Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.10.2020, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 21.10.2020, Qupperneq 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Höfuð­ borgin á betra skilið en að vera hundsuð af þingmönn­ um sínum, sem eru rúmur þriðjungur alls þing­ heims. Staðan kallar til dæmis á umræðu um hver skurð­ punkturinn sé á milli sóttvarna­ aðgerða og efnahags­ aðgerða. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is Hrista, ekki hræra Jarðskjálftinn sem fékk Pírat- ann til að slá met Usain Bolt í 100 metrunum hefur verið túlkaður á alla vegu. Undir- skriftirnar vegna nýju stjórnar- skrárinnar voru af hentar í gær og mætti því túlka skjálftann sem velþóknun eða vanþóknun almættisins á því hitamáli. Aðrir gætu túlkað skjálftann sem vanþóknun á þá ákvörðun heilbrigðisráðherra að leyfa opnun líkamsræktarstöðva á meðan sundlaugar standa auðar. Allir sem hlusta á Útvarp Sögu vita hins vegar að skjálftann má rekja til upp- kasta almættisins vegna enn eins viðtalsins við Viðar Guð- johnsen. Hátíðarútgáfa Í ljós kom að takmörkuð laga- stoð er fyrir lokun tollhliðsins í Kef lavík þar sem ekki er búið að birta reglugerðina í Stjórnartíð- indum. Tímaritið Stjórnartíð- indi, sem fylgir öðru hverju ein- taki Lifandi vísinda, á enn eftir að birta rúmlega 300 alþjóða- reglugerðir sem Ísland hefur ákveðið að fylgja. Meðal þess er tilskipun um hvorum megin á að opna banana og reglugerð um hvernig standa á að borgara- legum handtökum þeirra sem spila jólalög of snemma. Stendur nú til að prenta þær allar í einu. Stjórnartíðindi XL-Director’s Cut má nálgast fyrir áramót í öllum skárri verslunum. Þungt ástand vegna heimsfaraldursins er nú talið í mánuðum og við blasir að nokkuð er í land. Í þeirri þreytu sem við finnum fyrir þarf að muna að skæður heimsfaraldur færir stjórnvöldum ekki aðeins rétt til að bregðast við heldur einnig skyldu. Hin pólitíska jafnvægislist lýtur svo að því hvernig það er gert. Í vikunni fór fram á Alþingi sérstök umræða um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til sóttvarnaráðstafana. Eftirlitshlutverk Alþingis er háð samtali og upp- lýsingagjöf. Vitaskuld hefur faraldurinn verið til umræðu á Alþingi, en fyrst og fremst að kröfu stjórnarandstöðu. Ríkisstjórnin hefur lítið frum- kvæði sýnt að öðru leyti en í umræðum um efna- hagsaðgerðir. Á hinum pólitíska vettvangi er það ekki aðeins réttur Alþingis heldur einnig skylda að sinna eftirlitshlutverki. Þegar reynsla er komin á sóttvarnalögin, sem sótt- varnaaðgerðir byggja á, verður að telja undarlega pólitíska forgangsröðun að endurskoðun sóttvarna- laga sé ekki ofar á lista ríkisstjórnarinnar. Lögin eru verkfærakista stjórnvalda og ákveðnir veikleikar hafa komið í ljós. Lögin þurfa að vera skýr og lagastoð aðgerða óumdeild. Tímabær endurskoðun hefur ekki með mildari eða harðari aðgerðir að gera, heldur að löggjöf sé skýr um aðgerðir og heimildir. Þessar aðstæður gera að verkum að hlutverk þingsins hefur sjaldan verið mikilvægara. Það er Alþingis að fara yfir framkvæmdina. Staðan kallar til dæmis á umræðu um hver skurðpunkturinn sé milli sótt- varnaaðgerða og efnahagsaðgerða. Það er pólitísk jafn- vægislist og umræðan þarf þess vegna að eiga sér stað á hinum pólitíska vettvangi. Þríeykið, smitrakningarteymið og fólk í framlínu á lof skilið fyrir framlag sitt. Það er hins vegar heil- brigðisráðherra að svara fyrir hugmyndafræði aðgerða í samtali við fulltrúa þjóðarinnar inni í þingsal og hvers vegna farið er að sumum tillögum sóttvarna- læknis en öðrum ekki. Umræða vikunnar í þinginu var þörf og góð, en hefði átt að eiga sér stað fyrr af hálfu stjórnarinnar og þarf að gerast oftar. Pólitísk jafnvægislist Þorbjörg Sigríður Gunn- laugsdóttir þingmaður Viðreisnar Reykjavík á fáa málsvara þessa dagana. Kjördæmakerfið er ekki bara ósann-gjarnt vegna þess ójöfnuðar sem það veldur milli kjósenda, heldur einnig vegna þess að þingmenn Reykjavíkur virðast ekki taka þátt í leiknum. Þing- menn Reykjavíkur virðast líta á sig sem þingmenn alls landsins, en þingmenn landsbyggðarinnar ein- blína á kjördæmi sín. Samfélagsleg áhrif heimsfaraldursins hafa komið niður á Reykjavík. Margfalt f leiri ferðamenn heim- sækja miðborgina en nokkurn annan stað á Íslandi og verslun og þjónusta á svæðinu er því í molum. Eigendum ferðaþjónustufyrirtækja um allt land er vorkunn, en sumarið var huggun harmi gegn – alls staðar nema í borginni. Stjórnvöld hafa ráðist í ýmsar aðgerðir til að milda höggið fyrir atvinnulíf um allt land – líka fyrir Reykjavík. En það hefur að mörgu leyti mistekist. Menningarverðmætin í höfuðborginni fá að mæta afgangi í allri umræðu. Menningarlíf í borginni hefur legið niðri að mestu síðan í vor. Miðborgin er ein- manaleg. Æ f leiri verslunar- og veitingarými standa auð. Borgarstjórinn á erfitt með að klæðast ekki læknasloppnum í faraldrinum, í stað þess að berjast fyrir íbúana. Borgin hefur orðið út undan. Á meðan Reykjavík hefur koðnað niður í faraldrin- um hafa þingmenn landsbyggðarinnar hvergi slegið slöku við í að minna á hagsmuni sinna kjördæma. Það vantar þyrlupall úti í Eyjum, björgunarpakka við atvinnuleysi á Suðurnesjum og að ef la skógrækt um landið. Það þarf að létta á sóttvörnum fyrir norðan en loka á Reykjavík. Það þarf að breyta Akureyri í borg. Það kann að hljóma léttvægt á sama tíma og stjórn- völd standa frammi fyrir krísunni. En þau okkar sem eru lokuð inni með skertan rétt til athafna dreymir mörg um bjartari tíð og iðandi borgarlíf á ný. Frá því þingið var sett í haust hefur einn þing- maður borgarinnar lýst áhyggjum af lífsmarki höfuð- borgarinnar. „Að ganga um miðborg Reykjavíkur, til dæmis að kvöldi til, er annað en það var. Ljósin á veitingastöðunum eru slökkt, stólar standa uppi á borðum og rými til að skapa tekjur er að hverfa,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, á fyrstu viku haustþingsins. Hún kvaddi sér hljóðs til að ræða áfengisgjald, þá tekjulind ríkissjóðs sem fæstir þingmenn treysta sér til að andmæla, en verður æ ósanngjarnari. Gjaldið hækkar þegar herðir að, en er aldrei lækkað. Skattar á áfengi og tóbak koma ekki aðeins verst niður á tekju- lægstu hópunum, heldur hitta mikilvæg fyrirtæki í miðborg Reykjavíkur gríðarlega illa fyrir á versta hugsanlega tíma. Þorbjörg er ekki eini þingmaður Reykjavíkur. Íbúar Reykjavíkur eiga tuttugu og tvo þingmenn og höfuðborgin á betra skilið en að vera hundsuð af þingmönnum sínum, sem eru rúmur þriðjungur alls þingheims. Hvað eru þeir allir að brasa? Eru þeir að hjálpa Loga Einarssyni að byggja borg fyrir norðan? Einmana borg 2 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.