Fréttablaðið - 14.11.2020, Page 48

Fréttablaðið - 14.11.2020, Page 48
Leikskólinn Goðheimar Selfossi laus störf Leikskólinn Goðheimar er nýr sex deilda leikskóli sem er í byggingu við Engjaland 21 á Selfossi. Áætlað er að opna hluta leikskólans í mars 2021 og allan leikskólann í ágúst 2021. Hér með eru auglýstar stöður sérkennslustjóra, deildarstjóra, leikskólakennara, matráðs og aðstoðarmatráða. Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 10 þúsund manns og lögð er áhersla á öflugt skóla- og frístundastarf og góða velferðar- þjónustu. Skólar og aðrar deildir fjölskyldusviðs vinna að því að styrkja heildstæða nær þjónustu við börn, foreldra og skóla. Þá er áhersla lögð á snemmtækan stuðning, góð tengsl skóla og skólastiga og skólaþróunarverkefni sem unnin eru í anda lær- dómssamfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem búa yfir þekkingu, reynslu og áhuga á skólastarfi. Sérkennslustjóri Um er að ræða 100% stöðu sérkennslustjóra sem ráðið verður í frá og með 15. febrúar 2021 eða eftir nánari samkomulagi. Deildarstjórar Um er að ræða þrjár 100% stöður deildarstjóra sem ráðið verður í frá og með 15. febrúar 2021 og þrjár 100% stöður deildarstjóra sem ráðið verður í frá og með 1. ágúst 2021 Leikskólakennarar Um er að ræða 12 stöður leikskólakennara í 100% starfshlutfalli sem ráðið verður í frá og með 1. mars 2021 og 12 stöður leik- skólakennara sem ráðið verður í frá og með 1. ágúst 2021 Matráður/matreiðslumaður Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem getur hafið störf 15. febrúar 2021 í 100 % starf Aðstoðarmatráðar Ein 100% staða frá 1. mars 2021 og ein 80% staða frá 1. ágúst 2021 Frekari upplýsingar um störfin: menntun, hæfniskröfur, helstu ábyrgð og verkefni er hægt að kynna sér á heimasíðu Árborgar – Laus störf Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar- félaga og viðeigandi stéttarfélags. Vakin er athygli á stefnu Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Birna Birgisdóttir, leikskólastjóri, sigridurb@arborg.is Sími 480-6352 og 480-3272. Umsóknum fylgi leyfisbréf, yfirlit yfir nám, fyrri störf og rök- stuðningur fyrir hæfni í starfi. Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins http://starf.arborg.is/ Umsóknarfrestur er til 25. nóvember 2020. Vegna aukinna umsvifa/verkefna ætlar Miklaborg að bæta við starfsmanni í skjalagerð. Miklaborg er stærsta fasteignasalan á Íslandi og þar starfar í dag 30 manna metnaðarfullur hópur. Hæfniskröfur: • Löggiltur fasteignasali / lögmaður • Hæfni í mannlegum samskiptum / góð þjónustulund • Góð íslenskukunnátta • Góð tölvukunnátta s.s. Word, Excel og Outlook, auk þess færni til að læra á önnur kerfi • Hreint sakavottorð LÖGGILTUR FASTEIGNASALI – LÖGMAÐUR Í SKJALAGERÐ Samkvæmt Creditinfo er Miklaborg efst og ein í sérflokki íslenskra fasteignasala. Gott ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst. Starfsumsókn og ferilskrá sendist á netfangið jason@miklaborg.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með sem trúnaðarmál. Hlökkum til að heyra frá þér. Spennandi starf hjá vaxandi fyrirtæki á heilbrigðissviði Stoð leitar að öflugum liðsmanni í hjálpartækjadeild. Um er að ræða krefjandi starf í samhentu teymi fagfólks sem sér um ráðgjöf og sölu á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum. Stoð er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði, stofnað 1982. Markmið Stoðar er að bæta lífsgæði með því að bjóða upp á heildarlausnir fyrir einstaklinga með fötlun, áverka og sjúkdóma og þá sem vilja fyrirbyggja heilsufarsvandamál. Auk þess að þjónusta og veita lausnir fyrir heilbrigðisstofnanir. Innan Stoðar starfar samhentur hópur fagfólks á heilbrigðissviði sem vinnur í sameiningu að því að finna bestu lausnirnar fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Stoð er hluti af fyrirtækjasamstæðu Veritas ásamt Vistor, Distica, Artasan og MEDOR. UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 22. NÓVEMBER 2020 Sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Stoðar, www.stod.is Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram koma ástæður þess að sótt er um starfið og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Karen Bjarnhéðinsdóttir, deildarstjóri, karen@stod.is og Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri, petur@veritas.is. Hæfniskröfur • Háskólamenntun af heilbrigðissviði t.d. sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, hjúkrunarfræði eða heilbrigðisverkfræði • Þekking og reynsla af hjálpartækjum og heilbrigðisvörum • Þekking á heilbrigðismarkaði kostur • Reynsla af sölu og markaðsmálum æskileg • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund • Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt viðhorf • Greiningar- og skipulagshæfileikar og metnaður til að ná árangri í starfi • Mjög góð tölvukunnátta Helstu verkefni • Ráðgjöf, sala og markaðssetning á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum til heilbrigðisstofnanna, hjúkrunarheimila og notenda • Kynningar, innleiðing, fræðsla og eftirfylgni fyrir notendur og heilbrigðisstarfsfólk • Greining vaxtatækifæra og verkefni tengd uppbyggingu hjúkrunarheimila • Vinna við útboð og tilboðsgerð • Samstarf við erlenda birgja, Sjúkratryggingar Íslands og aðra hagsmunaaðila GILDI STOÐAR ERU ÁREIÐANLEIKI, HREINSKIPTNI OG FRAMSÆKNI B.Ó. Smiðir ehf. óska eftir að ráða smiði í vinnu Umsóknir og fyrirspurnir má senda á bosmidir@bosmidir.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi hagvangur.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.