Fréttablaðið - 19.09.2020, Qupperneq 92
Lífið í
vikunni
13.09.20-
19.09.20
SÍÐAN SAGÐI HULDA
MÉR FRÁ DRAUMI SEM
HÚN ÁTTI. VIÐ BYGGJUM
SÝNINGUNA EIGINLEGA Á
ÞESSUM DRAUMI HENNAR.
Hjörtur
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
FLAKKANDI KOKKUR
Veitingamaðurinn Ólafur Örn
Ólafsson lagar sig að breyttum
heimi og breytti sjónvarpsþátt-
unum Kokkaflakki í samnefnt
hlaðvarp þar sem hann ræðir við
matarástfangna Íslendinga.
SKRIFAÐI SKÁLDSÖGU 13 ÁRA
Síðar í september kemur út fyrsta
skáldsaga Kristínar Bjargar Sigur-
vinsdóttur og ber hún heitið Dóttir
hafsins. Bókina skrifaði Kristín
upphaflega þegar hún var einungis
þrettán ára gömul.
FLÚÐI GREMJU Á FACEBOOK
Fyrrverandi Píratakafteininn
Birgitta Jónsdóttir er byrjuð aftur á
Facebook, þaðan sem hún forðaði
sér þegar hún áttaði sig á að hún
væri orðin ógeðslega leiðinleg. Hún
snýr nú aftur full af skapandi orku.
RÁÐHERRANN Á SKJÁINN
Sjónvarpsþættirnir Ráðherrann
fjalla um stjórnmálamann sem fer
í geðhvörf. Handritshöfundurinn,
Birkir Blær Ingólfsson, segir þá vera
grátbroslega en leggur áherslu á að
ekki sé gert grín að sjúkdómnum.
2ja sæta stærð 159 x 94 x 82 cm. Fullt verð: 119.990 kr.
Aðeins 101.992 kr.
3ja sæta stærð: 199 x 94 x 82 cm. Fullt verð: 149.990 kr.
Aðeins 127.492 kr.
Ný og glæsileg lína í DORMA. 2ja og 3ja sæta sófar, hornsófar,
hægindastólar, skammel og hnakkapúðar úr fallegu og slitsterku áklæði.
Þráðlaus fjarstýring
með 2 minnisstillingum
Verðdæmi: 80 x 200 cm stillanlegt C&J Silver rúm
með Nature’s Rest Luxury heilsudýnu: Fullt verð: 162.900 kr.
C&J SILVER
stillanlegt rúm
C&J Silver er með sterkum stálbotni og kraftmiklum en hljóðlátum mótor.
Rúminu fylgir þráðlaus fjarstýring með tveimur minnum og ljósi.
Botn rúmsins dregst að vegg þannig að þú ert í eðlilegri fjarlægð frá náttborði og lampa.
Sérstakur takki á fjarstýringunni kemur rúminu í upphaflega stöðu.
15%
AFSLÁTTUR
VIKU
TILBOÐ
Aðeins 138.465 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Vikutilboð DORMA
17. til 23. september
Sendum frítt um allt land!
www.dorma.is
SENDUM
FRÍTT
LICATA
2ja og 3ja sæta sófar
15%
AFSLÁTTUR
VIKU
TILBOÐ
Koníaksbrúnt eða grátt
bonded leður og grátt
Brunei sléttflauel
Hjörtur og Hulda segja að nóg verði í boði af spritti og grímum í ljósi aðstæðna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þau Hulda Vilhjálms-dót t i r og Hjör t u r Mat t h ía s Sk ú la son opna í dag sýninguna Hugrún í Gallery Porti. Hulda hefur starfað
sem myndlistarkona um árabil og
Hjörtur er vöruhönnuður.
„Ég er mest að mála málverk en
svo geri ég líka skúlptúra. Á sýning-
unni núna eru þetta sem sagt mál-
verk frá mér,“ segir Hulda.
„Ég er alltaf pínu að daðra við
myndlistina. Á þessari sýningu er ég
að gera þrívíð verk,“ segir Hjörtur.
Yfirnáttúrulegar verur
Hjörtur og Hulda eru gamlir vinir.
Fyrir ári sátu þau saman og fóru
að daðra við þá hugmynd að sýna
saman.
„Síðan sagði Hulda mér frá draum
sem hún átti. Við byggjum sýning-
una eiginlega á þessum draumi
hennar. Sýningin heitir Hugrún,
sem er þá hugarfóstur okkar,“ segir
Hjörtur.
„Það er þessi súrrealismi sem er
þemað í sýningunni, sem byggir á
þessum draumi. Hann gerðist í nátt-
úrunni og það eru verur sem heim-
sækja mig. Þetta er smá þráðurinn
í sýningunni. En hver og einn upp-
lifir sýninguna auðvitað á sinn hátt.
En hún er byggð svolítið á yfirnátt-
úrulegum verum sem heimsækja
okkur,“ segir Hulda.
Draumur á lérefti
Draumurinn kom til Huldu þegar
þegar hún var í tjaldi í Þjórsárdal.
„Það kom svo sterkt til mín, ein-
hver saklaus vera sem mig langaði
svo mikið að túlka. Þessi vera var
fyrir mér ósjálf bjarga og þurfti
aðstoð og hlýju. Hér er ein mynd
sem heitir engillinn, á henni er ég
einmitt að reyna túlka þessa veru.
Það er svolítið erfitt að túlka það
sem maður upplifir í draumi yfir
á léreftið. Það var smá vandi. Ég
reyndi að skissa og svo kom þetta að
lokum ósjálfrátt hjá okkur. Hjörtur
fór að sauma dúkkur og ég að gera
keramík. Við tengjum þetta líka svo
mikið við náttúruna,“ segir hulda
Sýningin er einnig að miklu leyti
byggð á samtölum sem þau vinirnir
hafa átt í gegnum árin.
„Ég fór sjálfur að vinna aðeins
með þennan draum eftir að hún
sagði mér frá honum,“ segir Hjörtur.
Listin mikilvæg
Hulda segir að hún hafi mikið
unnið með drauma í verkum sínum
í gegnum tíðina.
„Ég er líka með gömul verk á sýn-
ingunni sem líka tengjast draum-
um. Maður gerir stundum hluti
ómeðvitað. Það er merkilegt hvað
það tekur oft langan tíma að átta sig
á samhenginu í hlutunum. Stund-
um set ég upp sýningar og átta mig
ekki alveg á því hver stefnan er, en
sé hana svo skýrt kannski nokkrum
árum seinna,“ segir Hulda.
Hún segir þetta vera algengt
þegar unnið er með óhlutbundna
og súrrealíska hluti.
„Kannski erum við listamenn
spámenn, sjáum ómeðvitað fram
í framtíðina. En núna er listin svo
mikilvæg. Við erum að upplifa erf-
iða tíma og það er eflaust gott fyrir
mann að lifa aðeins í draumaheimi
til að komast í gegnum þetta,“ bætir
Hulda við.
Sýningin verður opnuð í dag í
Gallery Porti við Laugaveg 23b og
nóg verður að spritti og grímum
fyrir gesti. steingerdur@frettabladid.is
Sýning út frá draumi
Myndlistarkonan Hulda Vilhjálmsdóttir og vöruhönnuðurinn
Hjörtur Matthías Skúlason opna í dag sýninguna Hugrún. Hana
byggðu þau á draumi sem kom til Huldu þegar hún gisti í Þjórsárdal.
1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð