Fréttablaðið - 19.09.2020, Síða 39
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á vef Hagvangs www.hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 25. september 2020.
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is.
Sameinað sveitarfélag Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar óskar eftir að
ráða byggingarfulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í nýju sveitarfélagi. Leitað er að öflugum einstaklingi
sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Næsti yfirmaður er framkvæmda- og umhverfismálastjóri.
Helstu verkefni:
• Byggingareftirlit og umsjón með
byggingarmálum sveitarfélagsins
• Ráðgjöf er varðar byggingarmál
ásamt móttöku og afgreiðslu
á byggingarleyfisumsóknum
• Framkvæmd úttekta og útgáfa leyfa
ásamt staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga
• Samskipti við hagsmunaaðila
• Önnur verkefni sem viðkomandi er falið
af framkvæmda- og umhverfismálastjóra
sameinaðs sveitarfélags
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður
skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010
• Góð þekking og reynsla á
sviði byggingarmála æskileg
• Mikil samskipta- og samstarfshæfni
• Frumkvæði og öguð vinnubrögð
• Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
• Góð almenn tölvukunnátta
Sameinað sveitarfélag Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar
óskar eftir að ráða skipulagsfulltrúa til starfa. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í lifandi umhverfi.
Næsti yfirmaður er framkvæmda- og umhverfismálastjóri.
Helstu verkefni:
• Umsjón skipulagsmála í sveitarfélaginu
• Útgáfa framkvæmdarleyfa og gerð
umsagna um skipulags- og byggingaerindi
• Umsjón með grenndarkynningu deiliskipulags-
breytinga og byggingaleyfa
• Auglýsir skipulagslýsingar og skipulags-
breytingar lögum samkvæmt
• Lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála
• Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa,
kjörna fulltrúa og aðra hagsmunaaðila
• Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af framkvæmda-
og umhverfismálastjóra sameinaðs sveitarfélags
• Umsjón með vinnu við gerð
aðalskipulags sameinaðs sveitarfélags
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem arkitekt,
landslagsarkitekt eða skipulagsfræðingur
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
• Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur
samkvæmt 7. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla
skipulagsreglugerðar nr. 90/2013
• Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er skilyrði
• Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
• Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Nákvæmni og hæfni í framsetningu efnis
• Góð almenn tölvukunnátta
BYGGINGARFULLTRÚI
SKIPULAGSFULLTRÚI
Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0