Fréttablaðið - 21.10.2020, Side 34

Fréttablaðið - 21.10.2020, Side 34
Um þessar mundir eru þrjú mál til meðferðar þar sem starfsemi og starfs-hættir hljóðbókaút-gefenda og bóksala eru lagðir á vogarskálar sam- keppnisreglna og höfundaréttar. Málin eru ólík að eðli en eiga það þó sameiginlegt að hljóðbækur, og framleiðsla þeirra, eru í brenni- depli. Miklir hagsmunir eru undir þar sem hljóðbókaútgáfa er orðin mikilvæg atvinnugrein um leið og hún breytir öðrum og eldri. Eggert Bjarni Ólafsson, lögmaður og sérfræðingur í samkeppnisrétti, fer yfir þessi þrjú mál. Það fyrsta er yfirtaka streymisveitunnar Storytel á Forlaginu, en um er að ræða yfir- töku stærsta framleiðanda hljóð- bóka hér á landi á stærsta útgefanda prentaðra bóka. Bæði rithöfundar og forleggjarar hafa lýst yfir áhyggj- um sínum af samrunanum. Tilkynnt var um yfirtökuna til Samkeppniseftirlitsins 20. júlí síð- astliðinn og er málið í svokallaðri „fasa II skoðun“ hjá Samkeppnis- eftirlitinu að sögn Eggerts, sem þýðir að stofnunin telur að yfirtakan geti skapað samkeppnisleg vandamál. Við meðferð málsins þarf Sam- keppniseftirlitið að svara því hvort með samrunanum verði til fyrir- tæki með markaðsráðandi stöðu á tilteknum skilgreindum markaði, einum eða f leirum, með tilheyr- andi hættu á verðhækkunum. Og í öðru lagi þarf það skoða hvort sam- runinn skapi hættu á útilokun frá markaði. Með öðrum orðum þarf að skoða hvort erfiðara verði fyrir keppinauta og viðskiptavini For- lagsins og Storytel að athafna sig á markaðnum eftir samrunann, sem að lokum gæti einnig leitt til minni verðsamkeppni og hærra verðs en ella. „Að líkindum mun Samkeppnis- eftirlitið heimila samrunann, en þó með skilyrðum, sem ætlað er að koma í veg fyrir að samruninn raski samkeppni með umtals- verðum hætti, eins og það er orðað í lögunum,“ segir Eggert og bætir við að önnur samkeppnismál þar sem bókaútgáfa hefur verið til meðferðar bendi til að þetta verði niðurstaðan. Þar með talið Uglumálið sem er enn til meðferðar hjá Samkeppniseftir- litinu. Uglumálið gefur vísbendingar Í maí síðastliðnum tók Penninn nýjar og nýlegar bækur Uglu útgáfu úr sölu í verslunum sínum ef þær voru jafnframt til sölu sem hljóð- bækur. Ugla kærði sölusynjunina til Samkeppniseftirlitsins, sem taldi að synjun fæli í sér misnotkun á mark- aðsráðandi stöðu og því væri ástæða til að beita bráðabirgðaákvörðun í málinu. Það er fremur sjaldgæft að sögn Eggerts. Pennanum var lagt fyrir að taka bækur Uglu aftur í sölu. Þótt end- anleg ákvörðun í málinu liggi ekki fyrir má finna vísbendingar um hvernig stofnunin mun afgreiða samruna Storytel og Forlagsins. „Samkeppnisyfirvöld eru gjarnan íhaldssöm í markaðsskilgreiningu. Ef tiltekinn markaður hefur verið skilgreindur með ákveðnum hætti í samrunamáli eða samkeppnis- brotamáli, þarf yfirleitt mikið að breytast til að önnur markaðs- skilgreining verði lögð til grund- vallar í síðara máli sem varðar sömu atvinnugrein. Markaðsskilgreining Samkeppniseftirlitsins í Uglumál- inu er í samræmi við þetta,“ segir Eggert. Þannig skilgreindi samkeppnis- eftirlitið starfsemi Pennans sem smásölu bóka í bókaverslunum, eins og það hafði gert í eldri málum þar sem bókaútgáfa var til umfjöllunar. Á þessum markaði, smásölu bóka í bókaverslunum, væri Penninn í markaðsráðandi stöðu. „Samkeppniseftirlitið virðist ekki hafa túlkað tilraun Pennans til að útiloka Uglu frá hinum hefðbundna bókasölumarkaði sem vísbendingu um að hljóðbókasala með streymi og hefðbundin bóksala tilheyrðu einum og sama markaðnum, smá- sölu bóka. Samkeppniseftirlitið tók þó fram að útgáfa hljóðbóka væri þýðingarmikill, tengdur markaður. Sú yfirlýsing opnar fyrir afskipti Samkeppniseftirlitsins af yfirtöku Storytel á Forlaginu,“ segir Eggert. Ýmis skilyrði koma til greina Samkeppniseftirlitið mun því ekki skilgreina samruna Storytel og For- lagsins sem láréttan samruna með tilheyrandi samþjöppun á markaði heldur mun það huga vandlega að lóðréttum áhrifum samrunans, svo sem markaðsaðgangi. „Hljóðbók verður ekki framleidd nema til sé efni fyrir upplestur. Þótt ekkert sé því til fyrirstöðu að efni sé frumútgefið á hljóðbók, þá er það ekki gert í raun að neinu marki. Nær allar hljóðbækur eru gerðar eftir bókum sem gefnar hafa verið út á prenti og allf lestar þeirra eru háðar höfundarétti. Prentaðar og höfundaréttarvarðar bækur eru því nauðsynlegt hráefni fyrir hljóð- bókagerð, ef svo má að orði komast,“ útskýrir Eggert. Storytel gæti þannig þrengt aðgang annarra hljóðbókafram- leiðenda að titlum Forlagsins og þar með stórum hluta „hráefnismarkað- arins“. Að sama skapi gæti Forlagið neitað höfundum um útgáfu nema þeir samþykktu jafnframt hljóð- bókaútgáfu á verki sínu. Auk þess gæti Storytel látið bækur útgefnar af Forlaginu ganga fyrir í hljóðbóka- framleiðslu og þannig skaðað sam- keppnisstöðu rithöfunda. „Það eru því allar líkur á að Sam- keppniseftirlitið muni setja yfirtöku Storytel á Forlaginu ýmis skilyrði, sem verði ætlað að tryggja að fyrir- tækin mismuni ekki keppinautum sínum og viðskiptavinum, þar með talið rithöfundum, og skapi ekki ójafnar samkeppnisaðstæður. Þá mun Samkeppniseftirlitið að öllum líkindum setja yfirtökunni skilyrði um hverjir megi sitja í stjórnum fyrirtækjanna og framkvæmda- stjórnum, í þeim tilgangi að tryggja óhæði stjórnenda fyrirtækjanna á meðan þau eru rekin sitt í hvoru lagi eins og gefið hefur verið út að þau muni gera,“ segir Eggert. Óánægja með ríkisumsvif Þriðja hljóðbókamálið varðar starf- semi Hljóðbókasafns Íslands. Ef hljóðbókaútgáfa er sett í f lokk með útgáfu prentaðra bóka þá var Hljóð- bókasafnið stærsti útgefandi bóka hér landi um margra ára skeið. Það var ekki fyrr en á síðasta ári, þegar Storytel kom inn á markaðinn með 300 útgefna titla, að útgáfutölur Hljóðbókasafnsins voru jafnaðar. Eggert segir að lengi hafi ríkt óánægja meðal margra rithöfunda og bókaútgefenda með starfsemi Hljóðbókasafnsins, sem þeir telja vera óeðlilega umsvifamikla og benda á hin Norðurlöndin í því sam- bandi til samanburðar. Hljóðbók slf., eitt fárra fyrirtækja í þeirri grein sem lifði af samkeppn- ina við Hljóðbókasafnið, hefur stefnt ríkinu til skaðabóta vegna starfsemi safnsins. Það sem Hljóðbók og aðrir hafa gagnrýnt sérstaklega í starfsemi Hljóðbókasafnsins er að því skuli heimilt að gefa út nýútkomna bók á hljóðbók án nokkurra tímamarka og án tillits til þess hvort verkið sé þegar í almennri sölu sem hljóðbók. Þannig getur ný skáldsaga verið komin út á hljóðbók hjá Hljóðbóka- safninu tveimur vikum eftir útgáfu viðkomandi bókar á prenti og eins þótt fyrirtæki eins og Hljóðbók slf. hafi gefið sama verk út til dreifingar á markaði. Um 90 prósent útgefinna bóka Hljóðbókar eru fáanlegar hjá Hljóðbókasafninu. Þá hefur einnig verið gagnrýnt að efni sem safnið framleiðir rati í stórum stíl til einstaklinga sem ekki uppfylla aðgangsskilyrði að safninu. Sú hætta kalli á að Hljóð- bókasafninu séu settar skýrar reglur til að starfa eftir. En er ekki sjálfsagt að starfrækt sé hljóðbókasafn í þágu blindra, sjón- skertra og lestrarhamlaðra? „Auðvitað er það sjálfsagt. Það er ekki verið að finna að þjónustunni sem slíkri, segir Eggert og ítrekar að starfsemi Hljóðbókasafnsins byggi á undanþáguheimild í höfundalögum sem beri að túlka þröngt. „Skilyrði fyrir starfsemi á grund- velli undanþágunnar er að hún skerði ekki með ósanngjörnum hætti lögmæta hagnýtingu rétthafa á höfundaréttarvörðu efni. Það verður að gæta meðalhófs í starf- semi á grundvelli undanþágunnar,“ segir Eggert. Þessa skilyrðis hefur verið gætt í öðrum löndum eins og til dæmis Noregi og Bretlandi. Þar mátti til skamms tíma ekki gefa út hljóðbók á grundvelli undanþág- unnar, ef verk var þegar til á markaði í hljóðbókarformi. Hljóðbækur eru í hringiðu breytinga Þrjú mál, sem geta mótað samkeppnisumhverfið á hljóðbókamarkaði, eru til meðferðar. Sérfræðingur í samkeppnisrétti segir allar líkur á því að samruna Storytel og Forlagsins verði sett skilyrði. Einkafyrirtæki í samkeppni við umfangsmikla ríkisútgáfu. Storytel ber höfuð og herðar yfir aðra framleiðendur hljóðbóka hér á landi en fyrirtækið framleiddi yfir 300 titla á árinu 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Að líkindum mun Samkeppniseftir- litið heimila samrunann, en þó með skilyrðum sem ætlað er að koma í veg fyrir að samruninn raski sam- keppni með umtalsverð- um hætti. Eggert B. Ólafs- son lögmaður Þrjú mál sem móta samkeppnisumhverfið á hljóðbókamarkaði 1. Yfirtaka Storytel á For- laginu, stærsta útgefanda prentaðra bóka hér á landi. 2. Meint brot Pennans á sam- keppnislögum með því að neita að selja bækur frá Uglu bókaforlagi. 3. Skaðabótamál Hljóðbókar slf. gegn Hljóðbókasafni Íslands vegna meints brots á höfundalögum. 2 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.