Fréttablaðið - 14.11.2020, Side 41

Fréttablaðið - 14.11.2020, Side 41
Rafkaup óskar eftir að ráða starfsmann til bókhalds, innflutnings og tollamála. Um er að ræða vinnu við almennt bókhald, afstemmingar og uppgjör. Ásamt vinnu við pantanir, innflutning, samskipti við erlenda birgja, tollskýrslu- gerð, launavinnsla, umsjón talninga og fleira. Hæfniskröfur: • Reynsla af sambærilegu starfi • Góð tölvukunnátta • Sjálfstæð vinnubrögð • Góð þjónustulund • Reglusemi og góð ástundun • Gott skipulag • Góð íslensku og ensku kunnátta skilyrði Um 100% starf er að ræða. Einungis reyklausir einstaklingar eldri en 25 ára koma til greina og þarf viðkomandi að hafa hreint sakavottorð. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á atvinna@rafkaup.is fyrir 20. nóvember 2020 Bókhald og innflutningur [Not for commercial use] OKKUR VANTAR TÖLVUNARFRÆÐING Í TEYMIÐ OKKAR! Loftmyndir ehf er leiðandi fyrirtæki í vinnslu og framsetningu landfræðilegra gagna. Á 25 árum hefur okkur tekist að kortleggja allt Ísland og þjónustum í dag flestar stofnanir og fyritæki á þessu sviði. Við rekum www.map.is og yfir 130 kortaþjónustur þar undir. Umsóknir skal senda á netfangið karl@loftmyndir.is Loftmyndir ehf Við hjá Loftmyndum þurfum að bæta við starfsfólki í hugbúnaðardeildina okkar þar sem framundan eru spennandi verkefni fyrir trausta viðskipta- vini. Við bjóðum upp á sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem starfsmenn vinna sjálfstætt að verkefnum og fá að setja mark sitt á þær vörur sem við þróum. Lögð er áhersla á frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu í JavaScript, JQuery, PHP, SQL, Git / Svn og ekki skemmir fyrir reynsla af Linux, Python og Docker. Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að stuðla að netöryggi ásamt hagkvæmri, öruggri og aðgengilegri fjarskiptaþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Gert er ráð fyrir að starfsemi vegna netöryggis meira en tvöfaldist á 3 árum og er fjármögnuð í fjármálaáætlun. PFS starfar í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi og hvílir starfsemin annars vegar á alþjóðlegri þróun í fjarskiptum, upplýsingatækni og netöryggi og hins vegar á lagagrundvelli EES svæðisins. Flestir starfsmenn PFS taka þátt í alþjóðlegum verkefnum. Hjá PFS starfa nú um 30 manns, aðallega sérfræðingar við úrlausn verkefna á sviði netöryggis, tæknimála, viðskipta og laga sem tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá einnig á www.pfs.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsjón með ráðningarferlinu hafa Hilmar Garðar Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og Jensína Kristín Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn. Forstöðumaður - Netöryggissveitin CERT-IS Netöryggissveitin CERT-IS er sjálfstæð eining innan Póst- og fjarskiptastofnunar og hefur það hlutverk að greina netógnir, viðhafa ástandsvitund, upplýsa um netógnir og meðhöndla og samræma viðbrögð við netatvikum í netumdæmi Íslands. Starfsemin fer fram á grundvelli laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða (NIS-lög), fjarskiptalaga og laga um Póst-og fjarskiptastofnun. Sérstakt netumdæmi netöryggissveitarinnar nær til bankastarfsemi og innviða fjármálamarkaða, samgangna, orku-, hita- og vatnsveitna, heilbrigðisþjónustu, Stjórnarráðsins, auk fjarskipta, stafrænna grunnvirkja og stafrænnar þjónustu. Þá er netöryggissveitin landbundinn tengiliður í alþjóðasamstafi CERT-teyma. Starfssvið • Leiða áframhaldandi uppbyggingu netöryggissveitarinnar CERT-IS í samstarfi við hóp sérfræðinga stofnunarinnar og hagaðila. • Umsjón og ábyrgð á starfsemi netöryggissveitar CERT-IS. • Samskipti við hagaðila, fjölmiðla, þjónustuhóp netöryggissveitarinnar og stjórnvöld vegna starfsemi sveitarinnar. • Þátttaka í alþjóðlegu starfi CERT-teyma. Menntunar- og hæfniskröfur • Hæfni til að vinna í hópi og leiða samvinnu og breytingar þar sem sjónarmið lögfræði og tækni mynda saman lausn. • Almenn þekking á netöryggismálum ásamt uppbyggingu og virkni netkerfa. • Háskólanám sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur. • Drifkraftur, frumkvæði, jákvæðni og metnaður til að ná árangri. • Góð samskiptahæfni, bæði í rituðu og mæltu máli á íslensku og ensku. • Stjórnunarreynsla er kostur. • Hreint sakavottorð og skal standast öryggisvottun á grundvelli varnamálalaga. Í boði eru samkeppnishæf kjör í síbreytilegu og spennandi umhverfi, þar sem gerðar eru miklar fagkröfur. Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember 2020. Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is. PFS hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 1 4 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.