Fréttablaðið - 19.09.2020, Page 26
Þjóðverjinn Heinz Bernhard Sommer og Rúmeninn Victor Sor in Epifanov voru dæmdir í sjö ára fangelsi, fyrir tilraun til að smygla
fjöru tíu kílóum af am feta míni og
fimm kílóum af kókaíni í bílnum.
Landsréttur staðfesti þennan dóm
þann 11. september.
Heinz hyggst sækja um áfrýjun
arleyfi til Hæstaréttar að sögn verj
anda hans, Þorgils Þorgilssonar.
Þetta er eitt stærsta fíkni efna mál
sem komið hefur á borð lög reglu
hér á landi, en um var að ræða mörg
hundruð þúsund sölu skammta sem
reynt var að smygla inn í landið.
Sagan er hin undarlegasta og
teygir sig yfir tvö ár og níu lönd.
Skuldugur bankamaður, sköllóttur
vaxtarræktarmaður, falin fíkni
efni í leynihólfi, 21 þúsund evrur
í reiðufé, tveir menn sem reynast
vera einn og hinn sami og drauma
ferð í Bláa lónið sem aldrei varð af.
Einn eða tveir höfuðpaurar
Tveir dularfullir menn, kallaðir A
og B í dómskjölum, voru nefndir í
skýrslutöku Heinz og Victors. Talið
er að þeir séu höfuðpaurar fíkni
efnasmyglsins. Margt er óljóst með
mennina og telur lögregla að þetta
gæti jafnvel verið einn maður, en
ekki tveir.
Victor sagði við lögreglu að rúm
enskur maður búsettur í Þýska
landi, þessi sem er kallaður B,
hafi staðið að baki ferðalaginu til
Íslands og er hann því talinn tengj
ast innflutningi fíkniefnanna. Vict
or lýsti manninum fyrir lögreglu
og sagði hann rúmlega þrítugan,
sköllóttan og sterkbyggðan. Hann
tók þó fram að hann vissi ekki rétt
nafn hans, því hann hefði aldrei séð
persónuskilríki hans.
Sá sköllótti á að hafa ráðið Victor
í verkefni á Íslandi, en þar sem Vict
or er ekki með ökuréttindi þurftu
þeir að finna ökumann. Það gerðu
þeir í gegnum byggingamann,
þennan sem kallaður er A, en hann
hafði átt í samskiptum bæði við
Heinz og Victor.
Victor hafði áður unnið fyrir
byggingamanninn sem verktaki
og Heinz hafði verið beðinn um
að sjá um bókhald byggingafyrir
tækisins. Þannig á Heinz að hafa
blandast inn í málið, en hann var
fenginn inn í verkefnið sem öku
maður.
„Lítið sem ekkert er vitað um B,
eða hvort hann er í raun og veru til,“
segir í dómskjölum. Lögreglufull
trúi og rannsóknarlögregla sögðu
ekki hafa reynst unnt að fá stað
fest hjá lögreglu í Þýskalandi að sá
maður væri þar til. Vísbendingar
séu um að sá sköllótti (B) sé í raun
byggingamaðurinn (A).
Fyrrverandi bankastarfsmaður
Heinz er þýskur ríkisborgari
á eftirlaunum og fyrrverandi
bankastarfsmaður. Hann sagði
fyrir dómi að hann væri talsvert
skuldugur vegna skatta. Hann
hafi ekki haft mikið að gera þegar
hann kynntist Victori árið 2018.
Þeir þekktust vel en væru þó
ekki góðir vinir, en hefðu kynnst
í gegnum sameiginlegan vin í
tengslum við byggingafyrirtæki.
Drukku bjór í Reykjavík
Victor og Heinz fóru saman til
Íslands í fyrsta sinn í ágúst árið
2018 með Norrænu. Heinz segist
ekki hafa fundist neitt undarlegt
eða grunsamlegt við ferðina. Í
Reykjavík hafi þeir drukkið bjór,
skoðað sig um og annað í þeim
dúr. Þá nefnir hann að Victor hafi
hitt frænda sinn sem var staddur
á Íslandi en búsettur í Bandaríkj
unum.
Eftir fyrri Íslandsferðina ferðuð
ust Heinz og Victor saman til ann
arra Evrópulanda, þar á meðal til
Spánar, Sviss og Noregs. Segja þeir
þessar ferðir hafa verið ýmist vegna
Fjarstýrt leynihólf
Austin Mini Cooper bíll, sem gerður var upp tækur á síðasta ári, í
einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar, vekur afar mikla for-
vitni. Búið var að breyta bílnum og koma fyrir sérhönnuðu leyni-
hólfi í afturhluta hans, sem hægt var að opna með fjarstýringu.
Tímalína
2018
n Janúar - júlí
Efnaverkfræðingur telur að á
þessum tíma hafi verið gerðar
breytingar á bílnum til að
koma fyrir sérútbúnu hólfi.
n 2. - 9. ágúst
Heinz og Victor ferðast saman
til og frá Íslandi með Norrænu
í Mini Cooper bílnum. Þeir
gista í Reykjavík.
2019
n Janúar - febrúar
Bíllinn geymdur í Hollandi.
n 14. og 15. febrúar
Ferðast til Basel í Sviss.
n 17. maí
Fara á bílnum til Oslóar í
Noregi.
n 5. - 8. júlí
Ferðast til og frá Malaga á
Spáni með flugi um Düssel-
dorf í Þýskalandi.
n 11. - 17 júlí
Victor kemur með farþega-
flugi til Íslands frá Þýska-
landi. Dvelur á gistiheimili í
Reykjavík. Hann er í fylgd með
tveimur erlendum mönnum
sem komu til landsins þann
12. og 13. júlí Allir þrír fljúga
saman til Amsterdam í Hol-
landi. Misræmi er í fjölda
ferðataska þeirra við komu og
brottför frá landinu, að sögn
lögreglu.
n 16. júlí
Einn ferðafélaga Victors
sendir 1.680 evrur til Heinz
í gegnum Western Union á
Íslandi. Victor sendir einnig
sömu upphæð til rúmenskrar
konu sem talin er vera eigin-
kona A. Nokkrum vikum fyrir
Íslandsferð — Victor minnist
á Íslandsferð við Heinz, en
gef ur ekki upp nákvæma
dagsetn ingu.
n 28. júlí
Heinz segir Victor hafa mætt
heim til sín og spurt hvort
hann væri búinn að pakka.
Þeir væru á leiðinni til Dan-
merkur og þaðan til Íslands.
n 30. júlí
Heinz og Victor sigla með
Norr ænu frá Hirtshals í
Danmörku með viðkomu í
Þórshöfn í Færeyjum. Í ferjuna
hafa þeir með sér Austin Mini
Cooper bifreið, sama bíl og
þeir höfðu áður ferðast með,
nema með öðrum skráningar-
númerum.
n 1. ágúst
Koma til Seyðisfjarðar og
eru stöðvaðir af tollgæslu.
Heinz keyrir bílinn og Victor
er farþegi. Bíllinn er tekinn til
skoðunar og finnur fíkni-
efnahundur lykt í afturhluta
bílsins. Við frekari leit finnast
fíkniefni. Skýrslur teknar af
mönnunum.
n 3. ágúst
Úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
n 15. ágúst
Gefa skýrslur með réttarstöðu
sakbornings í annað sinn.
n 19. ágúst
Haldlagðar ljósmyndir bornar
undir Heinz og Victor.
n 21. ágúst og 20. september
Rannsóknarstofa staðfestir
að efnin séu amfetamín og
kókaín.
n 28. ágúst
Mennirnir gefa skýrslur í
þriðja sinn. Þeim ber saman
um að þeir hefðu ekki vitað af
fíkniefnunum í bílnum.
n 23. október
Ákæra frá héraðssaksóknara.
2020
n 10. febrúar
Dæmdir í sjö ára fangelsi.
n 11. september
Landsréttur staðfestir dóm
Héraðsdóms.
Um er að ræða eitt stærsta fíkniefnamál sem komið hefur á borð lögreglu hér á landi, en í Austin Mini Cooper
bílnum fundust mörg hundruð þúsund söluskammtar sem reynt var að smygla inn í landið. MYND/HÉRAÐSSAKSÓKNARI
Fíkniefnunum hafði verið komið fyrir í sérútbúnu lokuðu og læstu hólfi
undir farangursgeymslu aftan í bílnum. MYND/HÉRAÐSSAKSÓKNARI
HÓLFIÐ VAR LÆST MEÐ
RAFLOKUM SEM VORU
TENGDAR VIÐ STÝRI-
BÚNAÐ MEÐ ÞRÁÐLAUSU
AÐGENGI EÐA FJARSTÝR-
INGARBÚNAÐI.
Ingunn Lára
Kristjánsdóttir
ingunnlara@frettabladid.is
vinnu eða frís, en Victor hafi hitt
einhverja aðra menn í þeim ferðum
án Heinz.
21 þúsund evrur
Victor fór í eina ferð til Íslands án
Heinz í tengslum við verkefni fyrir
byggingamanninn. Ekkert hafi hins
vegar orðið af því verkefni. Þá hafi
sá sköllótti sett sig í samband við
Victor og beðið hann um að sækja
peninga fyrir sig úr því að hann
væri á Íslandi.
Hitti Victor ungan mann sem
lét hann fá umslag með 21 þúsund
evrum í reiðufé og fékk Victor að
eiga tvö þúsund.
Ætluðu í Bláa lónið
Áður en lagt var af stað í seinni
Íslandsferðina fékk Heinz ný föt
og nýja skó og var tjáð að öll ferðin
væri bókuð, með gistingu í Reykja
vík í fimm nætur. Hann átti að fá
100 evrur frá byggingamanninum í
upphafi ferðarinnar og 300 frá Vict
ori í lok ferðar.
Hann hefði ekki grunað að það
væru fíkniefni í bílnum og hefði
staðið í þeirri meiningu að hann
væri að fara í frí.
„Á leiðinni til Íslands hefðu
ákærði og meðákærði rætt saman
um hitt og þetta, en meðákærði
hefði aðallega verið að segja honum
til við aksturinn. Ákærði hefði
ætlað að vera í fríi, fara í búðir og
skoða sig um í Reykjavík, og hefðu
hann og meðákærði rætt það sín á
milli að þeir ætluðu að fara í Bláa
lónið,“ segir í dómskjölum.
Victor gaf þá skýringu að þeir
tveir hafi átt að sækja peninga fyrir
þann sköllótta, þar sem of dýrt væri
að senda þá á milli landa í gegnum
Western Union.
Framburður mannanna var
nokkuð á reiki, ósamrýmanlegur
og ósannfærandi á köflum, að mati
dómsins. Enn fremur taldi dómur
inn skýringar mannanna vart geta
staðist, að þeir hafi ekki vitað af
fíkniefnunum í leynihólfi bílsins.
Sérútbúið hólf í Mini Cooper
Fíkniefnunum hafði verið komið
fyrir í sérútbúnu og lokuðu hólfi,
undir farangursgeymslu aftan í
bílnum. Hólfið var læst með raf
lokum, sem voru tengdar við stýris
búnað með þráðlausu aðgengi eða
f jarstýringarbúnaði. Lögreglan
komst inn í hólfið með því að fjar
lægja ytri afturstuðara og opna
rennispjald sem búið var að koma
fyrir á innri stuðara.
Lögreglan fékk efnaverkfræðing
til að skoða og meta ástand hólfs
ins. Hann sagði ómögulegt að segja
nákvæmlega til um hvenær umrætt
geymsluhólf hafi verið útbúið, en
miðað við ástandið hafi breytingar
verið gerðar á bílnum á tímabilinu
janúar til júlí 2018.
Staðsetningarbúnaður með holl
ensku símakorti fannst einnig fal
inn í mælaborði bílsins.
Bíllinn var skráður á Victor Sorin
í þýskri ökutækjaskrá. Samkvæmt
upplýsingum sem lögreglan aflaði
hafði bílnum verið ekið frá Þýska
landi til Danmerkur um landa
mærin á SuðurJótlandi áður en lagt
var í síðari Íslandsförina.
1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð