Fréttablaðið - 21.10.2020, Side 52

Fréttablaðið - 21.10.2020, Side 52
Þannig var að af öllu því sem lífið hefur fært mér er það ef til vill ellin sem hefur komið mér mest á óvart – allt í einu vorum við hjónin orðin tvö ein eftir í kotinu. Aldurinn hafði færst yfir okkur, kannski af meiri þunga en gengur og gerist vegna tveggja áratuga baráttu hennar Sólveigar minnar við parkinsonssjúkdóminn.“ Svona lýsir Þráinn Bertelsson, rit- höfundur, kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi alþingismaður svo fátt eitt sé nefnt, aðdragandanum að kynnum hans og hvolpsins Theo- balds í bókinni Hundalíf … með Theobald. Hann heldur síðan áfram og fikrar sig nær stjörnu bókarinn- ar. „Þá datt okkur í hug að kannski væri það heillaráð að finna kátan hvolp og gá hvort hann gæti ekki aukið fjör og gleðskap á heimilinu.“ Eins og listamaður „Og við völdum þennan og hann hefur alveg skilað sínu og umfram væntingar, því að það er daufur dagur ef maður hlær ekki að minnsta kosti einu sinni á dag að honum,“ segir Þráinn og bendir á Theobald sem hefur tekið að sér að þrífa gólfið undir kaffiborðinu með talsverðum fyrirgangi. „Hann er alveg yndislegur,“ held- ur Þráinn áfram og víkur að náttúr- legum hæfileikum franska bola- bítsins. „Allar hundategundir eru sérfræðingar í einhverju; að smala eða leita að eiturlyfjum eða týndu fólki, eða gelta þegar það koma glæpamenn eða eitthvað svoleiðis. En þessi tegund er ekki sérfræð- ingur í neinu, nema bara að vera til skemmtunar og það þýðir ekkert að segja honum fyrir verkum; gá að kindum eða eitthvað svoleiðis. Sækja Moggann eða inniskóna. Það bara er ekki hans fag. Hann er náttúrlega eins og lista- maður. Hann er gjörsamlega gagns- laus. Hann hefur enga praktíska þýðingu en hann gerir lífið betra og skemmtilegra og það er nú kannski það …“ Þráinn heldur áfram eftir augna- bliks hlé. „… að lífið verður ekki létt- ara eða einfaldara með tímanum í mörgum tilvikum, svo að það er afskaplega gott að fá einhverja aðstoð við að halda haus,“ segir Þráinn um unga hundinn sem hefur verið besti vinur gamla mannsins í næstum fjögur ár. Bestu stundirnar Þeir félagarnir hafa saman lagt að baki ófáa kílómetra á daglegum gönguferðum sínum, hugsað enn fleiri hugsanir og látið ófá orð falla sem Þráinn hefur séð um að skrá- setja, meðal annars í krafti aldurs og fyrri starfa. Því er þó haldið vandlega til haga að allt er þetta gert með fullu samþykki Theobalds sem unnir sínum tvífætta félaga ýmissa dynta. Líklega er það síðan ágætis dæmi um að einhver þráður liggur í gegnum lífsins skrykkjótta gang, að með bókinni bætist Hundalíf … með Theobald við höfundarverk leikstjóra kvikmyndanna Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf. „Það eru náttúrlega kannski bestu stundirnar,“ segir Þráinn um gönguferðirnar sem hafa reynst þeim félögum svo drjúgur inn- blástur. „Við förum út daglega. Bara til að hlaða batteríin. Við erum nú reyndar orðnir tveir einir í kotinu. Sólveig mín er komin á hjúkrunar- heimili. Við heimsækjum hana reyndar daglega, en núna eru ein- hver vandamál með það út af þessu COVID-fári en við förum daglega út að ganga. Óhjákvæmileg hreyfing Við spjöllum náttúrlega eins og dagurinn er langur, en þessi útivist er mjög gefandi. Það er náttúrlega hvatning fyrir mann að fara út með hundinn ef maður les út úr augna- ráðinu: „Við skulum koma út þó það sé ekki gott veður því að annars kúka ég á gólfið hjá þér.“ Og ekki vil ég láta það henda vin minn að gera svoleiðis. Svo það er engin undan- komuleið,“ segir Þráinn og hlær. „Það er bara svo miklu meira gaman að vera úti með honum held- ur en einn, af því að hann les nátt- úruna og umhverfið á allt annan hátt heldur en ég og það er alltaf mjög gaman að fá að taka þátt í því.“ Öðruvísi áhrifavaldur Gönguferðir og heimspekilegar vangaveltur þeirra félaga vöktu fyrst athygli á Facebook, þar sem Þráinn hefur um skeið birt bæði myndir og stuttar skýrslur af dag- legu brölti þeirra Theobalds. Þar hefur aðdáendum Theo- balds fjölgað jafnt og þétt og segja má að þeir félagar hafi vegna fjölda áskorana fært hugleiðingar sínar af Facebook á prent. „Já, já, það er massífur aðdáenda- hópur sem Theobald á og heimtar stöðugt fréttir og frásagnir af því sem frá honum kemur um aðskilj- anlegustu hluti. Allt frá bara að hafa skoðun á einhverjum atburðum og eða sjálfstæðar heimspekilegar athuganir. Því hefur verið voða vel tekið og gaman af því,“ segir Þráinn, en vill þó ekki draga hundinn í dilk með öðrum áhrifavöldum svoköll- uðum. Spennandi tilraun „Facebook er náttúrlega nýr miðill, með kostum og göllum eins og fjöl- miðlar eru,“ segir Þráinn og víkur að því að þegar eitthvað sniðugt er skrifað á Facebook heyrist enn af og til sú gamla upphrópun „þetta verður að koma út á bók!“. Og að það verði nú endilega að gefa þetta út og svo framvegis. „En bókaútgáfa og að skrifa bækur er sérstök veröld þar sem gilda sérstök lögmál sem eru ekki nákvæmlega þau sömu og gilda á Facebook og mér fannst svo- lítið spennandi að athuga hvort það væri hægt að færa eitthvað af þessum skrifum okkar úr einum miðli á annan. Eins og að gera bók að leiksýningu eða kvikmynd og það er nú sú tilraun sem þessi bók er. Hvort eitthvað sem byrjar í einhverjum miðli getur staðið og staðið sig í öðrum miðli.“ Einhvers konar ævisaga Þráinn segist líta á Hundalíf … með Theobald sem þriðja bindi og þá einhvers konar lokakaf la brota- kenndrar ævisögu sem hófst með bókinni Einhvers konar ég 2003 og hélt áfram með Ég, ef mig skyldi kalla. Seinþroskasaga frá árinu 2008. „Svona af minni hálfu þá finnst mér ágætt að skrifa einhver brot úr ævisögu. Eitt um bernskuna og svo eitt um rótleysisárin þegar maður er orðinn fullorðinn tækni- lega séð, en áður en ég var búinn að taka nokkra stefnu í lífinu. Og þá finnst mér ágætt að ljúka þeim ævipælingum á þessu, sem að vissu leyti er þá nokkurs konar lokabindi í ævisögu,“ segir Þráinn um nýju bókina. „Hún inniheldur ýmsar niður- stöður sem mér hefur þótt eiga erindi til Theobalds, því hann er töluvert yngri en ég og að láta hann þannig verða aðnjótandi þeirrar reynslu sem ég hef og kynna fyrir honum þær fáu niðurstöður sem ég hef komist að í sambandi við lífið. Svo þetta er svona eins konar ævisaga eða kaf li í einhvers konar ævisögu.“ Sannur vinur Þegar Þráinn er spurður hvort Theobald sé alveg á sömu blaðsíðu í þessum pælingum, segist hann hreinlega ekki vita það. „Hann er nú ekki frekar en aðrir neitt sér- staklega áhugasamur um að læra af reynslu annarra, en eins og vinir eiga að gera þá leyfir hann mér að komast upp með að deila einhverju minningaþrasi með sér. Hann umber mig ágætlega eins og vinir eiga að gera, en það er nú ekki í eðli þessarar tegundar hunda nein sérstök þjónustulund. Þeir hafa ekki þessa hundslegu undir- gefni og eru í raun og veru býsna líkir því sem kettir geta verið,“ segir Þráinn um lundarfar síns trygga félaga og gervalls kyns hans. Hugsandi hundur „Þeir eru afskaplega sjálfstæðir og þrjóskir og velja úr með mikilli gagnrýni hvað þeir vilja gera, hvað þeir vilja þýðast, hverjum þeir vilja hlýða og hvað þeir vilja undirgang- ast. Þeir athuga það mjög vel hvort þetta er skynsamlegt, hvort þetta er hagstætt á einhvern hátt fyrir þá, þjónar þeirra hagsmunum að gegna þessu. Eða hvort það verður eitthvað brjálað vesen ef þeir gegna því ekki. Svo þetta eru hugsandi hundar. Það er engin spurning um það. En aðallega er nú sá boðskapur sam- eiginlegur með okkur báðum, að Hundalíf Þráins Bertelssonar Franski bolabíturinn Theobald og Þráinn Bertelsson hafa í tæp fjögur ár rætt lífið og tilveruna í daglegum gönguferðum, en Þráinn hefur nú tekið saman ýmsar vangaveltur þeirra og stöku niðurstöður í bókinni Hundalíf … með Theobald. Þráinn uppgötv- aði í vor, sér til skelfingar, að 50 ár eru síðan fyrsta bókin hans kom út. „Það er nú at- hyglisvert, sko. Maður gefst ekki upp og það er bara voða- lega gaman að því. Það finnst Theobald að minnsta kosti því hann er fjögurra ára og á þá töluvert eftir af sínum rit- höfundarferli.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI HANN HEFUR ENGA PRAKTÍSKA ÞÝÐINGU EN HANN GERIR LÍFIÐ BETRA OG SKEMMTILEGRA. okkur finnst það vera allt að því skylda okkar, úr því að við erum lifandi verur, að reyna að finna einhverja gleði og ánægju í því að vera til,“ segir Þráinn og er kominn býsna nærri kjarna málsins þegar hann víkur að því ómótstæðilega ævintýri sem tilveran er í okkar sameiginlega táradal. „Vegna þess að þetta er náttúr- lega mikið ævintýri sem maður fær að taka þátt í. Það fá ekki allir að vera lifandi verur. Maður sér það bara daglega. Gangstéttar- hella, ljósastaur, bíll. Allt í kringum okkur fær bara aldrei að prófa að vera lifandi verur og þá er það eig- inlega skylduverk að hafa einhverja ánægju af þessu og út á það ganga nú margar athuganir okkar. Dýr eru alveg ótrúlegir mannþekkj- arar,“ heldur Þráinn áfram. Dýrið í manninum … „Þau dýr sem ég þekki; hestar og hundar og kettir. Ég veit það ekki. Það virðist að þessar pælingar um dýr eigi að sínu leyti erindi við fólk af því að það segjast allir vera dýra- vinir. En ég veit ekki hvað það er djúpt á því, en það er ótrúlega heillandi ef maður nær góðu sambandi við einhverja manneskju. Það er mjög heillandi og sumir bindast ákveðn- um manneskjum ævilangt af því að sambandið er svo gott, en á sama hátt þá er alveg hægt að ná sam- bandi við dýr. Mismiklu. En það er líka alveg stórkostleg upplifun þegar eiginlega dýrið í manninum nær sambandi við það mennska í dýrinu og öfugt. Þetta eru alveg stórkostlegar stundir,“ segir Þráinn um þau fjölmörgu augnablik sem hann hefur átt og heldur áfram að eiga með sínum unga vini, Theo- bald. toti@frettabladid.is 2 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.