Fréttablaðið - 21.10.2020, Side 31

Fréttablaðið - 21.10.2020, Side 31
Það kannast flestir, sem eru orðnir eldri en tvævetra, við stóru gulu söfnunarkúlurnar sem voru okkar einkennismerki í upphafi. Í dag þekkir fólk okkur á fjólubláu kössunum við grenndar- stöðvarnar,“ segir Torfi Jóhanns- son, verkefnastjóri Grænna skáta. Í dag er rekstur Grænna skáta með þrennt í fyrirrúmi. Í fyrsta lagi er það umhverfis- vernd, það að koma umbúðum í réttan farveg og gæta þannig að hag umhverfisins. Í öðru lagi er það að veita fólki með skerta starfsgetu tækifæri til atvinnu og tekjuöfl- unar. Í þriðja lagi er það styrking við skátastarfið, en allur ágóði af söfnunarstarfinu rennur beint í það góða starf sem skátarnir reka um allt land. Grænir skátar reka móttökustöð fyrir skilagjaldsskyldar umbúðir í Hraunbæ, en móttakan þar mun tvöfaldast í nóvember. Jafnframt hefur opnunartíminn lengst og er nú opið virka daga 9-18 og 12-16.30 laugardaga og sunnudaga. „Hjá okkur starfa rúmlega tuttugu starfsmenn frá Vinnumálastofnun við flokkun. Um er að ræða fjöl- breyttan hóp af fólki sem á það sameiginlegt að vera með skerta starfsgetu. Ásamt þessum hópi starfar svo hjá okkur fjöldi skáta sem aflar þannig fjár til skátastarfs- ins,“ segir Torfi. Markaðurinn stækkar Síðastliðin sex ár hafa Grænir skát- ar fikrað sig inn á stærri markað með því að bjóða fyrirtækjum, stofnunum og húsfélögum upp á stórsniðuga þjónustu við flokkun og skil á drykkjarumbúðum með skilagjaldi. „Það fer varla fram hjá neinum að það getur safnast upp gríðar- legt magn af einnota umbúðum og drykkjarílátum viku- eða mán- aðarlega hjá húsfélögum og fyrir- tækjum og er oft mikill hausverkur að sjá um talningu og flokkun á því. Okkar þjónusta virkar þannig að við mætum á staðinn með við- eigandi ílát, flokkum, teljum og skilum svo umsömdum hluta skila- gjaldsins inn á reikning félagsins. Þetta fyrirkomulag eykur þægindi fyrir starfsfólk og íbúa til muna. Þjónustan kostar húsfélagið ekki neitt nema hluta af skilagjaldinu, og afgangurinn rennur svo beint í húsfélagssjóð eða fyrirtækjasjóð, eftir því sem við á. Húsfélögin eru auðvitað mis- stór og neyslan mismunandi. Því finnum við út hversu oft þarf að tæma hvern stað miðað við hve fljótt söfnunarílátin fyllast. Það er líka alltaf hægt að hafa samband við okkur ef það verður yfirfullt og við komum og tæmum. Sumir aðilar kjósa enn fremur að láta allan ágóðann renna til okkar, sem skilar sér að sjálfsögðu beint í skátastarfið.“ Flokka og telja hlössin Að sögn Torfa hafa Grænir skátar einnig fikrað sig út fyrir höfuð- borgarsvæðið með söfnunina. „Við erum með nokkrar sumarhúsa- byggðir fyrir austan fjall í þjónustu hjá okkur þar sem við sækjum, flokkum og skilum. Einnig aðstoða Grænir skátar íþróttafélög og skóla- hópa við fjáraflanir. Það er auðvelt fyrir slíka hópa að safna dósunum ef ekki þarf að finna húsnæði til þess að flokka það sem safnast, áður en því er skilað til Endur- vinnslunnar. Okkar þjónusta felst þá í því að sækja stórar safnanir og sjá um þetta allt gegn hluta af skila- gjaldinu, en við höfum fjárfest í fyrsta flokks búnaði við að flokka, telja og flytja mikið magn af dósum og flöskum. Frá stofnun Grænna skáta hefur allur ágóðinn af þessari starfsemi runnið óskertur í skáta- starfið, sem hefur verið afar dýr- mætt fyrir skáta um land allt,“ segir Torfi að lokum. Nánari upplýsingar má nálgast á graenirskatar.is Velta þungu hlassi fyrir hvort tveggja húsfélög og fyrirtæki Það eru liðin rúmlega þrjátíu ár síðan Grænir skátar byrjuðu að safna skilagjaldsskyldum um- búðum og drykkjarílátum. Söfnunin hófst um leið og skilagjald fékkst fyrir umbúðaskil. Torfi, verkefnastjóri Grænna skáta, segir að ágóðinn sem kemur af söfnun á skilagjaldsskyldum umbúðum sé ómetanlegur styrkur fyrir skátastarfið um land allt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK. Grænir skátar þjónusta fjölda fyrirtækja, stofnana og húsfélaga á höfuðborgar- svæðinu með söfnun, flokkun og skilum á skilagjalds- skyldum drykkjarílátum. KYNNINGARBLAÐ 7 M I ÐV I KU DAG U R 2 1 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 ENDURVINNSLA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.