Fréttablaðið - 21.10.2020, Síða 49

Fréttablaðið - 21.10.2020, Síða 49
Sigríður í Brattholti er aðalper-sónan í sögulegri skáldsögu Eyrúnar Ingadóttur, Konan sem elskaði fossinn. Sigríður er einn kunnasti náttúruverndarsinni Íslandssögunnar. Eyrún segir áhuga sinn á Sigríði hafa vaknað árið 1992 þegar hún var að ljúka námi í sagnfræði við Háskóla Íslands. „Þá skrifaði ég svokallaða „BA-ritgerð hina minni“ um Sigríði. Upp úr henni skrifaði ég síðan grein sem var birt í jólalesbók Morgunblaðsins árið 1993 og Sig- ríður hefur svolítið fylgt mér síðan, enda merkilegt að kona skuli hafa barist gegn virkjun Gullfoss á fyrstu á r u m 20. a ld a r með öllum færum leiðum og hótað að henda sér í fossinn við fyrstu skóf lu- stungu. Í febrúar n æ s t k o m a n d i verða 150 ár liðin síð a n Sig r íðu r fæddist og ég held að hennar tími sé loksins kominn.“ Spurð hvernig persóna Sigríður hafi verið segir E y r ú n : „ S i g - ríður var með ríka réttlætis- kennd, listræn, dugleg en jafn- framt einþykk og félagsfælin. Gullfossmála- f e r l i n v o r u ekki fyrsta deilan sem hún lenti í, en bændur í sveitinni kærðu hana til sýslumanns Árnesinga fyrir að rífa niður gaddavírsgirðingu sem þeir höfðu byrjað að girða fyrir ofan Brattholt, milli Tungufljóts og Hvítár. Það er stórmerkilegt að kona á þessum tíma hafi risið upp gegn valdinu, ferðast ein síns liðs langar leiðir og lagt á sig ómælt erfiði til að koma í veg fyrir eyðileggingu Gull- foss.“ Frelsi til að skálda Eyrún, sem er sagnfræðingur, sendi árið 2012 frá sér s ö g u l e g u s k á l d s ö g u n a Lj ó s m ó ð i r i n , sem hlaut góðar viðtökur. Hún er spurð af hverju hún hafi ákveðið að skrifa skáld- sögu um Sigríði en ekki fræði- bók. „Skáldsögu- for mið heil la r mig, að geta gætt p e r s ó nu r l í f i , getið mér til um skoðanir þeirra og hugsanir. Það gefur mér einn- ig mér frelsi til að skálda í eyðurnar. Það eru eyður í sögu Sigríðar sem er gríðarlega áhuga- v e r t að fást við í sögulegri skáldsögu, til dæmis af hverju faðir hennar leigði Gullfoss fyrir lítið fé til 150 ára, til ársins 2062, í stað þess að selja hann fyrir stórfé. Eins, hvers vegna Einar fósturbróðir hennar sveik hana er hann seldi Gullfoss ríkinu árið 1945. Skáldsagan höfðar til mun stærri lesendahóps og mig langar auðvitað að verkin mín séu lesin sem víðast.“ Um heimildavinnu við gerð skáldsögunnar segir Eyrún: „Ég fylgi heimildunum svo langt sem þær ná, en leyfi mér jafnframt að skálda inn í þegar sagan krefst þess. Það er áskorun að fara úr forminu sem sagnfræði setur – að þekkja regl- urnar en fara ekki eftir þeim. Að sama skapi setur það mér ákveðnar skorður að fjalla um fólk sem einu sinni var og því fylgir ábyrgð sem ég er vel meðvituð um. Ég setti síðan „af látsbréf sagnfræðingsins“ aft- ast; það er að segja lista með helstu heimildum sem áhugasamir geta skoðað.“ Lygilegur raunveruleiki Tímarammi skáldsögunnar er frá 1904 til 1975 en Sigríður fæddist árið 1871 og dó haustið 1957. „Sagan hefst eiginlega þegar Sigríður fer að hafa afskipti af málum í sveit- inni sem misbuðu réttlætiskennd hennar. Auk þess að vera sögð út frá sjónarhóli Sigríðar, þá er sagan einnig sögð út frá f leiri persónum sem áttu í samskiptum við Sigríði og fjölskyldu hennar. Svo koma margir við sögu, til dæmis Sveinn Björnsson fyrsti forseti lýðveldisins, en hann var lögfræðingur Sigríðar og föður hennar í Gullfossmálaferl- unum. Prestshjónin á Torfastöðum, séra Eiríkur Þ. Stefánsson og frú Sig- urlaug Erlendsdóttir, koma einnig mikið við sögu en þau voru miklir velvildarmenn Sigríðar. Stundum er raunveruleikinn lygi- legri en skáldskapurinn og allar persónurnar eru sprottnar úr raun- veruleikanum. Ég breytti einstaka nöfnum og hnikaði til tíma, allt til þess að láta söguna njóta sín.“ Einþykk og félagsfælin kona Konan sem elskaði fossinn er söguleg skáldsaga eftir Eyrúnu Ingadóttur sagnfræðing. Aðalpersónan er Sigríður í Brattholti. Eyrún Ingadóttir hefur skrifað sögulega skáldsögu um einn kunnasta náttúruverndarsinna Íslands. MYND/VERÖLD Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÞAÐ ERU EYÐUR Í SÖGU SIGRÍÐAR SEM ER GRÍÐARLEGA ÁHUGAVERT AÐ FÁST VIÐ Í SÖGULEGRI SKÁLD- SÖGU. C&J SILVER stillanlegt rúm Aðeins 141.570 kr. n C&J Silver er með sterkum stálbotni og kraftmiklum en hljóðlátum mótor. n Rúminu fylgir þráðlaus fjarstýring með tveimur minnum og ljósi. n Botn rúmsins dregst að vegg þannig að þú ert í eðlilegri fjarlægð frá náttborði og lampa. n Sérstakur takki á fjarstýringunni kemur rúminu í upphaflega stöðu. 15% AFSLÁTTUR* AFMÆLIS * ef C&J Silver stillanlegur botn er keyptur með Nature’ Rest Luxury heilsudýnu er 15% afsláttur af botni og 20% afsláttur af dýnunni. VERÐDÆMI A: 90 x 200 cm stillanlegt C&J Silver rúm með Nature’s Rest Luxury heilsudýnu: Fullt verð: 168.900 kr. Við eigum afmæli og nú er veisla Láttu drauminn rætast SENDUM FRÍTT Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Við sendum þér vörurnar frítt hvort sem þú kaupir á dorma.is eða í DORMA-verslun AVIGNION hægindastóll með skemli Stillanlegur hægindastóll með innbyggðum skemli. Grátt áklæði Fullt verð : 109.900 kr. Aðeins 87.920 kr. 20% AFSLÁTTUR AFMÆLIS FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 2 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.