Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.09.2020, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 19.09.2020, Qupperneq 10
Skotárásin í Kauhajoki var þriðja skotárásin á skóla í sögu Finnlands. Demókratar eiga undir högg að sækja í höfuðvíginu Toscana. Zingaretti heldur hér ræðu í Pisa. MYND/GETTY ÍTALÍA Á næstu dögum fara fram héraðs- og sveitarstjórnarkosning- ar í sjö héruðum Ítalíu og um eitt þúsund borgum og bæjum. Þar á meðal í Toscana, Feneyjum og hinu fjölmenna héraði Campania á suð- vesturströndinni. Kosningarnar eru sagðar fyrsti alvöru prófsteinninn á ríkisstjórn Giuseppe Conte sem mynduð var fyrir rúmu ári. Einnig verður kosið um þá stjórnarskrár- breytingu að fækka þingsætum um þriðjung í báðum deildum. Stjórn Conte hefur þótt taka ágætlega á faraldrinum sem skall mjög harkalega á landinu í mars. Dauðsföllum fjölgaði hratt og heil- brigðisstarfsfólk þurfti að velja hverjir fengju öndunarvélar. Efna- hagslegar afleiðingar faraldursins og þær takmarkanir sem enn eru í gildi virðast hins vegar koma verr niður á stjórninni og einnig ósam- staða milli Fimmstjörnuhreyf- ingar Conte og vinstrimanna. Nú er einmitt krítískur tími í ítölskum stjórnmálum þar sem COVID- styrkjum ESB verður brátt úthlutað. Fyrir fram er búist við því að bandalag Norðurbandalagsins, Áfram Ítalíu, og smærri öfgahægri- f lokka vinni á. Það bandalag var kokkað upp af hægripopúlistanum Matteo Salvini og fyrrverandi for- sætisráðherranum Silvio Berlusc- oni. Talið er að bandalagið gæti náð völdum í héruðum sem hafa kosið til vinstri í áratugi. Helsta baráttu- mál Salvini eru innflytjendamál. Í Marche á austurströndinni hafa vinstrif lokkar stjórnað í kvartöld en nú er útlit fyrir að hægripopúl- istar vinni þar stórsigur. Í Toscana gæti vinstri meirihlutinn fallið í fyrsta skipti í hálfa öld, í héraði sem gjarnan er kallað „regione rossa“ eða rauða héraðið, vegna vinstri- slagsíðunnar. Einu góðu fréttirnar fyrir Demókrataf lokkinn, sem fer fyrir vinstribandalaginu, er að hann virðist nokkuð öruggur með að halda völdum í Campania. Nær engar líkur eru taldar á að hægri- popúlistar geti misst þau héruð sem þeir halda núna, svo sem Feneyjar. Skýrendur telja að stórsigur hægripopúlista í kosningunum muni ekki hafa bein áhrif á lands- málin, að minnsta kosti ekki í haust. Næstu þingkosningar eru eftir þrjú ár. Stórt tap Demókrataf lokksins gæti hins vegar veikt stöðu Nicola Zingaretti sem stýrt hefur flokknum síðan í mars árið 2019. Falli Toscana gæti hann neyðst til þess að segja af sér, því það væri í raun sambæri- legt við að bandaríski Demókrata- flokkurinn tapaði Kaliforníu. Einnig er mikið undir fyrir Salv- ini, sem áður gegndi stöðu innan- ríkisráðherra í fyrri stjórn Conte. „Vinsældir Salvini hafa dvínað í faraldrinum en ef hann nær að sigra mun enginn efast um hann sem leiðtoga,“ segir stjórnmála- skýrandinn Barbara Fiammeri hjá fréttamiðlinum Sole 24 Ore. Fyrir Fimmstjörnuhreyfinguna skiptir stjórnarskrárkosningin meira máli, en fækkun þingmanna var eitt af stóru kosningaloforð- unum þeirra fyrir síðustu þingkosn- ingar. Í neðri deild myndi fækka úr 630 niður í 400 og í efri deild úr 315 niður í 200. Samkvæmt skoðana- könnunum hefur andstaða fólks við breytinguna aukist á undanförnum vikum. kristinnhaukur@frettabladid.is Missi vinstrimenn völdin í Toscana er Conte í vanda Framtíð leiðtoga Demókrataflokksins á Ítalíu gæti verið í hættu ef hægripopúlistar sigra í Toscana, þar sem vinstrimenn hafa ráðið lögum og lofum í hálfa öld. Héraðs- og sveitarstjórnarkosningar fara fram í landinu á sunnudag og mánudag en einnig er kosið um stjórnarskrárbreytingu um fækkun þingsæta. Persónulegar vinsældir Matteo Salvini hafa dvínað í faraldr- inum en ef hann nær að sigra á ný mun enginn efast um hann sem leiðtoga. Barbara Fiammeri, stjórnmálaskýrandi H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum í Tónlistarsjóð til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. janúar – 30. júní 2021. Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á www.rannis.is. Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi. Hafi umsækjandi áður fengið styrk úr Tónlistarsjóði þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis til að ný umsókn komi til greina. Umsóknarfrestur rennur út 2. nóvember 2020 kl. 16.00. Umsóknarfrestir Tónlistarsjóðs eru tvisvar á ári, í byrjun maí og nóvember. Rannís, sími 515 5800, tonlistarsjodur@rannis.is. Styrkir úr Tónlistarsjóði Umsóknarfrestur til 2. nóvember FINNLAND Finnsk stjórnvöld brutu gegn rétti borgara sinna til lífs í aðdraganda skotárásar sem kostaði tíu manns lífið árið 2008. Þetta er niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) í máli 19 ættingja nemenda og kennara sem létust í skotárás í skóla í bænum Kauhajoki. Að mati MDE brugðust yfirvöld skyldu sinni til að bregðast við fyrirsjáanlegri hættu sem stafaði af árásarmanninum með því að leggja hald á skotvopn hans áður en hann lét til skarar skríða. Gerandinn, sem var sjálfur nem- andi við skólann, skaut níu sam- nemendur sína til bana og einn kennara. Þrátt fyrir að lögregluyfirvöld hefði ekki getað séð fyrir bráða lífs- hættu þolenda árásarinnar, að mati dómsins, hafði lögregla vitneskju um yfirlýsingar byssumannsins á internetinu og hafði yfirheyrt hann áður en hann lét til skarar skríða. Til greina kom af hálfu lögreglu að gera skotvopn hans upptækt en eftir yfirlegu var ákveðið að gera það ekki. Að mati dómsins hefði upptaka á vopninu verið bæði lögmæt og mál- efnaleg varúðarráðstöfun. Með því að grípa ekki til þess ráðs, brugðust stjórnvöld sérstakri skyldu sinni til að gæta að öryggis borgarana, í ljósi yfirvofandi hættu, og brutu þannig í bága við 2. grein Mannréttinda- sáttmála Evrópu um réttinn til lífs. Var finnska ríkið dæmt til að greiða Elmari Kotilainen, syni kennarans sem lést í árásinni, 31 þúsund evrur í skaðabætur en Elm- ari var tveggja ára þegar árásin var gerð. Þá var ríkið einnig dæmt til að greiða tíu fjölskyldum 30 þúsund evrur í miskabætur vegna ættingja sem þær misstu í árásinni. – aá Finnar brutu gegn lífsréttinum Skotárásin varð í Kauhajoki-skólanum í september 2008. MYND/EPA Hinn 22 ára gerandi Matti Juhani Saari svipti sig lífi í lok árásar. COVID-19 Rafrænt skráningarkerfi í skimanir vegna COVID-19 var tekið í gagnið í gær. Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins, segir að frumraunin hafi farið fram úr björtustu vonum. Kerfið er aðgengilegt í gegnum heilsuvera.is. Þar geta aðilar sett sjálfir inn einkenni og skráð sig í sýnatöku. „Forritunin var að klár- ast rétt áður en þetta fór í loftið en kerfið virkaði vel. Það var ótrúlegt að sjá fólk strax nýta þessa lausn.“ Alls voru tekin um 2.000 sýni við Suðurlandsbraut í gær en 85 prósent þeirra bókuðu sig í gegnum vefinn. „Við vorum meðal annars að skima þá sem mögulega komust í snert- ingu við veiruna á kránni.“ Sýnatakan fer nú fram innandyra en að sögn Óskars er það mun fljót- legri leið. – bþ Ný skráning heppnaðist vel Óskar er ánægður með nýja kerfið. PÓLLAND Íslendingur á fertugsaldri slasaðist í fallhlífarstökki í Póllandi um síðustu helgi. Þetta kemur fram á pólska vefmiðlinum Portal. Slysið átti sér stað við f lugvöllinn í borg- inni Elblag, skammt frá Gdansk. Mun Íslendingurinn hafa verið að stökkva með pólskum kennara á sextugsaldri. Þegar 10 metrar voru til jarðar kom sterk vindhviða sem feykti þeim af leið og skullu þeir harkalega til jarðar. Mennirnir voru f luttir á nærliggjandi sjúkrahús. Búst er við að hinir slösuðu nái sér að fullu. – bþ Íslendingur slasaður eftir fallhlífarstökk 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.