Fréttablaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 41
Rafkaup óskar eftir að ráða starfsmann til
bókhalds, innflutnings og tollamála.
Um er að ræða vinnu við almennt bókhald,
afstemmingar og uppgjör. Ásamt vinnu við pantanir,
innflutning, samskipti við erlenda birgja, tollskýrslu-
gerð, launavinnsla, umsjón talninga og fleira.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af sambærilegu starfi
• Góð tölvukunnátta
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Góð þjónustulund
• Reglusemi og góð ástundun
• Gott skipulag
• Góð íslensku og ensku kunnátta skilyrði
Um 100% starf er að ræða.
Einungis reyklausir einstaklingar eldri en 25 ára
koma til greina og þarf viðkomandi að hafa hreint
sakavottorð. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á
atvinna@rafkaup.is fyrir 20. nóvember 2020
Bókhald og
innflutningur
[Not for commercial use]
OKKUR VANTAR
TÖLVUNARFRÆÐING
Í TEYMIÐ OKKAR!
Loftmyndir ehf er leiðandi fyrirtæki í vinnslu og framsetningu landfræðilegra gagna. Á 25 árum hefur okkur
tekist að kortleggja allt Ísland og þjónustum í dag flestar stofnanir og fyritæki á þessu sviði. Við rekum
www.map.is og yfir 130 kortaþjónustur þar undir. Umsóknir skal senda á netfangið karl@loftmyndir.is
Loftmyndir ehf
Við hjá Loftmyndum þurfum að bæta við starfsfólki í hugbúnaðardeildina
okkar þar sem framundan eru spennandi verkefni fyrir trausta viðskipta-
vini. Við bjóðum upp á sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem starfsmenn
vinna sjálfstætt að verkefnum og fá að setja mark sitt á þær vörur sem við
þróum. Lögð er áhersla á frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum.
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu í JavaScript, JQuery, PHP, SQL,
Git / Svn og ekki skemmir fyrir reynsla af Linux, Python og Docker.
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að
stuðla að netöryggi ásamt hagkvæmri, öruggri
og aðgengilegri fjarskiptaþjónustu og efla
virka samkeppni á markaði. Gert er ráð fyrir að
starfsemi vegna netöryggis meira en tvöfaldist
á 3 árum og er fjármögnuð í fjármálaáætlun.
PFS starfar í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi
og hvílir starfsemin annars vegar á alþjóðlegri
þróun í fjarskiptum, upplýsingatækni og
netöryggi og hins vegar á lagagrundvelli EES
svæðisins. Flestir starfsmenn PFS taka þátt í
alþjóðlegum verkefnum.
Hjá PFS starfa nú um 30 manns, aðallega
sérfræðingar við úrlausn verkefna á sviði
netöryggis, tæknimála, viðskipta og laga sem
tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá einnig á
www.pfs.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með ráðningarferlinu hafa Hilmar
Garðar Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og
Jensína Kristín Böðvarsdóttir
(jensina@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Forstöðumaður
- Netöryggissveitin CERT-IS
Netöryggissveitin CERT-IS er sjálfstæð eining innan Póst- og fjarskiptastofnunar og hefur
það hlutverk að greina netógnir, viðhafa ástandsvitund, upplýsa um netógnir og meðhöndla
og samræma viðbrögð við netatvikum í netumdæmi Íslands. Starfsemin fer fram á grundvelli
laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða (NIS-lög), fjarskiptalaga og laga um
Póst-og fjarskiptastofnun. Sérstakt netumdæmi netöryggissveitarinnar nær til bankastarfsemi
og innviða fjármálamarkaða, samgangna, orku-, hita- og vatnsveitna, heilbrigðisþjónustu,
Stjórnarráðsins, auk fjarskipta, stafrænna grunnvirkja og stafrænnar þjónustu. Þá er
netöryggissveitin landbundinn tengiliður í alþjóðasamstafi CERT-teyma.
Starfssvið
• Leiða áframhaldandi uppbyggingu netöryggissveitarinnar CERT-IS í samstarfi við
hóp sérfræðinga stofnunarinnar og hagaðila.
• Umsjón og ábyrgð á starfsemi netöryggissveitar CERT-IS.
• Samskipti við hagaðila, fjölmiðla, þjónustuhóp netöryggissveitarinnar og stjórnvöld
vegna starfsemi sveitarinnar.
• Þátttaka í alþjóðlegu starfi CERT-teyma.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Hæfni til að vinna í hópi og leiða samvinnu og breytingar þar sem sjónarmið lögfræði
og tækni mynda saman lausn.
• Almenn þekking á netöryggismálum ásamt uppbyggingu og virkni netkerfa.
• Háskólanám sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur.
• Drifkraftur, frumkvæði, jákvæðni og metnaður til að ná árangri.
• Góð samskiptahæfni, bæði í rituðu og mæltu máli á íslensku og ensku.
• Stjórnunarreynsla er kostur.
• Hreint sakavottorð og skal standast öryggisvottun á grundvelli varnamálalaga.
Í boði eru samkeppnishæf kjör í síbreytilegu og spennandi umhverfi, þar sem gerðar eru
miklar fagkröfur.
Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember 2020.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
PFS hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 1 4 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0