Fréttablaðið - 21.10.2020, Page 1

Fréttablaðið - 21.10.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 2 5 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 BúÚH! á meðan þú verslar Biti fyrir börnin NÁTTÚRUVÁ Hinn stóri jarðskjálfti sem reið yfir í gærdag er liður í mikilli spennulosun á Reykjanes­ hryggnum. „Við getum alveg reikn­ að með hrinum næsta árið,“ segir Ármann Höskuldsson eldfjalla­ fræðingur. Virknin hafi hafist í fjall­ inu Þorbirni í janúar og færist í átt til Bláfjalla. Þessu muni ljúka þegar virknin sé komin yfir í tenginguna við Suðurlandsskjálftabeltið. Seg­ ist Ármann hafa meiri áhyggjur af virkninni á Norðurlandi, sem færist sífellt nær Húsavík, en þar hefur byggst upp spenna í sprungum í hundrað ár. – khg / sjá síðu 6 Hrinur færast nær borginni Ármann Höskuldsson Kylfingar, sem hefur verið óheimilt að stunda golf á höfuðborgarsvæðinu síðustu vikurnar vegna sóttvarnareglna, þustu út á vellina þegar þeir voru opnaðir á nýjan leik í gær. Þeir létu ekki skjálftahrinu koma í veg fyrir golfiðkun sína. ÍSÍ hefur hvatt landsmenn til þess að hreyfa sig í COVID-faraldrinum og golf er góð leið til þess að liðka líkamann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VIÐSKIPTI Íslenska líftæknifyrir­ tækið Alvotech hefur gengið frá fjármögnun upp á samtals 65 millj­ ónir Bandaríkjadala, jafnvirði 9 milljarða króna, en um er að ræða stóra fjárfesta úr lyfjageiranum í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu sem munu leggja félaginu til aukið hlutafé, samkvæmt heimildum. Alvotech, sem er stýrt af Róberti Wessman stofnanda félagsins, hefur á undanförnum mánuðum unnið að útgáfu á nýju hlutafé að fjárhæð 100 milljónir dala en félagið væntir þess að ljúka útboðinu í næsta mánuði. Á meðal fjárfesta sem skoða nú að fjárfesta í fyrirtækinu eru íslenskir lífeyrissjóðir. Fulltrúar sjóðanna hafa á undanförnum vikum átt fjárfestafundi með stjórnendum og innlendum ráðgjöfum Alvotech en verði af fjárfestingu þeirra yrði það í fyrsta sinn sem íslenskir stofnana­ fjárfestar koma inn í eigendahóp félagsins. Samkvæmt fjárfestakynningu er fjármögnun Alvotech ætlað að styðja við rekstur þess fram að skráningu í Hong Kong á næsta ári. Þá áformar Alvotech að ráðast í stækkun á hátæknisetri sínu í Vatnsmýrinni, sem var tekið í notkun 2016, þannig að það verði samtals 24 þúsund fermetrar að stærð – það er 13 þúsund fermetrar í dag – og er áætlað að sú fjárfesting kosti jafnvirði 4,6 milljarða króna. Þá er lyfjafyrirtækið Coripharma á sama tíma að ganga frá milljarða fjármögnun sem ætlað er að renna stoðum undir þróun á samheita­ lyfjum hér á landi. Ef ætlanir Cori­ pharma ganga eftir mun það velta um 75 milljónum evra, jafnvirði 12,3 milljarða króna, árið 2025 og skapa 260 störf í þekkingargeiranum. Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma, segir viðræður vera í gangi við núverandi hluthafa, inn­ lenda fjárfesta og einnig fagfjár­ festasjóði sem lífeyrissjóðir koma að. „Við teljum okkur enn eiga inni hjá íslenskum fjárfestum og það má segja að Coripharma haki í mörg box sem eru í umræðunni í dag. Þetta er félag í þróunar­ og tækni­ geiranum sem stefnir að því að tvö­ falda starfsmannafjöldann á næstu fimm árum. Við erum að byggja upp þekkingu og endurvekja lyfjafram­ leiðslu í landinu.“ – hae / sjá Markaðinn Setja níu milljarða í Alvotech Alvotech hefur tryggt sér 65 milljónir dala í nýtt hlutafé frá erlendum fjárfestum. Lífeyrissjóðir skoða að fjárfesta í fyrirtækinu. Coripharma er einnig að ganga frá fjármögnun til að tryggja þróun samheitalyfja. 195 milljarðar króna er áætlað markaðsvirði Alvotech.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.