Náttúruvernd - 01.06.1932, Síða 21
21
íí áttúrn vernd.
Algerð friðun verður jafnan öruggasta leiðin, sem
menn geta farið, til að varðveita fágæt villt dýr og jurtir
frá gereyðingu. Að vísu getur tamning og ræktun komið
í staðinn fyrir friðun, en hæpið er, að mönnum takizt að
veita þau skilyrði, sem hæfa hverri tegund. Enda er
venja að lýsa friðun yfir tegundinni, þegar sýnilegt er,
að hún er að því komin að deyja út, ef menn vilja ekki
missa hana alveg, en ekki byrjað á að rækta hana. Enda
þá orðið um seinan, ef illa tekst.
Það er mikil þörf á að friða fugla hér á landi. Fyrst
og fremst vegna þess, að flestir þeirra eða jafnvel allir
gera þjóðinni meira gagn en ógagn. f öðru lagi eru fugl-
arnir með þeim fegurstu og skemtilegustu dýrum, sem
til eru, og í þriðja lagi til þess að halda tegundunum við,
sem til eru á landinu. Slík friðun mun að vísu vera óvel-
komin hjá mörgum, einkum þeim, sem gera fugláveiði
sér að atvinnu eða drepa fugla sér til skemmtunar. Hér
eru til fuglafriðunarlög, en þau eru brotin meira og minna
og vettugi virt. Kemur það oft til af því, að sumum mönn-
um finnst það meinbægni og óréttlæti að banna með lög-
um að nota sér náttúrugæði landsins. Náttúruverndar-
félag ætti meðal annars að hafa hér verkefni að vinna,
kenna mönnum að virða, og hafa í heiðri friðunarlög þau,
sem til eru og að auka þau og endurbæta.
Hér skal þó ekki að sinni farið út í einstök atriði
þeirra mála, sem náttúruverndarfélag hefði til meðferðar.
En víst er um það, að verkefni fyrir slíkan félagsskap
hér á landi, er nálega ótæmandi. Félaginu stæði opin leið