Fréttablaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 32
Foreldrar Kamölu Harris vor u báðir innf ly tj-endur, móðir hennar indversk og faðir henn-ar frá Jamaíku. Þau skildu þegar Kamala
var fimm ára og móðir hennar,
Shyamala Gopalan Harris, sá
upp frá því að mestu um uppeldi
dætranna, Kamölu og litlu systur
hennar, Mayu. Shyamala starfaði
við krabbameinsrannsóknir og
var virk í mannréttindabaráttu í
Bandaríkjunum og Kamala hefur
því ekki langt að sækja baráttu-
þrekið.
„Ég hugsa ítrekað til þessarar 25
ára indversku konu sem fæddi mig
á Kaiser-sjúkrahúsinu í Oakland í
Kaliforníu. Þann dag gat hún lík-
lega ekki ímyndað sér að ég stæði
nú frammi fyrir ykkur segjandi
þessi orð: Ég samþykki tilnefningu
ykkar sem varaforseti Bandaríkj-
anna,“ sagði Kamala meðal annars
eftir að sigur hennar og Joe Biden,
næsta forseta Bandaríkjanna var
ljós.
Stoltar, svartar konur
Í ævisögu sinni, The Truths We
Hold: An American Journey, sem
kom út á síðasta ári, segir Kamala
frá æsku sinni í Oakland. Hún segir
þar frá því að móðir hennar hafi
áttað sig á því að í Bandaríkjunum
yrðu þær systur álitnar svartar og
því hafi hún alið þær upp sem sjálfs-
öruggar, stoltar, svartar konur eða
„confident, proud black women“.
Kamala lærði lögfræði við How-
ard-háskóla í Washington DC, en
þangað hafa í gegnum tíðina aðal-
lega sótt svartir nemendur.
Árið 2014 giftist Kamala Dou-
glas Emhoff, sem starfar fyrir
skemmtanaiðnaðinn í Kaliforníu.
Doug, eins og hún kallar hann, á
tvö uppkomin börn, Cole og Ellu,
en sjálf hefur Kamala ekki eignast
börn. Með kosningu Kamölu verður
Douglas fyrsti „second gentleman“
Bandaríkjanna en aldrei fyrr hefur
karlmaður verið maki forseta eða
varaforseta þar í landi.
Kamala Momala
Í tilefni af mæðradeginum á síðasta
ári skrifaði Kamala grein í tímaritið
ELLE um reynslu sína af stjúpmóð-
urhlutverkinu. Þar segir hún frá því
hvernig hún, sem sjálf er skilnaðar-
barn, áttaði sig strax á því hversu
erfitt það geti verið fyrir börn að
taka á móti nýjum maka foreldris.
Því hafi hún haldið ákveðinni
fjarlægð, þar til hún og Doug voru
ákveðin í að verja lífi sínu saman.
Þau fóru hægt í sakirnar í þessum
efnum og biðu með að Kamala
kynntist börnunum.
Í dag aftur á móti eru þau sam-
rýnd fjölskylda og Kamala lýsir
því í greininni hvernig vinskapur
hafi einnig myndast milli hennar
og móður barnanna.
Hún segist upphaf lega hafa
heillast af Doug, eiginmanni sínum,
en það hafi verið Cole og Ella sem
hafi endanlega náð henni á sitt
vald.
Yfirheyrslur yfir James Comey,
yfirmanni FBI, varðandi afskipti
Rússa af forsetakosningunum 2016,
fóru fram í júní 2017, á sama tíma
og útskrift Ellu úr menntaskóla.
Kamala sem sat í eftirlitsnefnd
þingsins sem rannsakaði málið,
varð að vera viðstödd yfirheyrsl-
urnar og lýsir hún því í greininni
hvernig það hafi tekið á hana að
vera ekki viðstödd. Hún leitaði
ráða hjá kollega í öldungadeildinni
sem huggaði hana með orðunum:
„Börnin okkar elska okkur fyrir
þær manneskjur sem við erum og
þær fórnir sem við færum.“
Kamala segir einnig frá því
hvernig hún og börnin hafi sam-
eiginlega ákveðið að þau vildu
ekki nota orðið stjúpa og því hafi
þau ákveðið að fyrir þeim héti hún
einfaldlega: Momala.
Fylgið hrundi
Árið 2003 bauð Kamala sig fram
til embættis borgar sak sóknara
San Francisco og var kjörin, og sjö
árum síðar var hún svo kjörin aðal-
sak sóknari Kali forníu fylkis.
Árið 2016 tilkynnti hún um fram-
boð til öldungadeildarinnar og
hefur hún setið á þingi frá upphafi
árs 2017. Kamala var önnur svarta
konan til að sitja á öldungadeildar-
þingi Bandaríkjanna og sú fyrsta af
suður-asískum uppruna.
Í sjónvar psþættinum Good
Morning America þann 21. janúar
árið 2019, tilkynnti Kamala að hún
byði sig fram sem forsetaframbjóð-
andi Demókrata.
Kosningabaráttunni var hrundið
af stað í heimabæ Kamölu, Oak-
land. Yfir 20 þúsund manns mættu
og hvöttu hana til dáða á sólríkum
eftirmiðdegi. Hún þótti standa sig
vel í kapp ræðum og mældist með
allt að 20 prósenta fylgi sem þó dró
f ljótt úr og í ágúst var það komið í
fimm til átta prósent. Þá var ljóst
að for valið yrði kapp hlaup milli Joe
Biden, Bernie Sanders og Eliza beth
War ren.
Ég er ekki milljarðamæringur
Í byrjun desember dró Kamala
framboð sitt til baka og í tilkynn-
ingu til stuðningsmanna sinna
notaði hún skort á fjármagni sem
skýringu.
„Ég er ekki milljarðamæringur.
Ég get ekki fjármagnað mitt eigið
framboð,“ skrifaði hún, sem skot á
mótframbjóðendur sína. „Og þegar
liðið hefur á kosningabaráttuna
hefur reynst erfiðara og erfiðara
að afla þess fjár sem við þurfum til
þátttöku.“
Það var svo þann 11. ágúst síðast-
liðinn að tilkynnt var að Kamala
yrði varaforsetaefni Joe Biden og
f lestir vita rest, þessi ákvörðun Joe
Biden og hans fólks var á sama tíma
örugg og hugrökk. Þann 20. janúar
munu þau, ef allt gengur eftir, taka
við stjórnartaumunum í Hvíta hús-
inu.
Vön að brjóta blað
Kamala verður fyrsta konan til að
gegna embætti varaforseta Banda-
ríkjanna, en hún hefur áður brotið
blað.
Hún var fyrsta svarta mann-
eskjan og fyrsta konan til að verða
borgarsaksóknari San Fransisco
og einnig í stöðu sinni sem aðal-
saksóknari Kaliforníu. Þegar hún
var kjörin á öldungadeildarþing
árið 2016, var hún fyrsti svarti öld-
ungadeildarþingmaður Kaliforníu.
Kamala hefur sagt frá því að
móðir hennar hafi sagt við hana
að hún hefði alla burði til að vera
fyrst til að gera ýmislegt, en hún
þyrfti einfaldlega að gæta þess að
vera ekki síðust.
Vill ljá raddlausum rödd
Hún hefur látið hafa eftir sér að
hún hafi valið að verða saksóknari
til að ljá raddlausum rödd og er
þekkt fyrir að vera hörð í horn að
taka. Hún hefur barist fyrir réttar-
farslegum umbótum og kynþátta-
jafnrétti.
Þegar lögregla í Minneapolis
myrti hinn svarta George Floyd í
maí og mótmæli brutust út um öll
Bandaríkin, vakti Kamala athygli
fyrir framgang sinn, en hún lét í sér
heyra um lögregluof beldi gagnvart
svörtum.
En hún hefur einnig verið gagn-
rýnd fyrir störf sín sem saksóknari,
meðal annars fyrir að fara fram á
hækkaða fangelsistryggingu við
vissum glæpum og fyrir að neita að
styðja við sjálfstæðar rannsóknir á
lögregluof beldi.
Gagnrýndi Trump óspart
Kamala hefur verið hávær gagn-
r ý na nd i f r á f a r a nd i for s et a ,
Donalds Trump, meðal annars
fyrir að hafa sent herinn gegn frið-
sælum mótmælendum. Þá lét hún
hafa það eftir sér að það væri ekki í
anda þeirra Bandaríkja sem barist
var fyrir, að senda herinn gegn sínu
eigin fólki.
Styrkleikar Kamölu liggja helst
í því að hún er ein best þekkta
stjórnmálakona landsins, hún er
líkleg til að geta höfðað til íhalds-
samra sem og frjálslyndra, og
reynsla hennar í löggæslu ætti að
koma sér vel í áskorunum okkar
tíma.
Ég var þessi litla stelpa
Mynd eftir nýútskrifuðu lista-
konuna Bria Goeller, þar sem hún
skeytir Kamölu saman við skugg-
ann af sex ára gamalli Ruby Brid-
ges, hefur ferðast víða um veraldar-
vefinn og vakið mikla athygli. Á
myndinni er Kamala klædd í svarta
dragt og pinnahæla með tösku í
hendi og þar sem hún gengur fram
hjá ljósum vegg birtist skugginn af
Ruby Bridges, sem sex ára gömul
var fyrsta, svarta stúlkan til að
ganga í almennan barnaskóla í
New Orleans árið 1960.
Hin 23 ára Bria hannaði mynd-
ina, sem fékk nafnið „That little girl
was me“, fyrir Carl Gordon Jones,
stofnanda og eiganda fatamerkis-
ins WTF America-Good Trubble.
Carl, sem hefur ekki verið hljóður
um álit sitt á Trump, framleiddi
meðal annars stuttermabol með
áletruninni „I’m not anti-Americ-
an. I’m just anti-Stupid“. Skemmst
er frá því að segja að bolirnir seld-
ust upp.
Myndin fór á veraldarvefinn
í október, en vakti fyrst athygli
þegar Joe Biden og Kamala Harris
unnu forsetakosningarnar. Carl og
Bria vissu ekki hvaðan á þau stóð
veðrið þegar myndin skyndilega
fór á f lug og jafnvel Ruby Bridges
sjálf birti hana á Instagram-reikn-
ingi sínum með orðunum:
„Það er heiður að vera hluti af
þessari vegferð og ég er þakklát
fyrir að standa við hlið þér.“
Alin upp sem stolt svört kona
Kamala Harris verður í janúar fyrst kvenna sett í embætti varaforseta Bandaríkjanna. Með valinu er svo sann-
arlega brotið blað í sögu Bandaríkjanna því að Kamala er ekki bara kona, hún er svört kona, asísk-svört kona.
Kamala hér ásamt Doug eiginmanni sínum þegar hún tilkynnti um forsetaframboð sitt, í heimabæ sínum Oakland í
Kaliforníu, að viðstöddum yfir 20 þúsund manns. Í fangi Kamölu er systurdóttir hennar Amara. FRÉTABLAÐIÐ/GETTY
Kamala og Doug giftu sig árið 2014, fyrir átti Doug tvö börn og Kamala ekk-
ert, en Kamala segir börnin hafa innsiglað sambandið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Myndin „That little girl was me“ hefur vakið mikla athygli, en hún sýnir
Kamölu og skugga sex ára gamallar Ruby Bridges, hönnuður er Bria Goeller.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
ÞANN DAG GAT HÚN LÍK-
LEGA EKKI ÍMYNDAÐ SÉR
AÐ ÉG STÆÐI NÚ FRAMMI
FYRIR YKKUR SEGJANDI
ÞESSI ORÐ: ÉG SAMÞYKKI
TILNEFNINGU YKKAR SEM
VARAFORSETI BANDA-
RÍKJANNA.
1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð