Fréttablaðið - 21.10.2020, Side 42

Fréttablaðið - 21.10.2020, Side 42
Ég er 37 ára sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari, fædd og uppalin á Akranesi, en fluttist til Vest- mannaeyja 11 ára gömul. Þar kynnt- ist ég eiginmanni mínum, Sindra Ólafssyni, og á með honum tvö börn. Ég starfa líka sem hreyfistjóri við heilsugæsluna í Vestmanna- eyjum, er vottaður sérfræðingur Vinnueftirlitsins um öryggi og heil- brigði á vinnustað og hef sótt mér réttindi til Bandaríkjanna í vinnu- vistfræðiráðgjöf. Auk þess er ég oddviti og bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í Vestmannaeyjum.“ Lítið vitað um líkamann Hildur segir hugmyndina að Leiðar- vísi líkamans hafa kviknað í námi. „Hugmyndin fæddist þegar ég áttaði mig á í náminu hversu lítið ég vissi um líkamann, en þróaðist áfram þegar ég fór að sinna einstaklingum sem hefðu oftar en ekki að einhverju leyti getað komið í veg fyrir sín vandamál með meiri grunnþekk- ingu á líkamanum, líkamsstöðu og líkamsbeitingu.“ Sagan að baki heiti verkefnisins er áhugaverð. „Ég gaf verkefninu nafnið Leiðarvísir líkamans því við fjárfestum á lífsleiðinni í fjölmörg- um útskiptanlegum raftækjum, sem fylgja oftar en ekki þykkar leiðbein- ingar um við hvaða aðstæður er best að nota græjuna, hvernig er hægt að auka líftíma hennar og hvað beri að gera ef algeng vandamál koma upp. Svo fæðumst við í þessu verk- fræðiundri sem mannslíkaminn er, en honum fylgja engar notkunar- leiðbeiningar. Samt er fjölmargt sem við getum gert til að tryggja betri endingartíma hans, til að koma í veg fyrir að við þurfum á vara- hlutum að halda og ýmislegt sem við getum gert án lyfja eða aðgerða þegar algeng vandamál koma upp,“ útskýrir Hildur. Ætlaði að skrifa bók „Upprunalega hugmyndin var að skrifa sjálfshjálparbók, en vanda- málið er að þeir sem kaupa sjálfs- hjálparbækur eru oftast þeir sem þurfa síst á aðstoðinni að halda, því þeir eru byrjaðir að huga að heilsunni. Þekkingarútbreiðslan væri þannig háð áhuganum á heilsu- eflingu.“ Hildur leggur sérstaka áherslu á að ná til ungmenna. „Besta leiðin til að ná til flestra er í gegnum mennta- kerfið og því beini ég fræðslunni að elstu bekkjum grunnskóla og byrjaði í Grunnskólanum í Vest- mannaeyjum. Það vatt upp á sig og ég fór að halda fyrirlestra og kynningar fyrir fjölmarga hópa og vinnustaði, ásamt því að halda úti vefsíðunni www.leidarvisirinn. is og fésbókarsíðunni Leiðarvísir líkamans. Fræðslan samanstendur af fjölbreyttum fróðleik, þar sem áhersla er á góða líkamsstöðu, líkamsbeitingu og vinnustellingar.“ Mikil vinna hefur farið í að búa til námsefni. „Ég þróaði námsefni fyrir grunnskólanemendur yfir langan tíma, hef nýtt mér reynslu, áhuga og samtöl við nemendur til að gera efnið áhugavert og eftirminnilegt. Mikilvægast er að nemendur átti sig á hvaða hag þeir hafa af því að tileinka sér það sem ég er að kenna þeim. Lokamarkmiðið er að þetta verði hluti af aðalnámskrá, enda hagnýt þekking, ekki bara fyrir nemendurna sjálfa, heldur atvinnu- lífið og heilbrigðiskerfið okkar til framtíðar,“ segir hún. Styrkurinn mikilvæg hvatning „Í vor fékk verkefnið úthlutun úr Lýðheilsusjóði Embættis landlæknis sem var mikilvæg hvatning til að halda áfram á þessari braut. Ég þróaði áfram námsefnið og spurn- ingalista til að fá betri yfirsýn yfir þekkingu nemenda á líkamsstöðu og líkamsbeitingu. Ég hef fengið jákvæð viðbrögð úr skólaumhverf- inu og er komin með marga áhuga- sama grunnskóla á verkefnalistann og hafa heilsueflandi grunnskólar forgang eins og er. Ég finn fyrir miklum áhuga nemenda og þakk- læti og hvatningu frá kennurum sem ég er þakklát fyrir. Ég hef verið að skipuleggja skólaheimsóknir næstu mánaða en áhrif COVID hafa vissulega sett strik í reikninginn. Ég bíð því mjög spennt að komast aftur í að breiða út fagnaðarerindið.“ Þá sé brýnt að huga að heilsunni um þessar mundir. „Það er fjöl- margt sem við getum gert til að bæta líkamlega og andlega heilsu sem kostar lítið og það hefur sjaldan verið mikilvægara að stunda ein- hvers konar heilsueflingu.“ Hér fyrir neðan eru nokkrar heilsu- bætandi hugmyndir frá Hildi. n 30 mínútna ganga í náttúrunni n Huga að vinnuaðstöðunni. Fyrir þá sem vinna skrifstofustörf skiptir skrifborðsstóll, skrifborð og staðsetning skjás miklu máli n Brosa. Það veldur losun boðefna í heilanum sem hafa jákvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu. Gervibros gefa sömu áhrif og ein- læg bros þó ekki í sama mæli. Það er góð heilsurækt að æfa bros. n Gera góðverk og taktu þátt í sjálf- boðastörfum eða félagsstarfi n Huga að góðu mataræði og reglu- legum nætursvefni n Takmarka notkun ávanabindandi efna (áfengis og tóbaks) n Ekki hika við að leita þér aðstoðar sjúkraþjálfara ef þú glímir við stoðkerfisverki Líkamanum fylgja engar leiðbeiningar Hildur Sólveig Sigurðardóttir sjúkraþjálfari heldur utan um verkefnið Leiðarvísir líkamans, en þar er að finna fjölbreytta fræðslu um góða líkamsstöðu, líkamsbeitingu og vinnustellingar. Hildur Sólveig Sigurðardóttir segir afar áríðandi að auka fræðslu um stoðkerf- isvanda. MYND/ SINDRIÓLAFSSON Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Collagen skin með íslenskum þörungum Collagen liðamót Öflug blanda fyrir liði og betri líðan Kröftug virkni Nýtt frá ICEHERBS Fæst í öllum helstu matvöruverslunum, apótekum og heilsuvöruverslunum. 120 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI Fyrir liðina + túrmerik, magnesíum & C-vítamín collagen liðam 120 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI collagen skin Fyrir húðina með íslenskum þörungum + C-vítamín Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook HVER VANN? Sportið á frettabladid.is færir þér allar nýjust fréttirnar úr heimi íþróttanna. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.