Fréttablaðið - 19.09.2020, Síða 37
Umsóknarfrestur er til 5. október. Nánari upplýsingar á www.hagvangur.is.
KÓPAVOGSBÆR
LEITAR AÐ LEIÐTOGUM
Í stefnu Kópavogsbæjar segir að hlutverk sveitarfélagsins sé að tryggja lífsgæði íbúanna með góðri og fjölbreyttri þjónustu. Með
það að markmiði samþykkti bæjarstjórn nýverið breytingar á skipuriti bæjarins sem fela í sér stofnun nýs sviðs, fjármálasviðs, svo
að rekstur og stjórnsýsla sveitarfélagsins verði enn skilvirkari. Skipurit Kópavogs telur því fimm svið. Tvö stoðsvið; stjórnsýslusvið
og fjármálasvið og þrjú fagsvið; menntasvið, velferðarsvið og umhverfissvið.
Stjórnsýslusvið hefur yfirumsjón með þeirri þjónustu sem bæjarskrifstofur Kópavogs veita íbúum sveitarfélagsins og öðrum
sem til þeirra leita með þjónustulund og vandaða málsmeðferð að leiðarljósi. Helstu verkefni stjórnsýslusviðs eru stjórnsýsla,
lögfræðitengd málefni, mannauðsmál, menningarmál, stafræn þróun, rekstur þjónustuvers auk nýsköpunar og þróunar.
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs fer því með forystu- og samhæfingarhlutverk í stjórnsýslu og þjónustu bæjarins.
Fjármálasvið mun sinna undirbúningi fjárhagsáætlunargerðar, fjárstýringu, reikningshaldi, launamálum auk þess sem ný deild,
innkaupadeild, verður til með skipulagsbreytingunum. Nýr sviðsstjóri fjármálasviðs veitir hagkvæmum innkaupum forystu um
leið og hann leiðir eftirlit með innkaupaferlum bæjarins og að þeim sé fylgt í hvívetna. Þá sér fjármálasvið um að veita bæjarráði
glöggar upplýsingar um stöðu reksturs og framkvæmda í hverjum mánuði. Sviðsstjóri fjármálasviðs er öðrum sviðsstjórum til
ráðgjafar í fjármálum einstakra sviða og tryggir að sett séu metnaðarfull markmið í rekstri þeirra.
SVIÐSSTJÓRI STJÓRNSÝSLUSVIÐS
SVIÐSSTJÓRI FJÁRMÁLASVIÐS
Helstu verkefni sviðsstjóra
• Dagleg stjórnun og rekstur stjórnsýslusviðs
• Ábyrgð á virkni stjórnkerfis bæjarins og yfirumsjón með miðlægri
stjórnsýslu og stoðþjónustu
• Ábyrgð á að stefnumörkun bæjarstjórnar sé fylgt eftir með
upplýsingamiðlun og stoðþjónustu við fagsvið bæjarins
• Stuðla að lýðræðislegum stjórnunarháttum með því að auka gegnsæi
og styrkja upplýsingaflæði
• Undirbúningur funda bæjarráðs og bæjarstjórnar
• Ábyrgð, ásamt bæjarstjóra, á því að ákvörðunum bæjarráðs
og bæjarstjórnar sé fylgt eftir innan stjórnsýslunnar
• Staðgengill bæjarstjóra í fjarveru hans
Helstu verkefni sviðsstjóra
• Dagleg stjórnun og rekstur fjármálasviðs
• Fjárstýring og rekstur bæjarsjóðs
• Ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og þriggja ára áætlunar
bæjarsjóðs fyrir A- og B-hluta
• Ábyrgð á öllu fjárstreymi í rekstri bæjarsjóðs
• Yfirumsjón með áætlanagerð og eftirfylgni
• Ábyrgð á reikningshaldi og uppgjörum
• Umsjón með innkaupum til rekstrar og framkvæmda í samræmi
við innkaupastefnu
• Ábyrgð á útreikningum og greiðslu launa og yfirsýn, umsjón
og eftirlit með kjarasamningum og framkvæmd þeirra
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem hentar starfseminni. Framhaldsmenntun kostur
• Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
• Farsæl reynsla af stjórnun ásamt reynslu af því að leiða breytingar
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, stefnumótun og
áætlanagerð
• Þekking og reynsla af rekstri og mannaforráðum
• Þekking og reynsla af samningagerð
• Framsýni, metnaður, frumkvæði og skipulagshæfileikar
• Hæfni til að miðla þekkingu og upplýsingum á íslensku og ensku
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf á sviði fjármála, viðskipta eða reksturs. Framhaldsmenntun
kostur
• Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
• Víðtæk þekking og reynsla af fjármálum, rekstri og áætlanagerð
• Farsæl reynsla af stjórnun og mannaforráðum
• Þekking og reynsla af samningagerð
• Þekking og reynsla af rekstri innan fyrirtækis eða opinberrar stofnunar
• Þekking og reynsla af stefnumótun ásamt reynslu af því að leiða
breytingar
• Sjálfstæði, metnaður, frumkvæði og skipulagshæfileikar
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára