Fréttablaðið - 19.09.2020, Qupperneq 4
Benedikt Jóhannesson
fyrrverandi ráðherra
sækist á ný eftir
að leiða lista
f lokksins í
alþingiskosn-
ingum. Bene-
dikt sneri aftur
til ráðgjafarstarfa
eftir formannsskipti haustið
2017 en hefur allan tímann
starfað í stjórn flokksins. Hann
segist ætla að berjast fyrir sömu
málum og þeim sem Viðreisn var
stofnuð út af.
Rósa Björk
Brynjólfsdóttir
þingmaður
tilkynnti Katr-
ínu Jakobsdótt-
ur formanni
Vinstri grænna
um úrsögn sína
úr f lokknum. Hún
hefur setið á þingi fyrir
VG síðan í maí 2016 sem odd viti
VG í Suð vestur kjör dæmi og 3.
þing maður kjör dæmisins. Helsta
ástæða Rósu fyrir úrsögninni
var brottvísun stjórnvalda á
egypsku fjölskyldunni, en Rósa
segist ekki lengur eiga samleið
með flokknum. Auk Rósu sögðu
flokkskonurnar Eydís Blöndal
og Hildur Knútsdóttir sig úr
f lokknum.
Ómar
Ragnarsson
athafnamaður
fagnaði áttræðis-
afmæli sínu á degi
íslenskrar náttúru.
Dagsetningin er engin
tilviljun enda er dagurinn til-
einkaður fjölmiðlamanninum.
Ekki var mikið um fagnaðarlæti
í kringum tímamótin en Ómar
segir ástandið í þjóðfélaginu
ekki bjóða upp á slíkt.
Þrjú í fréttum
Endurkoma,
úrsögn og
áttræður Ómar
21
þúsund voru atvinnulaus
í lok ágústmánaðar.
14
þúsund rafræn gagnakerfi
eru í notkun hjá ríkinu.
131
þúsund tonn var afli íslenskra
fiskiskipa í síðasta mánuði.
12
prósent svarenda nýrrar könnunar
segjast líkleg til að kjósa nýjan
umhverfismiðaðan flokk.
108
eru nú í einangrun hér
á landi vegna COVID-19.
TÖLUR VIKUNNAR 13.09.2020 TIL 19.09.2020
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og
íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á
lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
BREYTINGAR Á JEEP®, RAM
OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM
ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323
UMBOÐSAÐILI
Námsgjald Matur Samtals
Reykjavík
Foreldrar í sambúð 15.256 11.360 26.616
Einstæðir foreldrar 6.328 11.360 17.688
Kópavogur
Foreldrar í sambúð 24.176 9.041 33.217
Einstæðir foreldrar 16.920 9.141 26.061
Garðabær
Foreldrar í sambúð 32.688 7.925 40.613
Einstæðir foreldrar 19.613 7.925 27.538
Hafnarfjörður
Foreldrar í sambúð 24.720 8.750 33.470
Einstæðir foreldrar 6.180 8.750 14.930
✿ Leikskólagjöld í fjórum stærstu sveitarfélögunum
8 tíma vistun
REYKJAVÍK „Nærtækasta skýringin
er sú að við erum með miklu f leiri
börn á leikskólaaldri í Reykjavík
en öll önnur sveitarfélög og íbúum
borgarinnar er að fjölga, þar með
talið barnafjölskyldum. Við þurfum
því að fjölga verulega leikskóla-
plássum til að ná settu marki um
að bjóða yngri börnum pláss. Sú
vinna er þó í fullum gangi,“ segir
Skúli Helgason, formaður skóla- og
frístundaráðs Reykjavíkur.
Greint var frá því í gær að af
stærstu sveitarfélögunum á höfuð-
borgarsvæðinu væri lengsta biðin
eftir leikskólaplássi í Reykjavík.
Borgin freistar þess að bjóða börn-
um pláss við 18 mánaða aldur en
það markmið hefur ekki gengið eftir
og biðlistar eru víða. Í Kópavogi,
Garðabæ og Hafnarfirði eru börn
hins vegar að fá leikskólapláss um
12 til 15 mánaða aldur eftir atvikum.
Reykjavíkurborg býður upp á lægstu
leikskólagjöldin af stærstu sveitar-
félögunum á höfuðborgarsvæðinu
en átta tíma vistun fyrir foreldra
í sambúð kostar um 26 þúsund
krónur. Veittur er afsláttur fyrir ein-
stæða foreldra og námsmenn en sé
tekið tillit til þess er Hafnarfjörður
á svipuðum slóðum og Reykjavík.
Hildur Björnsdóttir, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisf lokksins, segir að
hún skilji ekki hvers vegna þetta sé
ekki meira forgangsmál hjá meiri-
hlutanum. „Í kosningunum 2014
lofaði Samfylkingin öllum börnum
18 mánaða og eldri leikskólaplássi,
þau stóðu ekki við það. Í síðustu
kosningum var öllum 12 til 18 mán-
aða börnum lofað plássi, þau stóðu
ekki heldur við það. Biðlistarnir eru
allt of langir,“ segir Hildur. Dæmi
Þörf á að bæta verulega í til að
ná settu marki í fjölda plássa
Formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar segir vinnu í fullum gangi við að fjölga leikskóla-
plássum, verulega þurfi að bæta í til að ná settu marki. Nýir leikskólar eru á teikniborðinu. Borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins segir ekki staðið við kosningaloforð og erfitt að fá upplýsingar um stöðuna.
Dæmi eru um að allt að tveggja og hálfs árs gömul börn séu enn á biðlista
eftir plássi á leikskóla í höfuðborginni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hildur Björns-
dóttir, borgar-
fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins
séu um að börn í Vesturbænum fái
ekki pláss nema í Breiðholti eða
Grafarvogi.
Skúli segir að leikskólaplássum
hafi fjölgað um 200 frá árinu 2018.
Verkefninu Brúum bilið sé ætlað að
fjölga þeim um 700 til 750 á næstu
árum. Í næsta mánuði verður leik-
skóli opnaður í Úlfarsárdal, þá
verður byggður stór leikskóli í mið-
borginni. Einnig eru leikskólar í
Skerjafirði og í Vogabyggð á teikni-
borðinu auk viðbygginga við eftir-
sótta leikskóla. „Núna erum við að
taka inn börn niður í 15 mánaða
gömul í ákveðnum hverfum og með
frekari fjölgun plássa mun sá aldur
fara lækkandi þar til takmarkinu
er náð um að öll börn, 12 mánaða
og eldri, fái boð um leikskólapláss,“
segir Skúli.
Hildur segir erfitt að fá upplýs-
ingar. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
hafi lagt fram fyrirspurn fyrr á kjör-
tímabilinu um meðalaldur barna
við innritun á leikskóla en beðið
hafi verið um að fyrirspurnina yrði
dregin til baka vegna kostnaðar,
aldrei hafi borist svar. „Ég hefði
haldið að þetta væru grunnupplýs-
ingar sem borgin vildi afla svo hægt
væri að meta árangurinn og takast
á við þennan vanda,“ segir Hildur.
Skúli segir þetta koma sér spánskt
fyrir sjónir þar sem reglulega berist
slíkar upplýsingar. Vonast sé til að
hafa handbæra nýjustu samantekt
um aldur barna við síðustu inn-
ritun í leikskóla borgarinnar síðar
í þessum mánuði. „Það eru engin
vandræði með það, hvorki pólitísk
né önnur,“ segir Skúli.
bjornth@frettabladid.is
arib@frettabladid.is
1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð