Fréttablaðið - 19.09.2020, Page 34
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657.
Sirrý og eiginmaður hennar, Kristján Franklín Magnús, héldu nýlega upp á 30 ára
brúðkaupsafmæli. Hún segir að
þau hafi alla tíð verið mjög með
vituð um það að vera góð hvort
við annað, standa saman og tala
mikið saman. „Það þarf ekki að
vera mikið tilstand eða f lottheit
í hjónabandinu en það er nauð
synlegt að hafa tíma saman,“ segir
hún.
Núna þegar fáir fara til útlanda
er fólk duglegt að gera eitthvað
saman hér heima. Sirrý segir að
það sé einmitt það sem þau hjónin
gera. „Jú, það er nú eitt af því góða
við þetta annars erfiða ástand að
fólk fer núna miklu styttri leið
til að upplifa og njóta lífsins. Það
þarf ekkert að f ljúga. Rétt utan
við borgina og bæina eru staðir
sem bjóða upp á hvíld og róman
tík – og oft á tilboðsverði. Ég og
maðurinn minn nýttum okkur til
dæmis tilboð Fosshótela í sumar
og haust. Við áttum frábæra dvöl
á f lottum hótelum í Stykkishólmi,
við Jökulsárlón og víðar. Einnig
nýttum við okkur tilboð í Húsa
felli og vorum þar í golfi, gilja
böðum, fjallgöngum og sundi. Það
var frábært,“ segir hún.
„Mér hefur fundist best að hafa
einhverja hreyfingu, einhverja
áskorun áður en maður fer að
njóta hvíldar og dekurs. Göngur,
golf og útivist af ýmsu tagi er
nauðsynleg áður en farið er í
heitar laugar og góðan kvöldverð,“
bætir Sirrý við og þegar hún er
spurð hvort það þurfti að vera til
efni, svarar hún.
„Það fer eftir efnum og
aðstæðum fólks hverju sinni. En
nei í raun finnst mér mikilvægt að
hugsa um það að lifa fallega hvern
dag. Til dæmis að vera saman
á sunnudagsmorgnum með
eitthvað nýbakað úr bakaríinu,
blöðin og gott kaffi. Blóm og fal
lega lagt á borð. Mér finnst þetta
hreinlega mikilvægur hluti af
daglegu lífi. Ég þekki nokkra sem
ætluðu að gera svo margt saman
seinna en það kom svo aldrei að
því, því miður,“ segir hún, en vel
má minna fólk á að njóta þess að
lifa í núinu.
Þegar Sirrý er spurð hvert út á
land henni finnist mest gaman
að fara á hún erfitt með að gera
upp á milli nokkurra staða. „Ég
get nú ekki valið eitthvað eitt sem
er skemmtilegast. En mér fannst
til dæmis alveg frábært síðasta
vetur að aka bara upp í Hvalfjörð
og gista á Hótel Glym eina helgi.
Margt að skoða – fossinn, fjörður
inn og hafið og svo lúxusinn á
hótelinu, heitir pottar með útsýni
yfir sjóinn og góður matur. Það er
stutt að fara en algjörlega æðis
legt,“ svarar hún og er ákveðin í að
ferðast meira innanlands í haust
og vetur.
Þar sem Sirrý starfar við
Háskólann á Bifröst er hún
oft í snertingu við undurfagra
náttúru. Frá skólanum eru fal
legar gönguleiðir og á haustin er
gaman að skoða ótrúlega haust
liti í náttúrunni. „Þegar ég verð
með vinnuhelgar í byrjun vetrar
förum við konurnar saman í
göngutúra, borðum góðan mat
og njótum sveitalífsins í bland
við námið. Síðan fæ ég kannski
manninn minn til að koma upp
Hvíld og rómantík í sveitinni
Sirrý Arnardóttir stjórnendaþjálfari er rómantísk í eðli sínu og kann að njóta þegar svo ber undir.
Sirrý hefur gefið út bækur sem styrkja og efla konur. Fljótlega kemur út ný bók um heilsu karla.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Sirrý segir að
vel sé hægt að
njóta lífsins úti
í íslenskri nátt-
úru og jafnvel
að bregða sér
í dekur. Mörg
hótel bjóða góð
tilboð í haust.
MYND/EINKASAFN
Sirrý hefur
verið dugleg að
njóta Íslands
í sumar og
heimsótt marga
frábæra staði
auk þess að
nýta sér tilboð
hótelanna.
eftir að vinnuhelgi lokinni og
fara með mér í mat á Hraunsnefi
eða Varmalandi, gönguferðir að
Glanna og Paradísarlaut, í Jafna
skarðsskóginn og það er bara
mjög rómantískt að ganga og
spjalla saman við Hreðavatn. Það
er fall egt þarna í hrauninu allan
ársins hring. Pör geta farið saman
eða í vinahóp, bæði er skemmti
legt. Það þarf ekki að fara langt
eða skipuleggja eitthvað f lókið ef
hjartað og rétta manneskjan er
með í för,“ segir hún.
Sirrý hefur verið að þjálfa fólk
í öruggri tjáningu, kynningum,
viðtölum og samskiptum við
fjölmiðla enda sjálf gamalreynd
fjölmiðlakona. „Ég kenni þetta
líka við Háskólann á Bifröst og hef
gert í mörg ár ásamt því að halda
fyrirlestra. Þá hef ég nýlega tekið
við sem verkefnastjóri í „Mætti
kvenna – stofnun fyrirtækja“ sem
ég er alveg heilluð af. Það er ellefu
vikna fjarnám með öf lugum
vinnuhelgum við Háskólann á
Bifröst. Við förum af stað með
námskeiðið 23. október svo þetta
er mjög ofarlega í huga mínum
núna,“ segir hún, en Sirrý er að
senda frá sér nýja bók, „Þegar
karlar stranda – og leiðin í land“,
í samvinnu við VIRK og bókaút
gáfuna Veröld. Fyrri bók Sirrýjar
sem hún vann með VIRK heitir
„Þegar kona brotnar – og leiðin út
í lífið á ný.“
Það má með sanni segja að
það sé spennandi vetur fram
undan hjá henni og alltaf nóg
að gera.
Til dæmis að vera
saman á sunnu-
dagsmorgnum með
eitthvað nýbakað úr
bakaríinu, blöðin og gott
kaffi. Blóm og fallega
lagt á borð.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RNJÓTUM Í VETUR