Fréttablaðið - 14.11.2020, Side 43

Fréttablaðið - 14.11.2020, Side 43
Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember 2020. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Nánari upplýsingar um störfin veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is og Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, stefania@hagvangur.is. Akraneskaupstaður auglýsir nýja stöðu mannauðsstjóra lausa til umsóknar. Óskað er eftir metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi sem hefur mikið frumkvæði og drifkraft til að þróa áfram starfsumhverfi bæjarins. Mannauðsstjóri leiðir uppbyggingu og þróun mannauðsmála í samstarfi við stjórnendur bæjarins. MANNAUÐSSTJÓRI Helstu verkefni og ábyrgð: • Yfirumsjón með stefnumótun og framkvæmd mannauðsmála Akraneskaupstaðar • Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks í mannauðsmálum • Yfirumsjón með framkvæmd á starfsmati hjá Akraneskaupstað • Umsjón og innleiðing jafnlaunavottunar • Umsjón með ráðningarferlum, móttöku nýrra starfsmanna og starfslokaferli • Umsjón með starfsþróun og fræðslu starfsfólks • Innleiðing og umsjón með starfsmannakerfi • Umsjón með árangursmælingum og könnunum m.a. um líðan starfsfólks • Upplýsingagjöf og greiningar um rekstur og mannauðsmál • Ábyrgð á þróun starfsumhverfis m.a. aðbúnaði, öryggi og líðan • Þátttaka í verkefna- og umbótahópum innan og utan bæjarfélagsins Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun í mannauðsstjórnun eða sambærilegum greinum æskileg • Þekking og reynsla af mannauðsmálum • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu • Leiðtogahæfni og reynsla af verkefnastjórnun • Reynsla af starfsmati opinberra starfsmanna • Reynsla af stefnumótun og teymisstarfi • Framúrskarandi hæfni í samskiptum • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð • Mjög góð færni í ræðu og riti Akraneskaupstaður er ört vaxandi bæjarfélag með rúmlega 7500 íbúa. Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð. Sveitarfélagið er meðal stærstu vinnuveitenda á Akranesi og starfa hjá bænum um 600 manns. Akraneskaupstaður auglýsir nýja stöðu skipulagsfulltrúa. Skipulagsfulltrúi fer með umsjón skipulagsmála í bænum, en hlutverk hans er m.a. að veita íbúum, kjörnum fulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum, byggingarverktökum og öðrum þeim sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um skipulagsmál. Skipulagsfulltrúi tilheyrir skipulags- og umhverfissviði og heyrir undir sviðsstjóra þess sviðs. Hann skal tryggja að starfsemi tengd skipulagsmálum sé í samræmi við lög og reglugerðir, gildandi fjárhagsáætlun, sett markmið og ákvarðanir Akraneskaupstaðar. Akraneskaupstaður óskar eftir að ráða byggingarfulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf sem krefst góðrar samvinnu og samstarfs við stjórnendur og starfsmenn sveitarfélagsins, stofnanir þess, sem og íbúa, iðnaðarmenn, verktaka, opinbera aðila og aðra er málið varðar. Byggingarfulltrúi heyrir undir skipulags- og umhverfissvið og heyrir undir sviðsstjóra þess sviðs. Hann skal tryggja að starfsemi tengd byggingarmálum sé í samræmi við lög og reglugerðir, gildandi fjárhagsáætlun, sett markmið og ákvarðanir Akraneskaupstaðar. SKIPULAGSFULLTRÚI BYGGINGARFULLTRÚI Helstu verkefni og ábyrgð: • Umsjón skipulagsmála í bæjarfélaginu • Gerð skipulagsgagna þar sem því verður viðkomið • Útgáfa framkvæmdarleyfa og gerð umsagna um skipulags- og byggingaerindi • Umsjón með kynningu aðal- og deiliskipulags • Auglýsir skipulagslýsingar og skipulagsbreytingar lögum samkvæmt • Innleiðing og umsjón með rafrænum lausnum í kynningu aðal- og deiliskipulags eða í skipulagsmálum • Umsjón og þróun kortasjár bæjarins í samvinnu við byggingarfulltrúa • Undirbúningur erinda fyrir skipulags- og umhverfisráð • Lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála • Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa, kjörna fulltrúa og aðra hagsmunaaðila • Aðkoma að gerð fjárhagsáætlunar skipulags- og umhverfissviðs í samvinnu við sviðsstjóra • Önnur sértæk verkefni fyrir Akraneskaupstað Helstu verkefni og ábyrgð: • Byggingareftirlit og umsjón með byggingarmálum bæjarfélagsins • Móttaka og eftirfylgd umsókna um byggingarlóðir • Ráðgjöf er varðar byggingarmál ásamt móttöku og afgreiðslu á byggingarleyfisumsóknum • Framkvæmd úttekta og útgáfa leyfa ásamt staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga • Umsjón og þróun kortasjár bæjarins í samvinnu við skipulagsfulltrúa • Umsjón og þróun með nýjum byggingarlóðavef • Ráðgjöf og þjónusta við hagsmunaaðila • Aðkoma að gerð fjárhagsáætlunar skipulags- og umhverfissviðs í samvinnu við sviðsstjóra • Önnur sértæk verkefni fyrir Akraneskaupstað Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem arkitekt, landslagsarkitekt, tæknimenntun eða skipulagsfræðingur • Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur samkvæmt 7. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 • Reynsla af gerð skipulagsuppdrátta • Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund • Nákvæmni og hæfni í framsetningu efnis • Góð almenn tölvukunnátta, ásamt kunnáttu í teikniforritum • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg • Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg Menntunar- og hæfniskröfur: • Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur • Frumkvæði og nákvæm vinnubrögð • Góð almenn tölvukunnátta, ásamt kunnáttu í teikniforritum • Góð þekking og reynsla á sviði byggingarmála æskileg • Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ YKKUR?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.