Fréttablaðið - 21.10.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 21.10.2020, Blaðsíða 20
Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Félag Hlutur Áætlað söluverð hlutar (ma. kr.) Landsvirkjun 100% 312 Orkuveita Reykjav. 100% 261 Landsbankinn 100% 134 Íslandsbanki 100% 97 Landsnet 100% 70 Isavia 100% 67 Rarik 100% 49 ÁTVR 100% 19 Sorpa 100% 17 Harpa 100% 10 HS Veitur 66% 9 Íslandspóstur 100% 6 RÚV 100% 5 Orkubú Vestfj. 100% 5 Strætó 100% 2 Samtals 1.065 ✿ Áætlað söluverð á eignarhlutum ríkisins Stjórnvöld ættu að for-gangsraða í r ík isf jár-má lu m t il st uðning s verðmætasköpun í hag-kerfinu og ráðast í heild-stæða athugun á ríkis- rekstrinum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri og ýtarlegri skýrslu Viðskiptaráðs Íslands, sem ber yfirskriftina Hið opinbera – meira fyrir minna. Í skýrslunni má finna fjölmargar tillögur, hug- myndir og annað sem getur nýst í þeirri vinnu að auka framleiðni í rekstri hins opinbera. „Margir kalla eftir auknum útgjöldum ríkissjóðs en færri spyrja hvernig hægt sé að nýta fjármagnið betur. Nú, þegar hætta er á því að hagkerfið hafi orðið fyrir varan- legu höggi, er tímabært að skoða hvernig hægt er að auka framleiðni hins opinbera og hagræða, án þess að það bitni á atvinnustigi,“ segir Konráð S. Gíslason, aðalhagfræð- ingur og aðstoðarframkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs, í samtali við Markaðinn. Tilefni skýrslugerðarinnar er ekki einungis efnahagslega höggið sem kórónaveiran hefur veitt hag- kerfinu, heldur einnig aðrar stórar áskoranir sem hagkerfið stendur frammi fyrir. Í því samhengi er nefnt að öldrun þjóðarinnar á næstu áratugum muni krefjast stóraukinna útgjalda til heilbrigðis- kerfisins. Skýrsluhöfundar rifja upp að síðastliðin ár hafi verið mikill uppgangur í hagkerfinu. Lands- framleiðsla jókst um 35 prósent á árunum 2010 til 2019 og hinu opin- bera tókst að létta skuldabyrði sína. En aðstæður breyttust hratt. Á þessu ári munu útgjöld úr ríkis- sjóði aukast um tæplega 140 millj- arða króna og á sama tíma dragast skatttekjur saman. Er því útlit fyrir að hið opinbera verði í heild sinni rekið með nær 300 milljarða króna halla. „Lykilþáttur í bættri stöðu opin- berra fjármála voru stöðugleika- framlög föllnu bankanna upp á nærri 500 milljarða króna, sem runnu í ríkissjóð árið 2016. Ljóst er að slíkt mun ekki endurtaka sig og óvíst er hvenær ferðaþjónustan lifnar við á ný,“ segir í skýrslunni. Ríkisstjórnin áformar að á næstu árum muni hið opinbera styðja við hagkerfið með hallarekstri og að aukin útgjöld verði ekki fjár- mögnuð með skattahækkunum heldur lántöku. Skuldir hins opin- bera munu því aukast, en sam- kvæmt nýrri fjármálastefnu verða opinberar skuldir 59 prósent af landsframleiðslu árið 2023 og í lok sama árs er áætlað að uppsafnaður halli verði orðinn meiri en þúsund milljarðar. Viðskiptaráð telur rétt að hið opinbera styðji nú við hagkerfið af krafti með hallarekstri og lántöku, en þó þurfi að tryggja að útgjöld vegna neyðarástandsins verði ekki varanleg, svo opinber fjármál verði sjálf bær til lengri tíma. Einnig þarf að vinna markvisst að því að auka framleiðni hjá hinu opinbera, svo að útgjöldin verði skilvirkari, ef la samkeppnishæfni atvinnulífsins og hvetja til aukinnar fjárfestingar. Ein tillaga Viðskiptaráðs er að losa um þá eignarhluti sem hið opinbera fer með í opinberum fyrirtækjum en samkvæmt grófri áætlun skýrsluhöfunda væri hægt að af la töluverðra fjármuna með þessari leið. Áætlunin miðast við Brýnt að taka ríkisreksturinn í gegn Ráðast þarf í heildstæða athugun á starfsemi hins opinbera, að mati Viðskiptaráðs. Skuldir ríkissjóðs munu vaxa á miklum hraða og stórar áskoranir til lengri tíma litið. Sala á eignarhlutum ríkisins gæti skilað sem nemur uppsöfnuðum hallarekstri til 2023. Viðskiptaráð segir álitamál um ríkisrekstur sjaldan tekin til skoðunar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Nokkrar tillögur úr skýrslu Viðskiptaráðs n Selja á þær fasteignir ríkisins sem leiða til óhagkvæmrar nýtingar. n Kanna þarf möguleika á því að hið opinbera losi um eignarhluti sem hið opin- bera fer með í fyrirtækjum. n Nýta þarf tækifæri í sam- vinnu einka- og opinberra aðila í auknum mæli, t.d. með samvinnuleið (PPP) um innviðaverkefni. n Ýmis verkefni má færa frá hinu opinbera til einkaaðila í heilbrigðisþjónustu, menntamálum og eftirlits- starfsemi, líkt og gert er í meira mæli á hinum Norður- löndunum. n Stuðla þarf að því að einka- fjárfesting aukist á ný með skattalegum hvötum til einstaklinga og fyrirtækja, ásamt því að bæta í hvata til nýsköpunar. n Hafi einkaaðilar haslað sér völl í ákveðinni starfsemi á ríkið að stíga til hliðar og hætta samkeppnisrekstri. n Draga þarf úr miðstýringu í menntakerfinu. n Horfa þarf til sameiningar ríkisstofnana svo þær geti sinnt hlutverkum sínum með fullnægjandi hætti. Nú, þegar hætta er á því að hagkerfið hafi orðið fyrir varanlegu höggi, er tímabært að skoða hvernig hægt er að auka framleiðni hins opinbera og hagræða, án þess að það bitni á atvinnustigi. Konráð S. Guðjónsson, aðalhagfræðing- ur Viðskiptaráðs Íslands 0 -200 -400 -600 -800 -1.000 -1.200 2020 2021 2022 2023 Uppsafnað -1.013 -175-237-298-303 ✿ Afkoma hins opinbera, ma. kr. svokallað V/I- hlutfall, það er mark- aðsverð miðað við eigið fé, hjá sam- bærilegum fyrirtækjum. Samkvæmt áætlun Viðskipta- ráðs væri hægt að losa um 1.065 milljónir króna með sölu á eignar- hlutum ríkisins, og þar af rúmar 800 milljónir með sölu á Lands- virkjun, Orkuveitu Reykjavíkur, Landsbankanum og Íslandsbanka. „Þess utan myndi sala á eignar- hlutum hins opinbera auka sam- keppni, verðmætasköpun og störf innan einkageirans ásamt því að ýta undir fjárfestingu.“ Þá er ríkið stærsti eigandi fast- eigna á Íslandi með samtals 900 þúsund fermetra af húsnæði í um 954 fasteignum. Heildarfasteigna- mat þessara eigna er um 164 millj- arðar króna. Viðskiptaráð bendir á að nýting þeirra sé óhagkvæm, en árið 2015 var gerð úttekt þar sem fram kom að ríkisstofnanir á höfuð- borgarsvæðinu notuðu nærri tvö- falt f leiri fermetra á hvern starfs- mann en alþjóðleg viðmið segðu til um. Að mati Viðskiptaráðs væri æski- legt að ríkið seldi þessar eignir. „Leigi hið opinbera fasteignir á almennum markaði er líklegra að nýting húsnæðisins verði betri.“ Viðskiptaráð segir brýnt að auka framleiðni í opinberum rekstri, enda sé óraunhæft að hið opin- bera takist á við þær áskoranir sem fram undan eru með því að hækka skatta. Bent er á að framleiðni í opinberri þjónustu hafi setið eftir í samanburði við aðrar atvinnu- greinar. Frá árinu 2008 hefur árlegur meðalvöxtur á framleiðni einungis verið 1 prósent hjá hinu opinbera, samanborið við 2 pró- sent í öðrum geirum atvinnulífsins. „Í þessu ljósi vakna áleitnar spurningar um hvort laun hjá hinu opinbera séu orðin ósjálf bær í hlut- falli við af köst og hvort meðferð skattfjár sé forsvaranleg.“ Að mati skýrsluhöfunda eru margar leiðir færar til að auka fram- leiðni í ríkisrekstri og ein þeirra er sú að sameina embætti og ríkis- stofnanir. Þeir telja æskilegt að sam- eina Samkeppniseftirlitið, Póst- og fjarskiptanefnd, Neytendastofu og fjölmiðlanefnd í eina ríkisstofnun. „Í nágrannaríkjunum má finna dæmi um sameiningar af þessum toga,“ benda skýrsluhöfundar á. „Þannig starfrækja Finnland og Danmörk til að mynda Samkeppn- is- og neytendaeftirlit í einni stofn- un og í Hollandi var samkeppnis- eftirliti, póst- og fjarskiptaeftirliti og neytendaeftirliti steypt í eina stofnun.“ Einnig eru sögð tækifæri í því að viss eftirlitsstarfsemi verði færð frá sveitarfélögum, en í dag sinna 76 byggingarfulltrúar eftirliti með húsbyggingum og heilbrigðiseftir- lit sveitarfélaganna eru tíu talsins. Að mati Viðskiptaráðs má leggja þessi embætti niður og sameina í eina stofnun. Auk þess má kanna möguleika á frekari sameiningu sýslumannsembættanna sem eru nú níu talsins. Þá leggur Viðskiptaráð til að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga verði lagður niður. Sameiningar sveitar- félaga ættu með skýrum hætti að vera tengdar framlögum úr jöfn- unarsjóði, frekar en íbúafjölda. „Þannig mætti til dæmis líta á framlög til sveitarfélags úr Jöfn- unarsjóði 3-5 ár aftur í tímann og setja viðmið um sjálf bærni sveitar- félagsins og þörf á sameiningu þess við önnur út frá því,“ segir í skýrsl- unni. „Hafi viðkomandi sveitarfélag þegið slík framlög úr sjóðnum að rekstur þess verður ekki talinn sjálf bær, sé ljóst að sveitarfélagið þurfi að sameinast öðru.“ 2 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.