Fréttablaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 48
Leikskólinn Goðheimar Selfossi
laus störf
Leikskólinn Goðheimar er nýr sex deilda leikskóli sem er í
byggingu við Engjaland 21 á Selfossi. Áætlað er að opna hluta
leikskólans í mars 2021 og allan leikskólann í ágúst 2021.
Hér með eru auglýstar stöður sérkennslustjóra, deildarstjóra,
leikskólakennara, matráðs og aðstoðarmatráða.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 10 þúsund manns og lögð
er áhersla á öflugt skóla- og frístundastarf og góða velferðar-
þjónustu. Skólar og aðrar deildir fjölskyldusviðs vinna að því að
styrkja heildstæða nær þjónustu við börn, foreldra og skóla. Þá
er áhersla lögð á snemmtækan stuðning, góð tengsl skóla og
skólastiga og skólaþróunarverkefni sem unnin eru í anda lær-
dómssamfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum
sem búa yfir þekkingu, reynslu og áhuga á skólastarfi.
Sérkennslustjóri
Um er að ræða 100% stöðu sérkennslustjóra sem ráðið verður í
frá og með 15. febrúar 2021 eða eftir nánari samkomulagi.
Deildarstjórar
Um er að ræða þrjár 100% stöður deildarstjóra sem ráðið verður
í frá og með 15. febrúar 2021 og þrjár 100% stöður deildarstjóra
sem ráðið verður í frá og með 1. ágúst 2021
Leikskólakennarar
Um er að ræða 12 stöður leikskólakennara í 100% starfshlutfalli
sem ráðið verður í frá og með 1. mars 2021 og 12 stöður leik-
skólakennara sem ráðið verður í frá og með 1. ágúst 2021
Matráður/matreiðslumaður
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem getur hafið störf
15. febrúar 2021 í 100 % starf
Aðstoðarmatráðar
Ein 100% staða frá 1. mars 2021 og ein 80% staða frá 1. ágúst
2021
Frekari upplýsingar um störfin: menntun, hæfniskröfur, helstu
ábyrgð og verkefni er hægt að kynna sér á heimasíðu Árborgar
– Laus störf
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar-
félaga og viðeigandi stéttarfélags. Vakin er athygli á stefnu
Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum og að vinnustaðir
endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Birna Birgisdóttir,
leikskólastjóri, sigridurb@arborg.is Sími 480-6352 og 480-3272.
Umsóknum fylgi leyfisbréf, yfirlit yfir nám, fyrri störf og rök-
stuðningur fyrir hæfni í starfi.
Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í gegnum ráðningarvef
sveitarfélagsins http://starf.arborg.is/ Umsóknarfrestur er til
25. nóvember 2020.
Vegna aukinna umsvifa/verkefna ætlar Miklaborg
að bæta við starfsmanni í skjalagerð.
Miklaborg er stærsta fasteignasalan á Íslandi og þar starfar
í dag 30 manna metnaðarfullur hópur.
Hæfniskröfur:
• Löggiltur fasteignasali
/ lögmaður
• Hæfni í mannlegum samskiptum
/ góð þjónustulund
• Góð íslenskukunnátta
• Góð tölvukunnátta
s.s. Word, Excel og Outlook,
auk þess færni til að læra
á önnur kerfi
• Hreint sakavottorð
LÖGGILTUR FASTEIGNASALI – LÖGMAÐUR Í SKJALAGERÐ
Samkvæmt Creditinfo er Miklaborg efst og ein í sérflokki íslenskra fasteignasala.
Gott ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Starfsumsókn og ferilskrá sendist á netfangið jason@miklaborg.is.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með sem trúnaðarmál.
Hlökkum til að heyra frá þér.
Spennandi starf hjá vaxandi
fyrirtæki á heilbrigðissviði
Stoð leitar að öflugum liðsmanni í hjálpartækjadeild. Um er að ræða krefjandi
starf í samhentu teymi fagfólks sem sér um ráðgjöf og sölu á hjálpartækjum og
heilbrigðisvörum.
Stoð er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði, stofnað 1982. Markmið Stoðar er að bæta lífsgæði með
því að bjóða upp á heildarlausnir fyrir einstaklinga með fötlun, áverka og sjúkdóma og þá sem vilja fyrirbyggja
heilsufarsvandamál. Auk þess að þjónusta og veita lausnir fyrir heilbrigðisstofnanir. Innan Stoðar starfar samhentur
hópur fagfólks á heilbrigðissviði sem vinnur í sameiningu að því að finna bestu lausnirnar fyrir viðskiptavini
fyrirtækisins. Stoð er hluti af fyrirtækjasamstæðu Veritas ásamt Vistor, Distica, Artasan og MEDOR.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 22. NÓVEMBER 2020
Sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Stoðar, www.stod.is
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram koma ástæður þess að sótt er um
starfið og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar veita Karen Bjarnhéðinsdóttir, deildarstjóri, karen@stod.is
og Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri, petur@veritas.is.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun af heilbrigðissviði t.d.
sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, hjúkrunarfræði eða
heilbrigðisverkfræði
• Þekking og reynsla af hjálpartækjum og
heilbrigðisvörum
• Þekking á heilbrigðismarkaði kostur
• Reynsla af sölu og markaðsmálum æskileg
• Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
• Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt viðhorf
• Greiningar- og skipulagshæfileikar og metnaður til
að ná árangri í starfi
• Mjög góð tölvukunnátta
Helstu verkefni
• Ráðgjöf, sala og markaðssetning á
hjálpartækjum og heilbrigðisvörum til
heilbrigðisstofnanna, hjúkrunarheimila og
notenda
• Kynningar, innleiðing, fræðsla og eftirfylgni
fyrir notendur og heilbrigðisstarfsfólk
• Greining vaxtatækifæra og verkefni tengd
uppbyggingu hjúkrunarheimila
• Vinna við útboð og tilboðsgerð
• Samstarf við erlenda birgja,
Sjúkratryggingar Íslands og aðra
hagsmunaaðila
GILDI STOÐAR ERU ÁREIÐANLEIKI, HREINSKIPTNI OG FRAMSÆKNI
B.Ó. Smiðir ehf. óska eftir að
ráða smiði í vinnu
Umsóknir og fyrirspurnir má senda á bosmidir@bosmidir.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is