Fréttablaðið - 19.09.2020, Side 62
Geirlaug Þorvaldsdóttir er eigandi Hótels Holts. For-eldrar hennar, Þorvaldur
Guðmundsson og Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, byggðu það upp jafn-
framt því að reka vinsæla verslun,
Síld og fisk sem lengi var staðsett
við hliðina á hótelinu. Þau hjónin
voru einstakir listaverkasafnarar
og nú prýða hótelið margar af
verðmætustu myndunum, meðal
annars myndir eftir Kjarval, en
vinskapur var á milli þeirra.
Einstök listaverk
Geirlaug keypti hótelið árið 2004
af systkinum sínum og segist vilja
halda því í fjölskyldunni. Geirlaug
hefur haldið í hefðirnar og við-
heldur því einstaka, heimilislega
umhverfi sem Hótel Holt er þekkt
fyrir. Hún býður gestum upp á
listagöngu um hótelið tvisvar í
viku kl. 17.30. „Við bjóðum þeim
sem eru að koma í mat til okkar
að ganga um og heyra sögur um
verkin. Gangan er öllum opin, en
þeir sem koma af götunni þurfa að
greiða smávegis fyrir,“ segir Geir-
laug. „Hótel Holt er eitt af mjög
fáum hótelum í heiminum sem
hafa svona einstakt safn listaverka
uppi á vegg. Það er gaman að geta
sagt gestum frá þessum gömlu,
klassísku verkum meistaranna.
Við erum í sambandi við franskan
vef sem bendir fólki á hótel með
dýrmætum listaverkum. Margir
vilja sameina ferðalag og menn-
ingu. Það eru ekki margir sem
vita að Hótel Holt var upphaf-
lega byggt sem hótel og listasafn.
Fyrsta hæðin er friðuð og henni
verður ekkert breytt,“ útskýrir
hún. „Ég og starfsfólkið höldum
það í heiðri sem foreldrar mínir
lögðu upp með og geymum
söguna. Þau vildu að allir gætu
komið og skoðað þessi glæsilegu
verk, en þetta er stærsta listasafn í
einkaeigu hér á landi. Ég ber virð-
ingu fyrir því hvernig hótelið var
innréttað og manni líður eiginlega
soldið eins og að koma heim til
sín,“ segir Geirlaug.
Matur í hádeginu
Á hótelinu er vinsæll veitingastað-
ur þar sem boðið er upp á íslenskt
gæðahráefni. „Við leggjum metn-
að okkar í að hafa verðið sam-
keppnishæft og bjóða upp á góðan
mat,“ segir Geirlaug og bendir á
Glæsilegt tilboð á Hótel Holti
Hótel Holt hefur yfir sér virðulegan blæ þar sem það gnæfir yfir miðbæinn í Reykjavík. Hótelið var
opnað árið 1965 og geymir fádæma listaverkasafn. Á næstu dögum opnar Ostabúðin á Holtinu.
Geirlaug situr
hér í veitinga-
salnum á
Hótel Holti. Alls
staðar blasa
listaverkin við
gestum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Mikið og dýrmætt safn af verkum eftir Kjarval prýðir veggi hótelsins. Glæsileg setustofa þar sem notalegt er að setjast niður og slappa af.
fallegan barinn, þar sem fólk getur
komið inn af götunni og fengið sér
kokkteil eða annan drykk. „Nú
erum við að fara að opna aftur
matsalinn í hádeginu. Við bjóðum
upp á frábæran hádegisverð á
góðu verði. Síðan erum við með
Þingholt sem er fyrir veislur og
ráðstefnur. Nýlega fórum við að
leigja út þriðju hæðina fyrir skrif-
stofur svo það er margt að gerast á
Holtinu,“ segir hún. Við störfum í
samkeppnisumhverfi og leggjum
áherslu á góða og faglega þjónustu.
Hótelið er vel staðsett í rólegu
hverfi og stutt í allar áttir.“
Ostabúðin kemur á Holtið
Á Holtinu verður boðið upp á
glæsilegt tilboð í haust og fram til
jóla. Fólk sem býr á landsbyggð-
inni og borgarbúar sem vilja gera
vel við sig í glæsilegu umhverfi,
ætti að skoða þetta frábæra tilboð.
Að auki er Ostabúðin sem lengi var
á Skólavörðustíg að opna á Holtinu
en margir hafa saknað þeirrar
verslunar. Eigandi Ostabúðar-
innar, Jóhann Jónsson, lærði mat-
reiðslu á Holtinu á sínum tíma svo
hann er að koma á gamlar slóðir.
Geirlaug segist ekkert vera
að hugsa um að minnka við sig
vinnuna því hún hafi enn mjög
gaman af henni. „Ég er með gott
starfsfólk. Þetta er samvinna,“
segir hún. „Mér finnst ég ein-
staklega heppin að geta starfað
enn. Vinnan drepur engan. Nýjar
kynslóðir vaxa úr grasi og vonandi
koma þær líka á Hótel Holt og
upplifa þetta einstaka andrúms-
loft sem hér hefur verið ríkjandi í
55 ár.“
6 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RNJÓTUM Í VETUR