Fréttablaðið - 14.11.2020, Page 4
BJÓÐUM UPP Á
35” - 40” BREYTINGARPAKKA
FRÁ BREYTINGARVERKSTÆÐI ÍSBAND
EIGUM FLESTAR GERÐIR TIL
AFHENDINGAR STRAX
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.547.906 KR. ÁN VSK.
9.359.403 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
NÝ SENDING! LONGHORN ÚTGÁFA NÚ FÁANLEG
25
þeirra sem greinst hafa með
COVID-19 á Íslandi eru látin.
19,7
prósent karla á Íslandi nota
nikótínpúða daglega.
30
fyrirtæki, 5 sveitarfélög og 9 opin-
berir aðilar, hlutu viðurkenningu
Jafnvægisvogarinnar.
2
byggingakranar hafa fallið á
hliðina við byggingastaði
á árinu.
600
billjónir króna er áætlað virði
ólaunaðrar umönnunarvinnu
kvenna um heim allan.
TÖLUR VIKUNNAR 08.11.2020 TIL 14.11.2020
ORKUMÁL Stórnotendur á íslensk-
um raforkumarkaði segja að ný
úttekt á samkeppnishæfni íslensks
raforkumarkaðar dragi ekki upp
rétta mynd af stöðu mála í dag.
Iðnaðarráðuneytið birti skýrsluna
í gær, en þýska ráðgjafarfyrirtækið
Fraunhofer annaðist gerð hennar. Í
umfjöllun ráðuneytisins um niður-
stöður skýrslunnar segir meðal
annars að „raforkukostnaður stór-
iðju á Íslandi skerði almennt ekki
samkeppnishæfni hennar gagnvart
samanburðarlöndunum,“ en löndin
sem um ræðir eru Noregur, Kanada
og Þýskaland.
Gunnar Guðlaugsson, forstjóri
Norðuráls, segir að meðalverð til
stóriðju eins og það kemur fram
í uppgjörum Landsvirkjunar sé
vissulega samkeppnishæft og að
skýrsla Fraunhofer staðfesti það:
„Hins vegar hefur ítrekað komið
fram í skrifum forsvarsmanna
Landsvirkjunar að það verð er
einfaldlega ekki í boði lengur við
endurnýjun samninga, nú síðast
hjá upplýsingafulltrúa Landsvirkj-
unar í fjölmiðlum fyrir helgi. Með
þeirri verðstefnu er augljóst að sam-
keppnishæfni íslenskrar stóriðju til
framtíðar er ógnað,“ segir Gunnar.
Bjarni Már Gylfason, samskipta-
fulltrúi ISAL í Straumsvík, segir að
fyrirtækið muni ekki tjá sig um ein-
stök atriði í skýrslu Fraunhofer. „En
almennt getum við sagt að hún end-
urspeglar ekki þann veruleika sem
ISAL býr við. Það er gott að stjórn-
völd beini sjónum að orkuverði, sem
er lykilþáttur í samkeppnishæfni
áliðnaðar. ISAL og áliðnaðurinn á
Íslandi vegur þungt í efnahagslífi
þjóðarinnar og það er mikilvægt að
ISAL geti orðið fjárhagslega sjálfbært
og samkeppnishæft,“ segir Bjarni.
Landsvirkjun sendi frá sér frétta-
tilkynningu í gær vegna málsins,
en þar var haft eftir forstjóranum,
Herði Arnarsyni, að skýrsla Fraun-
hofer staðfesti að raforkuverð
Landsvirkjunar væri alþjóðlega
samkeppnishæft: „En við verðum
líka að taka með í reikninginn að
aðstæður á mörkuðum viðskipta-
vina okkar eru mjög erfiðar um
þessar mundir, bæði til skamms
tíma vegna heimsfaraldurs og til
lengri tíma, vegna erfiðrar sam-
keppni frá Kína. Við reynum að
leggja okkar af mörkum með því
að sýna sveigjanleika, meðal ann-
ars í verði, og styðja þannig við
rekstur þeirra við þessar krefjandi
aðstæður. Það er hins vegar gott að
fá staðfestingu á því að verðstefna
okkar hafi ekki neikvæð áhrif á
samkeppnishæfni viðskiptavina
okkar á stórnotendamarkaði.“
Í skýrslu Fraunhofer er meðal-
verð til stórnotenda á Íslandi sagt
vera tæplega 26 dalir á megavatt-
stund, en alþekkt er að þar vegur
langþyngst mjög lágt raforkuverð
til álvera vegna gamalla samninga,
en slíkt verð er langt frá því verði
sem býðst á Íslandi í dag. Til sam-
anburðar er síðan talað um verð í
Noregi og það metið á bilinu 36 til
44 dalir á megavattstund árið 2019.
Hins vegar er bent á, í neðanmáls-
grein, að raforkuverð í Noregi hafi
að vísu hríðlækkað á árinu 2020,
eða um allt að 67 prósent.
„Það er ákveðið áhyggjuefni að
ráðuneytið skuli í tilkynningu
sinni draga þá ályktun að raforku-
verð til gagnavera á Íslandi sé sam-
keppnishæft við til dæmis Noreg,
þegar það er hreinlega tekið fram
í skýrslunni að raforkuverð í Nor-
egi sé töluvert lægra en á Íslandi,
eins og allir þeir vita sem eru
að skoða raforkuverð á þessum
tveimur mörkuðum,“ segir Jóhann
Þór Jónsson, formaður Samtaka
gagnavera á Íslandi. Jóhann nefnir
einnig að heimildavinnu skýrsl-
unnar sé oft og tíðum ábótavant. Á
einum stað í skýrslunni sé þannig
talað um langtímaraforkuverð til
norskra gagnavera í Noregi, en eina
heimildin sem þar er stuðst við er
blaðagrein frá árinu 2013. „Stærsta
áhyggjuefnið er hins vegar sú stað-
reynd að orkunotkun íslenskra
gagnavera hefur dregist saman um
næstum því helming síðan 2018 og
aðrir stórnotendur á landinu virð-
ast stefna í svipaða átt. Það er ekki
að gerast vegna þess að raforku-
verð er svo samkeppnishæft,“ segir
Jóhann. thg@frettabladid.is
Telja að úttekt gefi ranga mynd af
stöðu raforkumarkaðar innanlands
Ný skýrsla þýska ráðgjafarfyrirtækisins Fraunhofer, um samkeppnishæfni stóriðju á Íslandi með tilliti til raforkukostnaðar,
var opinberuð í gær. Skýrslan var unnin að beiðni Innanríkisráðuneytisins. Í henni kemur fram að raforkuverð hafi verið
samkeppnishæft á síðasta ári. Stórnotendur rafmagns á Íslandi segja að staðan sé gjörbreytt í dag og gagnrýna vinnubrögðin.
Stórnotendur rafmagns á Íslandi segja stöðuna stórbreytta og gagnrýna vinnubrögð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Forstjóri Landsvirkj-
unnar segir að skýrsla
Fraunhofer staðfesti að
raforkuverð Landsvirkjunar
sé alþjóðlega samkeppnis-
hæft
1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð