Fréttablaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 96
Einu sinni kom ég fram sem píanóleikari á ráð-stefnu í Háskóla Íslands. Ráðstefnan var haldin árið 2000 og fjallaði um tímann og tímamót. Ég
settist við f lygilinn og lagði hend-
urnar á hljómborðið. Svo beið ég
í rúmlega fjórar mínútur, en stóð
því næst upp, hneigði mig og gekk
út við dræmt lófatak.
Þetta var verkið 4‘33‘‘ eftir John
Cage. Það samanstendur af þögn
eingöngu, en innan tímaramma.
Verkið þótti því heppilegt fyrir
ráðstefnu um tímann. Þagnir koma
sjaldnast við sögu í popptónlist, en
í klassíkinni eru þær mikilvægar.
Það er því rökrétt að til sé tónsmíð
sem samanstendur af þögninni
einni.
Fleiri undarleg tónverk eru til.
Hér eru nokkur þau safaríkustu,
en frá þeim er sagt á vefnum BBC
Music Magazine:
1. Heinrich Ignaz von Biber:
Battalia
Biber er þekktastur fyrir fínlegar
Rósakransfiðlusónötur sínar, sem
eiga að túlka leyndardóma kaþ-
ólska bænabandsins. Þar segja
smæstu blæbrigði heila sögu. Í
Battalia fyrir strengjasveit fór tón-
skáldið þó langt út fyrir eigin mörk.
Ýktir effektar skapa furðuleg áhrif
og verður að segjast að Biber, sem
var uppi á barokktímanum á sautj-
ándu öld, var talsvert á undan sinni
samtíð. Á einum stað á tónlistin að
sýna fyllerí hermanna, og er það
gert með því að hljómsveitin spilar í
átta tóntegundum á sama tíma. Það
er svo sannarlega hrærigrautur af
tónum.
2. Johann Georg Albrechtsberg
er: Konsert fyrir gyðingahörpu
Í fyrstu virðist ekkert óvanalegt
við konsert í F-dúr eftir Albrechts-
berger, sem var virt tónskáld, kenn-
ari og fræðimaður í Vínarborg á
átjándu öld. Konsertinn er frá
árinu 1765. Byrjunin lætur ljúflega
í eyrum, og er þar meðal annars
leikið á lútu, sem er í einleikshlut-
verki. En svo gránar gamanið. Gyð-
ingahörpuleikari kveður sér hljóðs.
Hljóðfærið er í rauninni ekki annað
en málmfjöður sem maður leggur
upp að munninum, þrýstir niður og
sleppir. Kannski getur einhver búið
til laglínu á hljóðfærið, en almennt
hljómar það svona: „Boinnnngggg!“
Heildarútkoman er furðulegt sam-
tal sinfónískrar tónlistar og frosks
sem hoppar frá einu blómi yfir á
annað. Albrechtsberger mun hafa
samið hvorki meira né minna en sjö
svona konserta.
3. Leopold Mozart:
Leikfangasinfónía
Í kvikmyndinni Amadeus virð-
ist faðir Mozarts, Leopold, vera
alvörugefinn og strangur. Hann
átti sér þó léttari hlið, sem birtist í
leikfangasinfóníu. Þar er sinfóníu-
hljómsveit í hefðbundnu hlut-
verki, en svo er líka spilað á alls
konar leikföng; blístrur, hristur
og annað í þeim dúr. Þetta verk
hefur verið f lutt á Íslandi, meðal
annars af nemendum Tónmennta-
skóla Reykjavíkur í fyrra. Tónlistin
er afar ærslafull og fellur alltaf í
kramið hjá börnum.
4. Györgi Ligeti:
Poeme Symphonique
Ligeti samdi tónlist sem prýðir
nokkrar k vikmyndir Stanleys
Kubrick. Hann var uppátækja-
sa mu r. Poeme Sy mphonique
gerir kröfu um tíu f lytjendur.
Hver þeirra er vopnaður tíu takt-
mælum af þeirri gerðinni sem þarf
að trekkja upp. Taktmælarnir eru
settir í gang og leyft að tifa þar til
slökknar á þeim. Útkoman er ein-
hvers konar slagverksveisla, mjög
óreiðukennd. Þetta verk var f lutt
á tónlistarhátíðinni Reykjavík
Midsummer Music fyrir nokkrum
árum og vakti mikla kátínu.
5. Kaikhosru Shapurji Sorabji:
Orgelsinfónía nr. 2.
Andy Kaufman, grínistinn sem
Jim Carrey lék í kvikmyndinni
Man in the Moon, tróð einu sinni
upp sem uppistandari í háskóla.
Brandarinn hans var að lesa The
Great Gatsby frá upphafi til enda.
Bókin tekur um fimm tíma í upp-
lestri. Það voru ekki margir eftir í
áheyrendahópnum þegar Kaufman
lauk lestrinum. Tónlistarútkoman
af þessum gjörningi er orgelsin-
fónía nr. 2 eftir Sorabji. Hún tekur
níu klukkustundir. Af skiljanlegum
ástæðum hefur hún aldrei orðið sér-
lega vinsæl, en hún hefur alls verið
flutt níu sinnum síðan hún leit fyrst
dagsins ljós árið 1932. Ekki er vitað
hve margir áheyrendur voru á tón-
leikunum, eða hve margir voru eftir
þegar verkinu lauk.
Þyrlukvartett
og bjöllur í skýjunum
Fleiri tónsmíðar má telja til. Vex-
ations eftir Eric Satie (sem kom
einu sinni fram fyrir áheyrendur og
dansaði í tjullpilsi) tekur til dæmis
helmingi lengri tíma en orgel-
sinfónía Sorabjis. Lútudúett eftir
Dowland er fyrir eina lútu, en tvo
lútuleikara (lúta er eins konar gítar).
Annar situr í fanginu á hinum. Og
Kattadúettinn eftir Rossini saman-
stendur bara af einu orði: „Mjá.“
Guðrún Á. Símonar og Þuríður
Pálsdóttir sungu dúettinn oft hér í
gamla daga, enda átti sú fyrrnefnda
að minnsta kosti fjörutíu ketti.
Einnig má nefna Þyrlukvart-
ett Stockhausens, sem er fyrir
fjóra strengjaleikara, einn í hverri
þyrlu. Leik þeirra og öskrum er
varpað í hátalara á jörðu niðri. Og
Mysterium eftir Skrjabín, sem lést
áður en hann gat klárað verkið,
átti að taka sjö daga og vera f lutt í
hlíðum Himalæjafjalla. Það átti að
byrja með hljómnum í risavöxnum
bjöllum sem áttu að hanga úr skýj-
unum. Áhrifamáttur verksins átti
að vera slíkur að mannkynið yrði
aldrei samt, heldur myndi stökk-
breytast í æðri verur. Kannski að sú
umbreyting verði einhvern tímann
að veruleika.
Jónas Sen
Nokkur undarlegustu tónverk sögunnar
Jónas Sen, tónlistargagnrýnandi Fréttablaðsins, segir frá nokkrum afar safaríkum og undarlegum tón-
verkum. Þar á meðal er leikfangasinfónía eftir Leopold Mozart, föður meistarans mikla.
Leopold Mozart
er höfundur
leikfangasin
fóníu sem fellur
í kramið hjá
börnum.
Ligeti var ein
staklega uppá
tækjasamt
tónskáld.
Sorabji samdi sinfóníu sem tekur
níu tíma í flutningi.
1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R48 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING