Fréttablaðið - 19.09.2020, Qupperneq 38
Hjálparstarf kirkjunnar auglýsir
eftir verkefnisstýru fyrir opið hús
fyrir konur sem verður rekið í
anda hugmyndfræði um
skaðaminnkandi nálgun
Verkefnisstýra leiðir starf fyrir konur sem ekki eiga í örugg
hús að venda á daginn. Um er að ræða fullt starf. Starf-
semi í opnu húsi á að vera í gangi mánudaga til föstudaga.
Markmiðið er að mæta hverri og einni þar sem hún er stödd
af virðingu og kærleika. Gengið er út frá því að konurnar
sjálfar taki þátt í að móta starfið.
Reiknað er með verkefnisstýru í fullu starfi .
Helstu verkefni
• Móta og leiða starf í opnu húsi fyrir konur
• Einstaklingsviðtöl og ráðgjöf
• Meta félagslegar aðstæður, veita ráðgjöf og stuðning
• Einstaklingsbundin virkniúrræði
• Samstarf við stofnanir og fagaðila
• Þátttaka í kynningu á starfinu
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfinu
• Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
• Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
• Hæfni í mannlegum samskiptum, lipurð og hlýleiki
• Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfileikar
Gott væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist á netfangið: starf@help.is.
Umsóknarfrestur er til 30. september 2020.
Nánari upplýsingar: Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri,
bjarni@help.is og Vilborg Oddsdóttir umsjónarmaður innan-
landsstarfs, vilborg@help.is. Sími 528 4400.
Sjá nánar á www.heilsugaeslan.is undir laus störf og www.starfatorg.is
Sérhæfð störf hjá Þroska- og hegðunarstöð
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir sérhæfðu starfsfólki á sviði taugaþroska og
hegðunarvanda barna og unglinga.
Viltu verða hluti af teymi á Þroska- og hegðunarstöð og taka þátt í að efla þjónustu og stytta biðlista
með fjölgun fagaðila? Boðið er upp á fjölbreytt störf í örvandi starfs- umhverfi og góðum starfsanda.
Störfin eru tímabundin til 1 árs, með möguleika á framlengingu.
Þroska- og hegðunarstöð er miðlæg, sérhæfð starfseining innan HH þar sem þverfaglegur starfshópur
sinnir m.a. greiningu, ráðgjöf, meðferð, fræðslu, rannsóknum, framþróun og starfsþjálfun vegna barna
sem hafa frávik í taugaþroska, hegðun og/eða líðan. Markhópur starfseminnar eru 6-18 ára börn.
Starf læknis felst einkum í greiningu, ráðgjöf og meðferð
barna með þroska-, hegðunar- og geðheilbrigðisvanda í
þverfaglegu samstarfi við aðra sérfræðinga stöðvarinnar.
Hæfnikröfur
• Sérfræðimenntun í barna- og unglingageðlækningum
eða barnalækningum
• Staðgóð þekking, reynsla og/eða áhugi á greiningu og
meðferð barna með geðheilbrigðisvanda
Starf hjúkrunarfræðings felst einkum í þátttöku í þver-
faglegri greiningu á ADHD og skyldum röskunum, viðtölum og
eftirfylgd vegna lyfjameðferðar.
Hæfnikröfur
• Þekking og reynsla af vinnu með börnum og foreldrum
• Þekking á þroska og hegðun barna og unglinga og
algengum vanda svo sem ADHD og kvíða
• Reynsla af barnageðhjúkrun, skólahjúkrun og/eða
barnahjúkrun æskileg
Starf sálfræðinga felast einkum í greiningu, ráðgjöf, fræðslu
og hópmeðferð barna með frávik í þroska, hegðun og líðan
í þverfaglegu samstarfi við aðra sérfræðinga stöðvarinnar.
Hæfnikröfur
• Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu við greiningu
ADHD, einhverfurófsraskana, hegðunarvanda, kvíða
og skyldra raskana
• Reynsla af notkun helstu greiningartækja fyrir börn og
ungmenni
• Sérfræðiviðurkenning á sviði barnasálfræði eða
sérhæfing á sviði þroska-, geð- og hegðunarvanda hjá
börnum æskileg
Læknir (20-100%)
Hjúkrunarfræðingur (80-100%)
Sálfræðingar (80-100%) – 2 stöður
Umsóknarfrestur er til og með 1.10.2020
Nánari upplýsingar veitir
Gyða Haraldsdóttir
gyda.haraldsdottir@heilsugaeslan.is
513-5150
Óskum eftir að ráða verkefnastjóra
fráveitu í Reykjanesbæ. Nánari
upplýsingar á www.reykjanesbaer.is
undir laus störf. Umsóknarfrestur er til
og með 30. september 2020.
Við erum að
leita að þér!
Lyfjastofnun auglýsir laust starf sérfræðings í lyfjagátar- og aðgengismatsteymi. Teymið heyrir undir matsdeild á skráningarsviði.
Leitað er að öflugum einstaklingi sem er reiðubúinn að vinna fjölbreytt og krefjandi starf. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.
Markmið aðgengismats er að tryggja að lyf uppfylli þær kröfur sem gerðar eru varðandi aðgengi og þar með öryggi og verkun.
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.
Sótt er um starfið á www.alfred.is.
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2020. Nánari upplýsingar um starfið veita Guðrún Stefánsdóttir, teymisstjóri lyfjagátar og aðgengismatsteymis:
gudrun.stefansdottir@lyfjastofnun.is og í síma: 520-2100
SÉRFRÆÐINGUR Í AÐGENGISMATI
Lyfjastofnun er ríkisstofnun sem heyrir
undir heilbrigðisráðherra
Helstu hlutverk hennar eru að
gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á
Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld
á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa
eftirlit með lyfjafyrirtækjum og
heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta
gæði og öryggi lyfja og tryggja
faglega upplýsingagjöf um lyf til
heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá
Lyfjastofnun starfa um 70 starfsmenn.
Lyfjastofnun leggur áherslu á gott
vinnuumhverfi, starfsþróun og
framfylgir stefnu um samræmingu
fjölskyldulífs og vinnu.
Gildi Lyfjastofnunar eru
gæði – traust – þjónusta
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ:
• Mat á aðgengisgögnum og ritun matsskýrslna vegna umsókna
um markaðsleyfi lyfja
• Mat á samantekt á eiginleikum lyfja og fylgiseðla í tengslum
við aðgengismat
• Þátttaka í EES samvinnu t.d. vísindaráðgjöf
• Önnur verkefni sem heyra undir teymið/deildina
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Meistarapróf í lyfjafræði, lyfjavísindum, líffræði eða sambærileg
menntun sem nýtist í starfi
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Nákvæm, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
• Frumkvæði, sveigjanleiki og lausnamiðaðir vinnuhættir
• Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
• Mjög gott vald á ensku í ræðu og riti
• Góð tölvukunnátta
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R