Fréttablaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 43
Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember 2020. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Nánari upplýsingar um störfin veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is og Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, stefania@hagvangur.is.
Akraneskaupstaður auglýsir nýja stöðu mannauðsstjóra lausa til umsóknar. Óskað er eftir metnaðarfullum
og framsýnum einstaklingi sem hefur mikið frumkvæði og drifkraft til að þróa áfram starfsumhverfi bæjarins.
Mannauðsstjóri leiðir uppbyggingu og þróun mannauðsmála í samstarfi við stjórnendur bæjarins.
MANNAUÐSSTJÓRI
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Yfirumsjón með stefnumótun og framkvæmd
mannauðsmála Akraneskaupstaðar
• Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda
og starfsfólks í mannauðsmálum
• Yfirumsjón með framkvæmd á starfsmati hjá
Akraneskaupstað
• Umsjón og innleiðing jafnlaunavottunar
• Umsjón með ráðningarferlum, móttöku
nýrra starfsmanna og starfslokaferli
• Umsjón með starfsþróun og fræðslu starfsfólks
• Innleiðing og umsjón með starfsmannakerfi
• Umsjón með árangursmælingum og könnunum m.a.
um líðan starfsfólks
• Upplýsingagjöf og greiningar um rekstur
og mannauðsmál
• Ábyrgð á þróun starfsumhverfis m.a. aðbúnaði, öryggi
og líðan
• Þátttaka í verkefna- og umbótahópum
innan og utan bæjarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun í mannauðsstjórnun
eða sambærilegum greinum æskileg
• Þekking og reynsla af mannauðsmálum
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
• Leiðtogahæfni og reynsla af verkefnastjórnun
• Reynsla af starfsmati opinberra starfsmanna
• Reynsla af stefnumótun og teymisstarfi
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
• Mjög góð færni í ræðu og riti
Akraneskaupstaður er ört vaxandi
bæjarfélag með rúmlega 7500 íbúa.
Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu
við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð.
Sveitarfélagið er meðal stærstu
vinnuveitenda á Akranesi og starfa
hjá bænum um 600 manns.
Akraneskaupstaður auglýsir nýja stöðu skipulagsfulltrúa. Skipulagsfulltrúi fer með umsjón skipulagsmála í
bænum, en hlutverk hans er m.a. að veita íbúum, kjörnum fulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum, byggingarverktökum
og öðrum þeim sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um skipulagsmál.
Skipulagsfulltrúi tilheyrir skipulags- og umhverfissviði og heyrir undir sviðsstjóra þess sviðs. Hann skal tryggja
að starfsemi tengd skipulagsmálum sé í samræmi við lög og reglugerðir, gildandi fjárhagsáætlun, sett markmið
og ákvarðanir Akraneskaupstaðar.
Akraneskaupstaður óskar eftir að ráða byggingarfulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf sem
krefst góðrar samvinnu og samstarfs við stjórnendur og starfsmenn sveitarfélagsins, stofnanir þess, sem og
íbúa, iðnaðarmenn, verktaka, opinbera aðila og aðra er málið varðar.
Byggingarfulltrúi heyrir undir skipulags- og umhverfissvið og heyrir undir sviðsstjóra þess sviðs. Hann skal
tryggja að starfsemi tengd byggingarmálum sé í samræmi við lög og reglugerðir, gildandi fjárhagsáætlun, sett
markmið og ákvarðanir Akraneskaupstaðar.
SKIPULAGSFULLTRÚI
BYGGINGARFULLTRÚI
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Umsjón skipulagsmála í bæjarfélaginu
• Gerð skipulagsgagna þar sem því verður viðkomið
• Útgáfa framkvæmdarleyfa og gerð umsagna um
skipulags- og byggingaerindi
• Umsjón með kynningu aðal- og deiliskipulags
• Auglýsir skipulagslýsingar og skipulagsbreytingar
lögum samkvæmt
• Innleiðing og umsjón með rafrænum lausnum í
kynningu aðal- og deiliskipulags eða í skipulagsmálum
• Umsjón og þróun kortasjár bæjarins
í samvinnu við byggingarfulltrúa
• Undirbúningur erinda fyrir skipulags-
og umhverfisráð
• Lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála
• Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa, kjörna fulltrúa og
aðra hagsmunaaðila
• Aðkoma að gerð fjárhagsáætlunar skipulags- og
umhverfissviðs í samvinnu við sviðsstjóra
• Önnur sértæk verkefni fyrir Akraneskaupstað
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Byggingareftirlit og umsjón með byggingarmálum
bæjarfélagsins
• Móttaka og eftirfylgd umsókna um byggingarlóðir
• Ráðgjöf er varðar byggingarmál ásamt móttöku
og afgreiðslu á byggingarleyfisumsóknum
• Framkvæmd úttekta og útgáfa leyfa ásamt
staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga
• Umsjón og þróun kortasjár bæjarins í samvinnu
við skipulagsfulltrúa
• Umsjón og þróun með nýjum byggingarlóðavef
• Ráðgjöf og þjónusta við hagsmunaaðila
• Aðkoma að gerð fjárhagsáætlunar skipulags- og
umhverfissviðs í samvinnu við sviðsstjóra
• Önnur sértæk verkefni fyrir Akraneskaupstað
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem arkitekt,
landslagsarkitekt, tæknimenntun eða
skipulagsfræðingur
• Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur
samkvæmt 7. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5.
kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013
• Reynsla af gerð skipulagsuppdrátta
• Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum
• Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
• Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar
og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
og rík þjónustulund
• Nákvæmni og hæfni í framsetningu efnis
• Góð almenn tölvukunnátta, ásamt kunnáttu
í teikniforritum
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
• Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður skv.
25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010
• Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
• Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
• Frumkvæði og nákvæm vinnubrögð
• Góð almenn tölvukunnátta, ásamt kunnáttu
í teikniforritum
• Góð þekking og reynsla á sviði byggingarmála æskileg
• Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ YKKUR?