margrét. „Allir sem taka þátt í sýningunni koma frá mismunandi heimum, löndum og menningu og eiga sér ólíkar baksögur. Þeir segja sína sögu í gegnum verkin sín.“ Saman á sameiginlegri jörð Myndlistarsýningin On Common Ground verður opnuð í dag á Hlöðulofti Korpúlfsstaða en tilgangur hennar er að leiða saman íslenska myndlistarmenn og kollega þeirra frá Litháen og Póllandi sem búsettir eru hér á landi. Gudri Lapė Fædd í Litháen, alin upp á Íslandi frá tíu ára aldri. „Ég ákvað tólf ára að fara í mynd- listarnám og fór í listnám í Fjölbrauta- skóla Garðabæjar og síðan í LHÍ. Fór í skiptinám til Vilníus og er nú á leið í nám í Fabricademy í Barcelona. Ég vinn aðallega við gjörningalist og textíl, þá helst jurtalitun.“ Hvar er heima? „Foreldrar mínir töluðu vestur-lit- háíska mállýsku heima sem Litháar frá austurhlutanum skilja ekki. Sjálf lærði ég litháísku í gegnum bækur og í litháíska sunnudagaskólanum í Reykjavík. Þegar ég var fjórtán ára byrjaði tungumálakrísan mín, ég gat hvorki talað litháísku né íslensku almennilega og leið eins og ég ætti hvergi heima. Þegar ég er spurð hvort ég sé meiri Lithái eða Íslendingur líður mér eins og verið sé að rífa mig í tvennt. Ég er nefnilega bæði. Það sem ég tengi við heimili er lykt. Ég vinn með þessa tilfinningu í sýningunni. Ilmur úr sérstöku jurtatei er fullur af minningum af mismunandi stöðum sem ég hef sest að á og áhorfendur munu örugglega finna „sínar jurtir“.“ Líftími „Með góðri hjálp smíðaði ég þennan kassa, í mannlegum stærðarhlutföllum, eins léttan og ég gat. Næstum ósýni- legan, eins og rammann sem við búum okkur til utan um okkur. Inni í kassanum fæðast sápukúlur stöðugt og springa jafnóðum og verða partur af innihaldi kassans. Við sjálf tökum stöðugum breytingum. Hvernig sem þú lítur á það er eitthvað að bætast við og eitthvað að detta út á hverju augnabliki í lífi manns – bætast við og gleymast, geymast eða hverfa, og tíminn líður áfram eins og reykur,“ segir Ragga. Ragga Lára Weisshappel Fædd og alin upp á Íslandi. „Ég á frekar klassíska myndlistar- skólagöngu. 18 ára fór ég í Mynd- listarskólann í Reykjavík í for námið og svo í BA-nám í LHÍ, skrapp í skiptinám til Frakklands og kom heim ólétt, útskrifaðist, eignaðist son og tók síðan sjö ár í að kynnast hinu þakkláta húsmóðurstarfi og bætti við öðrum syni. En ég hef alltaf unnið að minni myndlist sem smeygir sér inn í fínustu háræðar lífs míns, tekið þátt í sýningum, verið með mynd- listarvefrit og fleira með fram húsmóðurstarfinu og var núna að byrja í MA-námi í LHÍ því ég hef of mikinn tíma aflögu, eða þannig.“ Hvar er heima? „Ég hef oft velt þessu fyrir mér. Ég hef alltaf haft mjög sterka tengingu við hið áþreifanlega „heima“. En heima getur líka verið tilfinning, þægindasvæði sem maður býr sér til og líður vel í, eitt- hvað kunnuglegt. Getur jafnvel verið fíkn, manni getur liðið eins og maður sé kominn heim þegar maður finnur á sér af áfengi. Eða að naga neglurnar. Kannski ekki frábær dæmi. Heima er eitthvert haldreipi eða akkeri. „Heima“ getur verið öryggistilfinningin. Margir tengja við að vera í út- löndum og segja „heim á hótel“ þar sem maður getur bara látið bumbuna út í loftið og verið út af fyrir sig – óáreittur. Hugmyndin um „heima“ poppar svo á hverjum degi upp í hausinn við fréttalestur um fólk sem er heimilislaust og fólk á flótta. Það er auðvitað ólýsanlega sárt að hugsa um fólk sem er hrakið frá heimilum sínum og er með sára heimþrá. „Heima“ er tilfinning eða staður sem togar alltaf í mann.“ Lukas Bury Pólskur en ólst upp í Þýska- landi og töluð pólska á heim- ilinu. Býr og starfar á Íslandi. Lukas stundaði myndlistarnám í Braun- schweig í Þýskalandi, í Mílanó og við Lista- háskóla Íslands. Hann vinnur aðallega mál- verk og texta og skoðar menningarheima og sögulegar frásagnir í gegnum listsköpun sína. Hvar er heima? „Ég lít á spurninguna um heimili og þjóð- erni með augum annarrar kynslóðar innflytj- enda. Ég ólst upp í Þýskalandi í fjölskyldu pólskra innflytjenda og heyrði hugtökunum „sjálfsmynd“ og „að tilheyra“ oft velt upp sem barn. Ég er tvítyngdur og tala pólsku án hreims en ég finn þegar ég fer þangað að fólk lítur ekki á mig sem innfæddan. Aftur á móti hef ég aldrei fundið fyrir slíku viðmóti í Þýskalandi, svo lengi sem ég segi ekki fjölskyldusöguna. Eftir að ég flutti til Íslands áttaði ég mig á því að heima er meira persónuleg ákvörðun, út frá því hvernig mér líður. Ég segist oftast vera frá Þýskalandi en það þýðir ekkert endilega að mér finnist ég vera Þjóðverji. Ég er bara þaðan og bakgrunnur minn er of margþættur til að vera lýst með orðum eins og „Þjóðverji“ eða „Pólverji“. Að lokum þá varð Ísland sá staður sem ég valdi mér og mér þætti vænt um að geta einhvern tíma kallað mig Íslending.“ Lithuania, my fatherland! Olía á striga „Titill verksins er fenginn úr fyrstu þremur orðunum í hinu fræga ljóði Pan Tadeusz eftir Adam Mickiewicz. Frá sjónar- horni manneskju frá Litháen eða Póllandi lýsir erindið hversu flókið þjóðerni getur verið. Þó svo Mickiewicz sé upprunalega Hvít-Rússi þá færðust pólitísk landamæri fæðingarstaðarins hans milli Póllands, Litháens og Hvíta- Rússlands. Til að gera þetta enn flóknara þá skrifaði hann á pólsku. Þess vegna er hann kallaður þjóðskáld Póllands, Litháens og Hvíta-Rúss- lands,“ segir Lukas. Staðbundin þekking Verkið er átta metrar af handlitaðri bómull með áhangandi jurtum frá Lit- háen og Íslandi. „Verkið heitir Staðbundin þekk- ing þar sem ég leita oft uppi staði vegna ilmsins, blómanna eða jurtanna. Gestir geta gengið undir efnið sem þjónar þá sem tjald sem verndar gegn sól, rigningu og fleiru. Það er þak yfir höfuðið en þó hreyfanlegt. Það er ekki nauðsynlegt að byggja steinsteypta veggi til að finnast maður jarðtengdur eða sestur að,“ segir Gudri. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is EN MEÐ HEIMSFARALDRIN- UM OG TILHEYRANDI LOK- UNUM OG FERÐABÖNNUM KOM UPP NÝ HUGMYNDA- FRÆÐI, ÞVÍ ÞRÁTT FYRIR FJARLÆGÐARREGLUR HEFUR KÓRÓNAVÍRUSINN FÆRT OKKUR NÆR HVERT ÖÐRU Í LEIT AÐ LAUSNUM. 5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.