Fréttablaðið - 19.09.2020, Qupperneq 36
Ég bý gjarnan til
minn eigin hring
eða undirlag úr gömlum
dagblöðum sem ég bleyti
og móta í hring sem ég
bind fast saman.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Nú þegar haustar og stemn-ingin í venjulegu ári væri að horfa til borgarferða
með vinunum, fjölskyldunni eða
makanum, þá vonumst við til þess
að landar okkar horfi meira til
þess að upplifa það sem Reykjavík
hefur upp á að bjóða,“ segir Val-
gerður Ómarsdóttir, hótelstjóri
hjá Radisson Blu, 1919 hótel. „Ég
held við finnum öll hvað fólk þráir
að komast út af heimilinu og hitta
vinahópinn, fagna stórafmælum
og gera sér dagamun.“
Öryggið í fyrirrúmi
Hótel 1919 hefur undanfarna
mánuði lagt ríka áherslu á skjót og
vönduð viðbrögð sem miða að því
að tryggja öryggi gesta og starfs-
fólks til hins ítrasta. „Við fórum
strax í vor í mjög viðamikið vott-
unarferli á okkar hreingerningar-
ferlum í samstarfi við SGS, sem er
alþjóðlegt fyrirtæki og í samstarfi
við Radisson hótelkeðjuna. Við
viljum vera viss um að við séum
að bjóða bæði okkar gestum og
okkar starfsfólki upp á eins öruggt
umhverfi og við mögulega getum
og á sama tíma halda áfram að
taka þátt í að skapa ljúfar minn-
ingar fyrir gesti okkar,“ skýrir
Valgerður frá, en ferlið felur meðal
annars í sér tuttugu skrefa við-
bragðsáætlun.
Staðsetning hótelsins er þá ein
sú besta sem á verður kosið. „Hótel
1919 er staðsett í einu fallegasta
húsi borgarinnar og á einum besta
stað í bænum fyrir borgarferð. Við
heiðruðum 100 ára sögu hússins
með endurnýjun á öllum her-
bergjum hótelsins á síðasta ári.
Herbergin og svíturnar endur-
spegla notalega skandinavíska
hönnun sem er hönnuð til að auka
upplifun og þægindi gestanna.
Herbergin eru mjög mismunandi
að stærð og gerð og setur hin
mikla lofthæð í húsinu mikinn
svip á þau.
Hið fullkomna ferðalag
Valgerður segir upplagt að gera sér
glaðan dag en hótelið er umkringt
veitingastöðum og verslunum,
auk þess að vera nálægt höfninni,
tjörninni og raunar hverju sem
hugurinn girnist. „Í miðbænum
eru fjölmargir og fjölbreyttir
möguleikar í boði þegar kemur að
matarupplifun, viðburðum og að
njóta saman. Við mælum eindreg-
ið með því að sofa út og rölta svo á
einn af þeim fjölmörgu veitinga-
stöðum sem bjóða upp á bröns, en
þeim fjölgar hratt nú þegar líður
á haustið. Hið nýja Hafnartorg
við hlið hótelsins býður svo upp á
fjölbreytta f lóru af verslunum og
frábært að geta verslað og losað
sig svo við pokana upp á herbergi
áður en haldið er áfram í næstu
búð eða í happy hour.“
Á komandi vikum séu mörg
tilefni til þess að brjóta upp
hversdaginn, njóta og skapa nýjar
minningar í góðum félagsskap.
„Það er alveg tilvalið að skella sér
í aðventuferð í borginni, versla
jólagjafirnar og fara á jólahlað-
borð. Svo eru einnig vetrarfrí fram
undan í skólunum og svo margt
í boði fyrir krakka í borginni og
þau kunna ekki síður að meta að
fara í frí á hótel.“
Nú sé tíminn og tækifærið til
að gera vel við sig og aðra. „Við
erum með tilboð á gistingu frá kr.
14.900 þessa dagana og vonum að
við fáum að dekra við sem flesta í
vetur. Svo eru gjafabréf í gistingu
frábær hugmynd sem tækifæris-
gjöf eða í jólapakkann.“
Á Fésbókarsíðu hótelsins eru allar
nánari upplýsingar um tilboðin á
hverjum tíma.
Borgarferð í hjarta Reykjavíkur
Hótel 1919 er staðsett í hjarta borgarinnar og því kjörinn áfangastaður fyrir þau sem vilja njóta
alls þess besta sem borgin hefur upp á bjóða, en möguleikarnir á afþreyingu eru ótæmandi.
Valgerður segir tilvalið að kynnast borginni á nýjan hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Við viljum vera
viss um að við
séum að bjóða bæði
okkar gestum og starfs-
fólki upp á eins öruggt
umhverfi og við mögu-
lega getum.
Það er einstaklega huggulegt og hlýlegt að prýða heimilið með fallegum haustkransi
og njóta litadýrðar haustdaganna
heima,“ segir Elísa Ó. Guðmunds-
dóttir, blómahönnuður og eigandi
blómabúðarinnar 4 árstíðir.
Elísa segir rakið að njóta
fagurrar árstíðarinnar með göngu-
ferðum um litríkt landslagið og
tína þar til efnivið í haustkransa
og haustskreytingar.
„Nú er rétti tíminn til að viða
að sér efnivið úr náttúrunni áður
en allt fellur undir. Að hafa augun
opin fyrir fallegum lauf blöðum,
lyngi, berjum og stráum og í raun
hverju sem til fellur og gleður
augað. Það er sívinsælt er að gera
sér hurðarkrans í haustlitunum og
margir gera sér haustkransa til að
hafa inni við,“ upplýsir Elísa.
Íslensk náttúra sé rík af heillandi
efnivið í haustskreytingar.
„Þetta er spennandi föndurefni
sem þornar oftast vel, en það er
helst greni sem sem getur hrunið
af og misst barrnálarnar. Þessi
árstíð er svo falleg og það má í raun
taka hvað sem er í kransagerðina,“
segir Elísa, sem hefur glöggt auga
fyrir samsetningu blómaskreyt-
inga og haustkransa, eins og sjá má
á myndunum.
„Best er að vinna kransinn þétt
og hafa meira efni í honum en
minna, því haustkransar rýrna
alltaf aðeins. Þá er fyrir öllu að
binda kransana þétt og vinna þá
áður en efnið þornar. Þá hrynur
minna úr þeim, maður nær betra
haldi, útkoman verður góð og
kransinn endist lengur.“
Þurrkuð strá nú í tísku
Ef ekki verður komist í kransa-
gerðina strax er gott að varðveita
efniviðinn með því að leggja hann
í kassa og geyma í kaldri farang-
ursgeymslu bíls yfir nótt.
„Ef lauf sem tínd voru á ferðalag-
inu eru ekki þegar blaut má hafa
svolítinn raka á þeim en í raun
dugar kuldinn til og viðheldur öllu
fersku og blautu í nokkra daga,“
segir Elísa sem hefur ráð undir
rifi hverju þegar kemur að vel
heppnaðri kransagerð.
„Fyrst þarf að huga að góðri und-
irstöðu sem er annað hvort tága-
hringur, sem margir eiga frá jólum,
eða að búa til sitt eigið undirlag úr
pappamassa, sem ég geri gjarnan.
Þá nýtir maður dagblöð með því
að bleyta þau og móta í hring sem
maður bindur fast saman.“
Elísa heldur áfram:
„Galdurinn við vel heppnaðan
krans er vír á rúllu í stað lausra
víra. Góð vírrúlla er lykill að góðri
endingu og útkomu, en ef maður
notar lausa víra er maður alltaf
að byrja upp á nýtt, festa þá og
ganga frá. Þá verður kransagerðin
miklum mun auðveldari ef maður
er búinn að klippa niður allt sem
nota á í kransinn fyrir fram og
hafa tilbúið í kringum sig. Þá þarf
maður ekki sífellt að sleppa takinu
til að klippa og sækja sér efnivið
heldur getur jafnóðum náð í hann
og fléttað inn í kransinn. Maður
notar svo vírrúlluna til að vefja
utan um kransinn, byrjar á að
festa vírinn vel á hringinn til að fá
gott hald og leggur svo haustlauf,
ber, lyng og hvað eina fallegt að
eigin smekk og vild yfir vírinn sem
maður færir niður og heldur áfram
að raða á kransinn þar til hann er
tilbúinn,“ útskýrir Elísa.
Hún segir tískustrauma fáa
þegar kemur að haustkrönsum.
„Fólk sækist eftir haustlitunum
og því sem náttúran gefur af sér á
þessum árstíma. Sumir vilja fín-
legan krans sem samanstendur
eingöngu af laufum og nú eru
þurrkuð strá í tísku sem er gnótt
af úti og tilvalin í haustkransa.
Aðrir kjósa stór ber og skrautlegri
kransa og allt er það jafn heillandi,
fallegt og móðins.“
Galdurinn er
vír á rúllu
Þegar haustar skiptir Ísland litum og
verður að gullakistu fyrir fagurkera
sem njóta þess að tína náttúruskraut
til heimilisprýði og stásslegra slots.
Blómahönnuðurinn Elísa kann þá list betur en margur að gera gullfallega haustkransa. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Elísa hefur efniviðinn ríkulegan og þéttvafinn í þessum glæsilegu haustkrönsum því kransar eigi það til að rýrna.
4 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RNJÓTUM Í VETUR