Fréttablaðið - 19.09.2020, Side 2
Tékka vantar fleiri
umsækjendur sem
eru að velta fyrir sér ætt-
leiðingum barna með
skilgreindar þarfir, systkina
og eldri barna.
Kristinn Ing-
varsson, fram-
kvæmdastjóri
Íslenskrar ætt-
leiðingar
Veður
Fremur hæg suðvestanátt en 10-
18 og skúrir eftir hádegi. Hægari
vindur austanlands fram eftir degi
og bjart með köflum. SJÁ SÍÐU 42
Myndaveisla í Kringlunni
Það er sannkölluð ljósmyndaveisla í Kringlunni þessa dagana. Út septembermánuð stendur yfir göngugötusýning samtakanna World Press Photo
þar sem gestir geta skoðað verðlaunaðar fréttaljósmyndir ársins. Alls fengu 44 ljósmyndarar frá 24 löndum verðlaun í átta efnisf lokkum. Í Kringl-
unni hefur einnig verið komið fyrir stórum hjartalaga bás þar sem vinir og fjölskylda geta setið og séð um að mynda sig sjálf. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Millimál í fernu
VÍTAMÍN
& STEINEFNI
PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA
ÁN ÁN
DÓM S M ÁL Flug félagið Mý f lug
óskar eftir því að gert verði sér
stakt mat vegna ágreinings félags
ins við Sjúkratryggingar Íslands um
greiðslur vegna sjúkraflugs. Mats
beiðnin er til meðferðar hjá Héraðs
dómi Reykjavíkur.
Mýf lug hefur um árabil annast
sjúkraflug samkvæmt samningi við
Sjúkratryggingar.
Mun flugfélagið telja að það eigi
inni greiðslur vegna ársins 2018 og
áranna þar á undan. Byggist það á
því að grunngjald sem var í tilboði
félagsins hafi miðast við ákveðinn
fjölda f luga en að f lugin hafi verið
mun fleiri.
Þannig mun Mýf lug segja að
félagið hefði haft grunngjaldið
hærra í tilboði sínu ef vitað hefði
verið að flugin yrðu fleiri en áætlað
var. Auk grunngjaldsins er greitt
sérstaklega fyrir hvert f lug. Ekki er
ágreiningur um þær greiðslur, sam
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
– gar
Meti greiðslur
fyrir sjúkraflug
SAMFÉLAG Biðlistar eftir ættleið
ingu frá Tékklandi hafa styst. Á
þessu ári hafa fjórar íslenskar fjöl
skyldur og tékknesk börn verið
pöruð saman og eru tvö þeirra nú
þegar komin til landsins. Hin tvö
munu væntanlega koma til landsins
síðar á þessu ári.
Núna koma flest ættleidd börn á
Íslandi frá Tékklandi og samstarfið
hefur gengið farsællega. Félagið
Íslensk ættleiðing, sem hefur milli
göngu um ættleiðingar, er einnig
í samstarfi við fjögur önnur lönd,
Tógó, Búlgaríu, Kína og Kólumbíu.
„Yfirvöld í Tékklandi eru afar
hrifin af íslenskum umsækjendum
og hafa sagt okkur að undirbún
ingur, stuðningur og eftirfylgd hjá
Íslenskri ættleiðingu sé til mikillar
fyrirmyndar,“ segir Kristinn Ing
varsson, framkvæmdastjóri félags
ins.
„Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur
við ættleidd börn og foreldra þeirra
er mikilvæg. Íslenska ættleiðingar
módelið leggur áherslu á þessa
þætti, stuðning við fjölskyldur áður
en ættleitt er, stuðninginn meðan
fjölskyldan er að taka fyrstu skrefin
og eftirfylgd við fjölskyldurnar.
Þetta módel hefur vakið athygli.“
Starfsemi félagsins er tryggð með
þjónustusamningi við dómsmála
ráðuneytið og er reksturinn óháður
fjölda barna sem ættleidd eru til
landsins.
Frumættleiðingum hefur fækkað
mikið á undanförnum árum, ekki
aðeins á Íslandi heldur í öllum
heiminum. Meðal annars vegna
þess að Kína hefur lokað á umsókn
ir og vegna þess að tæknifrjóvg
unum hefur fjölgað. Eftirspurnin
gengur þó í bylgjum.
Kristinn segir að meiri kröfur séu
gerðar til umsækjenda og að f leiri
börn séu með sérstaklega skil
greindar þarfir. Þetta séu áskoranir
sem færri umsækjendur treysta
sér í og fari ekki alltaf saman við
væntingar þeirra sem langar til
að ættleiða. „Tékka vantar f leiri
umsækjendur sem eru að velta fyrir
sér ættleiðingum barna með skil
greindar þarfir, systkina og eldri
barna,“ segir hann.
Í dag eru aðeins sjö virkar
umsóknir á biðlista í upprunalönd
unum og sex aðrar í ferli. Meðaltími
á biðlista er mislangur eftir upp
runalöndum. Til dæmis er hann tvö
ár í Tékklandi og um tvö ár og tveir
mánuðir í Tógó.
Fimmtán umsóknir eru nú í for
samþykki hjá sýslumanni en langur
tími getur liðið þar til sýslumaður
samþykkir. Þegar forsamþykki
liggur fyrir er hægt að sækja um í
upprunalandi, fara í læknisheim
sóknir, safna gögnum og þýða þau
fyrir ættleiðingarnefndir í upp
runalöndum. Tekur það á bilinu
einn til þrjá mánuði að meta hvort
viðkomandi séu samþykkt á bið
lista.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Ættleiðingarbiðlistar
að styttast í Tékklandi
Um þessar mundir eru flest ættleidd börn frá Tékklandi. Fjórar íslenskar fjöl-
skyldur og tékknesk börn hafa verið pöruð saman á þessu ári. Framkvæmda-
stjóri Íslenskrar ættleiðingar segir að samstarfið við Tékka hafi reynst farsælt.
Sjö fjölskyldur eru á biðlista í upprunalöndum og sex í ferli. MYND/GETTY
DÓMSMÁL Karlmaður á sjö tugs aldri
hefur verið ákærður fyrir mann
dráp og brennu, en hann er grunað
ur um að vera valdur að brunanum
að Bræðra borg ar stíg í júní.
Maðurinn er ákærður fyrir
manndráp á pari auk þriðja manns.
Öll eru pólsk ir rík is borg ar ar.
Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í
gær að bótakröfur hlaupi á tugum
milljóna króna. – aá
Ákærður fyrir
manndráp
Maðurinn leiddur fyrir dómara.
LÖGREGLUMÁL Stoðdeild ríkislög
reglustjóra hefur unnið eftir vís
bendingum sem hafa borist um
dvalarstað egypsku fjölskyldunnar
sem flytja átti af landi brott á mið
vikudag.
Um að ræða sex manna fjöl
skyldu, hjónin Dooa og I bra him
Kehdr og börnin þeirra fjögur sem
eru á aldrinum fimm til tólf ára.
Þau f lúðu til Ís lands árið 2018
sökum of sókna í heimalandi þeirra
vegna þátt töku I bra hims í stjórn
mála starfi.
Fram kemur í svari við fyrirspurn
Fréttablaðsins að ekki hafi verið
tekin ákvörðun um að lýsa eftir fjöl
skyldunni að svo stöddu.
Fjöldi fólks hefur mót mælt brott
vísuninni. Rósa Björk Brynjólfs
dóttir, þingkona Vinstri grænna,
sagði skilið við f lokk sinn í vik
unni vegna málsins og fylgdu tvær
þungavigtarkonur í f lokknum í
kjölfarið.
– aá, ilk
Vinna eftir
vísbendingum
1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð