Náttúruvernd


Náttúruvernd - 01.06.1932, Síða 6

Náttúruvernd - 01.06.1932, Síða 6
6 landsins, hverju nafni sem þau nefnast, má skoða sem innstæðu eða höfuðstól í banka eða sparisjóði. Ef vextir af innstæðu í banka, og nokkuð af höfuðstólnum, er tekið út árlega og eytt, fer svo að lokum, að innstæðan þrýtur. Sama gegnir með hlunnindin. Ef þeim er rænt svo að þau ganga til þurðar og nái sér ekki aftur, er auðsætt hvernig fer. Þau hverfa með öllu. Sönnun þess er afdrif geirfuglsins. Skógarnir hafa líka sína sögu að segja um ofþjökun og miskunarlaust rán. Þar hirtu menn bæði vextina og höfuðstólinn. Skógarkjarrið á Þingvallahrauni eru ómerkilegar leifar af höfuðstól, sem náttúran hafði komið þar á stofn. Með því að friða þær er reynt að skila næstu kynslóð ofurlitlu af hinum rænda höfuðstól. Bankahrun og óhöpp peningastofnana stafa venjulega frá óskilvísum og óráðvöndum viðskiftamönnum. Og svo er um forn bændabýli, sem rétt sézt votta fyrir í útjaðri Þingvallaskógar. Þau hafa lagst í eyði — hrunið — vegna vanskila og óreiðu ábúanda gagnvart náttúrugróðrinum. Þeir hirtu bæði vextina og höfuðstólinn, og því urðu af- leiðingarnar svo ömurlegar. Býli, sem enn .í dag lifa ná- lega eingöngu á ránsafla úr skauti landsins, og standa ekki í skilum við forðabúr náttúrunnar, eiga í vændum hlutskifti eyðibýlanna. Innan takmarka friðhelginnar á Þingvöllum er gert ráð fyrir að leggja árlega alla vextina, af framleiðslu náttúrunnar, við stofninn — náttúrugróðurinn — hvort sem þeir heyra til jurta- eða dýraríkinu. Þess vegna má enga jurt skemma þar eða skerða. Hin minnsta planta sem hin stærsta, á að fá að lifa þar og deyja. Örlítil jurt leggur líka skerf sinn, til höfuðstólsins, er síðar elur og nærir næstu jurtakynslóð. Þetta gengur koll af kolli þang-

x

Náttúruvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúruvernd
https://timarit.is/publication/1477

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.