Fréttablaðið - 21.10.2020, Side 37

Fréttablaðið - 21.10.2020, Side 37
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Auður Inga Ein-arsdóttir gegnt stjórn-endastöðum í atvinnu-l í f i nu u m á r a b i l . Henni líður best uppi á fjöllum og varla líður sú helgi sem Auður Inga ver ekki töluvert hátt yfir sjávarmáli. Til lengri tíma litið hyggur hún á að setjast að á lands- byggðinni. Hver eru þín helstu áhugamál? Allt með forskeytinu fjall- og því fylgir venjulega töluvert bras. Mér líður best einhvers staðar utandyra þar sem ég get hlaðið batteríin. Að koma þreytt heim eftir góða helgi á fjöllum með manninum mínum og vinum finnst mér besta leiðin til að verja frítíma mínum, sama hvaða árstíð er. Ég bætti fjallahjólinu við í sumar, en fram að því var ég mikið að ganga á fjöll og svo eru það auð- vitað fjallaskíðin. Ég er reyndar á fjallabretti (e. splitboard) sem er snjóbrettaútgáfan af fjallaskíðum. Þegar ég keypti mér þannig bretti fyrir nokkrum árum opnaðist mér algjörlegra ný vídd í íslenskri nátt- úru. Að geta rennt sér á skíðum allt árið um kring eru forréttindi. Ég hef svo verið að fikra mig áfram í skútusiglingum, en maður- inn minn er allur í þeim. Ég myndi segja að ég væri meira á hliðar- línunni í dag, en ég er farin að slá um mig með sjóaraslangri og veit hvenær ég á að beygja mig undir bómuna. Það er víst fyrsta skrefið. Hvernig er morgunrútínan þín? Mikið vildi ég geta sagt að ég hellti upp á kaffibolla, læsi blaðið og ristaði mér brauð með smjöri og osti áður en ég skottaðist alltof snemma í hóptíma í ræktinni. Raunin er sú að ég velti mér fram úr rúminu um áttaleytið eftir allnokkur snús, hef mig til fyrir vinnuna í f lýti og er farin út um dyrnar korteri síðar. Um helgar er þó hraðinn allt annar. Þá setjum við góða tónlist á og hendum í morgunmat áður en við höldum út í daginn og upp á fjöll. Nærðu að halda jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs? Já, það gengur furðu vel. Það koma álagstímar þar sem annað víkur fyrir hinu, en ég hef síðustu ár náð mjög góðu jafnvægi þarna á milli. Það skiptir mig miklu máli að vinna hjá fyrirtæki sem leggur sig fram við að hlúa að jafnvæginu. Að geta stundum hætt á hádegi og farið út í góða veðrið og tekið svo aðra lengri daga á móti, er lykillinn að jafnvægi fyrir mig. Hver hafa verið mest krefjandi verkefnin á undanförnum miss- erum? Það mun vera haustráðstefna Adv- ania. Þegar heimsfaraldurinn bank- aði upp á og hróflaði við okkar áætl- unum um að halda haustráðstefnu Advania í Hörpu, kom ekki til greina að fresta henni. Breyttir tímar kalla á ný vinnu- brögð og við ákváðum að tækla þetta með tækninni. Tekin var ákvörðun rétt fyrir sumarfrí um að keyra á stafræna ráðstefnu í ár. Við ákváðum líka að gefa ekki tommu eftir í gæðum eða öðru sem snerti upplifun gesta. Úr varð ekki aðeins fjölmennasta og einna best heppnaða ráðstefnan okkar í 26 ár, heldur leiddi þessi ákvörðun til nýsköpunar í sinni tærustu mynd, þar sem við þróuðum þessa líka fínu stafrænu ráðstefnu- lausn. Hver eru helstu verkefnin fram undan? Þau snúa f lest að stafrænni veg- ferð okkar hjá Advania. Við í mark- aðsdeildinni framleiðum stærstan hluta af okkar markaðsefni sjálf og í grunninn snýst þetta alltaf um réttu skilaboðin á réttan hóp á réttum tíma. Á stóru heimili er alltaf nóg að gera. Ef þú þyrftir að velja annan starfsframa, hvað yrði fyrir valinu? Mig langar rosalega að segja atvinnumaður í karaókí, en það er frekar langsóttur draumur. Söng- hæfileikar mínir hafa hingað til tæpast fallið í kramið hjá fólki, þó ég bæti það upp með sterku lagavali og faglegri sviðsframkomu. Ætli ég myndi ekki velja eitthvað hönn- unartengt. Keramik, textílhönnun og föndur af ýmsu tagi hefur alltaf höfðað til mín. Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Væntanlega einhvers staðar á fjöllum. Eftir 20 ár ætla ég hins vegar að búa í einhverju litlu bæjarfélagi á landsbyggðinni með fjölskyldu og vinum. Er það ekki hugguleg framtíðarsýn? Hvers hlakkar þú mest til þessa dagana? Má segja að ferðast aftur til útlanda? Fyrir tæpu ári vorum ég og maðurinn minn að sigla skútu í námunda við Púertó Ríkó. Ég væri alveg til í að vera með eitthvað þess háttar á dagskrá til að hlakka til. Ég held bara áfram að láta mig dreyma. Hvers konar stjórnunarstíl hef- urðu tileinkað þér og hvers vegna? Stjórnendastílinn minn snýst ef laust að mestu leyti um það að hvetja aðra áfram og ganga fram með góðu fordæmi. Fá fólk með mér í lið að leysa krefjandi verkefni. Ég áttaði mig mjög fljótt á því á mínum stjórnendaferli, sem nú þegar hefur spannað yfir tólf ár, að ég myndi seint verða sérfræðingur í öllu. Það var mér mikill léttir þegar ég átt- aði mig á því. Mitt hlutverk snýst um að skapa nærandi umhverfi, treysta og hjálpa fólkinu mínu að ná árangri. Þannig myndi ég mæla minn árangur. Eyðir hverri lausri stund í bras á fjöllum Svipmynd Auður Inga Einarsdóttir Nám: Viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Meistaragráða í stjórnun og forystu frá Háskólanum á Bif- röst. Störf: Varði fyrstu árunum á vinnu- markaði hjá Vodafone, síðast sem rekstrarstjóri verslana á árunum 2008-2012. Þaðan fór ég til Advania þar sem ég hef verið sölustjóri og varð síðar forstöðumaður notendalausna. Gegni nú starfi markaðsstjóra. Fjölskylduhagir: Í sambúð með Jóhannesi Smára Ólafssyni. Auður Inga Einarsdóttir, markaðsstjóri Advania, segir að stafræn haustráðstefna fyrirtækisins hafi gengið vonum framar. Ráðstefnan var ein sú fjölmennasta sem fyrirtækið hefur staðið fyrir á undanförnum árum. MYND/AÐSEND 13M I Ð V I K U D A G U R 2 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 MARKAÐURINN tapas.is TILBOÐ A – FYRIR TVO • Nýbakað brauð með hummus og tapenade • Marineraðar lambalundir með lakkríssósu • Beikonvafin hörpuskel og döðlur á spjóti (2 stk.) með sætri chilli sósu • Djúpsteiktur humar í orly • Kjúklingaspjót (2 stk.) með blómkáls-cous cous, furuhnetum, blómkálsmauki og alioli • Nautaspjót (2 stk.) með sveppaduxelles, bourgunion-sveppasósu og smælki 5.890 kr. 2.945 kr. á mann TILBOÐ B – FYRIR TVO • Nýbakað brauð með hummus og tapenade • Beikonvafin hörpuskel og döðlur á spjóti (2 stk.) með sætri chilli sósu • Andabringa með jarðskokkum, svartrót og Malt- og Appelsínsósu • Djúpsteiktur humar í orly • Kjúklingastrimlar í chiliraspi með gráðaostasósu • Lambaspjót (2 stk.) með chorizo-sósu, smælki og rótargrænmeti • Nautaspjót (2 stk.) með sveppaduxelles, bourgunion-sveppasósu og smælki 6.890 kr. 3.445 kr. á mann VEGAN TILBOÐ • Nýbakað brauð með hummus og tapenade V • Blómkál marinerað með harissa, blómskálsmauki, pistasíu-lime vinaigrette og granatepli V • BBQ Jackfruit soft taco (2 stk.) með mangó-jalapeno salsa, avókadómauki og ferskum kóríander V • Vegan Piri Piri "rif" með djúpsteiktu smælki og sítrus-hvítlaukssósu V 3.990 kr. á mann Tekið er við pöntunum í síma 551 2344 eða á netfangið tapas@tapas.is TAPASBARINN MEÐ ÞÉR HEIM! SÚPER TAKE AWAY TILBOÐ HINN EINI SANNI Í 20 ÁR!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.