Fréttablaðið - 19.09.2020, Qupperneq 12
Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Mitt í þessu
öllu hefur
Icelandair
staðið í
harðri
baráttu fyrir
tilvist sinni.
Jón
Þórisson
jon@frettabladid.is
Mín skoðun Lára G. Sigurðardóttir
Það situr í mér eitt kvöld þar sem ég var á skurð-læknavakt fyrir mörgum árum. Á vaktina var komið með starfsbróður minn sem var í alvar-
legum sjálfsvígshugleiðingum. Sama hvað ég reyndi,
þá komum við að lokuðum dyrum hjá geðdeildinni.
Ef einhver trúir því að það sé til læknamafía, þá var
hún ekki á vakt þessa nótt. Á endanum fór orkan í að
reyna að fela eigin ekka og táraf lóð, því mér fannst
heilbrigðiskerfið, sem ég var partur af, geta gert
betur. Góður skurðlæknir á vakt hughreysti óléttu
buguðu mig, en það er aukaatriði – ekki vorum við
að fara að skera burtu sjálfsvígshugsanirnar.
Það er líklega ein versta tilfinningin, að geta ekki
hjálpað til þegar líf nærstaddra er í húfi. Tala ekki
um ef um ræðir ástvin eða barn. Í mínu nánasta
umhverfi eru f leiri en eitt og f leiri en tvö tilfelli þar
sem lítil sem engin úrræði eru í boði. Fólk hrökklast
heim með þann veika og finnst það ekki tekið alvar-
lega.
Hindrunarlaust aðgengi
Er virkilega ekki hægt að gera betur? Mættu á bráða-
móttökuna með sprunginn botnlanga og þú ert strax
settur í ferli og læknaður eins f ljótt og hendur vinna.
En mættu með veikan huga og þú verður allt eins
sendur heim.
Alþjóðlegur forvarnadagur sjálfsvíga var haldinn
fyrir rúmri viku. Heilbrigðisráðherra gaf vilyrði fyrir
auknu fjármagni fyrir stöðu verkefnastjóra sjálfs-
vígsforvarna. Á vef Embættis landlæknis segir að
það skipti miklu að grípa snemma einstaklinga sem
líður illa. Tryggja þurfi því gott og hindrunarlaust
aðgengi að þjónustu. Sem er gríðarlega mikilvægt því
í f lestum tilfellum er ákvörðunin um að enda eigið líf
tekin í skyndi.
Eftirsjá
Á vefsíðu lýðheilsudeildar Harvard-háskóla er sagt
frá rannsóknum á fólki sem var nærri því að látast
eftir sjálfsvígstilraun. Um 75% létu til skarar skríða á
innan við klukkutíma frá því þau tóku ákvörðun og
allt að 40% innan einungis fimm mínútna.
Á sömu síðu kom einnig fram að f lestir sem lifðu af
voru með eftirsjá. Það vakti líka athygli mína að níu
af hverjum tíu sem lifa af alvarlega sjálfsvígstilraun
munu ekki falla fyrir eigin hendi í framtíðinni.
Núll sjálfsvíg
Á Íslandi eru fjögur númer sem hægt er að hringja
í líði manni illa, en ekki veit ég hversu markvissa
þjálfun fólkið á símanum hefur fengið.
Henry Ford heilbrigðisþjónustan í Bandaríkjunum
opnaði árið 2001 símalíf línu sem kallast „Zero sui-
cide“, sem er stöðugt verið að uppfæra eftir því sem
þekking eykst. Starfsfólkið fær sérhæfða þjálfun þar
sem virðing og samkennd eru í fyrirrúmi. Áhætta er
metin og þau sem eru í mestri hættu fá samdægurs
ítarlega geðskoðun ásamt meðferð. Hinir fá vísinda-
lega þróaðar leiðbeiningar og símtal um hvernig
gangi. Á níu ára tímabili fækkaði sjálfsvígstilfellum
hjá þeim um 78%.
Djúpu sárin sem ekki sjást
Vísindamenn hafa lengi vitað að höfnun og vanlíðan
rista djúp sár í sálina, sem sjást ekki með berum
augum.
Það er samt mikilvægt að átta sig á að kvíði, leiði
og reiði er stór partur af eðlilegu tilfinningalífi. Það
er þegar hugurinn bugast undan þeim sem þarf að
bregðast hratt við.
Við þurfum að byrja að sjá og taka eftir and-
legum sársauka, líkt og líkamlegum. Því fagna ég að
ákvörðum hefur verið tekin um að tryggja hindr-
unarlaust aðgengi, því það getur verið of seint að
bíða fram á næsta dag.
Starfsbróðir minn fékk á endanum aðstoð og hefur
notið velgengni í lífi og starfi allar götur síðan. Hann
fékk annan séns.
Að fá annan séns
Landið okkar treystir á samgöngur á sjó og í lofti. Þegar Eimskipafélag Íslands var stofnað fyrir rúmum hundrað árum þótti stofnun þess svo mikilvæg að félagið var nefnt Óskabarn þjóðarinnar. Það var líklega réttnefni, enda mikilvægi tengingar við
umheiminn orðin mönnum ljóst.
Fyrsti vísir að því sem við nú þekkjum sem Iceland-
air varð til fyrir rúmum áttatíu árum þegar Flugfélag
Akureyrar var stofnað. Það flutti svo höfuðstöðvar
sínar til Reykjavíkur skömmu síðar og nafninu var
breytt í Flugfélag Íslands. Þannig hófst saga farþega-
flugs milli landa á vegum Íslendinga sem rekur sig allt
til okkar daga. Saga farþegaflugs hér á landi er ekki
áfallalaus. Flugfélög komu og fóru, ýmist sameinuðust
eða gáfust upp í erfiðu rekstrarumhverfi. Það kennir
að eins bráðnauðsynlegt og er að til og frá landinu séu
greiðar samgöngur fyrir fólk og vörur, er vandfundinn
áhættusamari atvinnurekstur. Jafnframt bendir ýmis-
legt til að yfir f lugi sé ævintýrablær sem margir sogast
að þó að þeir eigi ef til vill ekki til þess erindi.
Síðari hluta þessarar sögu hafa erlend flugfélög
lagt leiðir véla sinna hingað og í reynd hefur framboð
flugferða héðan og hingað verið meira en búast mætti
við alla jafna – allt þar til viðbrögð ríkja víða um heim
við faraldrinum eyðilögðu það allt. Nú fljúga hingað
og héðan örfáar vélar á viku og Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar er mestanpart auð. Það er dapurlegt vitni um
eyðingarafl faraldursins og viðbragða við honum.
Mitt í þessu öllu hefur Icelandair staðið í harðri
baráttu fyrir tilvist sinni. Baráttan var reyndar hafin
nokkru fyrir faraldurinn, þegar ótrúleg atburðarás
leiddi til þess að endurnýjun flugflota félagsins fór í
vaskinn á síðasta ári.
Barátta Icelandair hefur einkennst af miserfiðum
samningum við flugstéttir, lánardrottna, f lugvélaverk-
smiðjur, fjármálafyrirtæki og ríkið um ríkisábyrgð.
Síðasti hluti þessa umfangsmikla verkefnis var að
afla félaginu að minnsta kosti 20 milljarða króna í nýju
hlutafé. Á því hékk fjöldi annarra atriða.
Það er ekki vafi á að Icelandair er grundvallarfyrir-
tæki hér á landi og öflug starfsemi þess mun skipta
sköpum þegar líf færist í eðlilegra horf eftir faraldur-
inn og fólk fer að ferðast á ný.
Það þarfnast skýringa að einn fjölmennasti og
öflugasti lífeyrissjóður landsins hafi ekki tekið þátt í
útboðinu. Ofan í kaupið er hann sá sjóður sem flestir
starfsmenn Icelandair greiða iðgjöld til og til þessa,
stærsti hluthafinn. Ekki er víst að allir sem greiða
iðgjöld í sjóðinn séu sáttir við þá ákvörðun. Skugga-
stjórnunarhættir forystumanns verslunarmanna hafa
þar sjálfsagt ráðið miklu og sú íhlutun hlýtur að verða
til skoðunar hjá eftirlitsaðilum í framhaldinu.
Nú liggur fyrir að viðtökur fjárfesta voru þannig að
allt það röfl skiptir ekki máli. Nýtt óskabarn þjóðar er
orðið til með ellefu þúsund hluthöfum. Eftir allt virðist
augljóst að hlýir straumar liggja til félagsins.
Niðurstaðan er sigur og markar fyrsta skrefið í
endurreisninni þegar efnahagslega óveðrið gengur
niður.
Óskabarnið
Íslenskupróf fyrir umsækjendur um
íslenskan ríkisborgararétt
haustið 2020
Íslenskupróf vegna umsókna um íslenskan ríkisborgararétt verða
næst haldin:
• á Akureyri, miðvikudaginn 18. nóvember kl. 13.00
• í Reykjavík, vikuna 23. – 27. nóvember kl. 9.00 og kl. 13.00
Skráning hefst 22. september og fer fram með rafrænum hætti á
www.mimir.is
Síðasti skráningardagur er 3. nóvember.
Prófgjald er 35.000 kr.
Útlendingastofnun flytur á Dalveg 18 í Kópavogi
Vegna flutninganna verður Útlendingastofnun lokuð
í dag föstudaginn 15. desember.
Stofnunin opnar á Dalvegi 18 í Kópavogi
mánudaginn 18. desember klukkan 9.
Útlendingastofnun • Dalvegi 18 • 201 Kópavogi • www.utl.is
1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN